Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Side 65

Frjáls verslun - 01.11.1978, Side 65
Breytilegur orlofstími í franska bílaiðnaðinum Peugeot-Citroén veit- ir aukafrídaga sam- kvæmt nýju stiga- kerfi. Starfsmenn hafa aukna mögu- leika til að ákvarða hvenær þeir ráðstafa frítíma sínum Frönsku bílaverksmiðjurnar PSA Peugeot-Citroén úthlutuðu starfsmönnum sínum fyrr á þessu ári samtals 104.000 greiddum or- lofsdögum til viðbótar umsömdu leyfi. Um 1620 starfsmenn fengu þannig eina viku í aukaorlof eftir nýjum orlofsreglum hjá fyrirtæk- inu. Samkvæmt þessu fyrirkomulagi fá starfsmenn í verksmiðjunum, skrifstofufólk, tæknifræðingar og verkstjórar í 180 fyrirtækjum Peugeot-Citroén ákveðinn fjölda aukaorlofsdaga í samræmi við starfsskilyrði þeirra, aldur og á- stundun í vinnunni. Þetta fyrir- komulag var fyrst reynt á fyrra ári. Það var svar við auknum kröfum verkalýðsfélaga um styttri vinnu- viku og lægri eftirlaunaaldur þannig að fleiri atvinnutækifæri sköpuðust og auknar frístundir. ,,Við álítum að starfsfólkið sæk- ist eftir öðru og meiru en fleiri frí- tímum einvörðungu“, segir Claude Archambault, starfs- mannastjóri hjá Citroén, en það er einmitt hann sem hefur skipulagt orlofsfyrirkomulagiö. „Fólkið vill frelsi til að velja orlofstímann, til þess að nýta hann sem bezt miðað við aldur og persónuleg áhuga- mál." Dreifður orlofstími ,,Við hugsum því ekki lengur í vikum, um fimmtu orlofsvikuna eða lækkun eftirlaunaaldursins", segir Archambault. ,,Þess í stað erum við að leita leiða til að velja og dreifa vinnutíma og orlofstíma á allan starfstíma fólksins." Starfsmenn Peugeot og Citroén geta tekið aukafrídaginn sinn út einn í hvert sinn eða þeir geta safnað frídögum upp á nokkrum árum og tekið lengra orlof á miðj- um starfsferli eða farið fyrr á eftir- laun en ella. Starfsmaður í sérlega erfiðu starfi með góðar mætingar getur hugsanlega hafa safnað upp þriggja ára greiddu orlofi, þegar hann nær 62 ára aldri. Þannig gæti hann haldið óskertum launum þar til hann næði eftirlaunaaldri 65 ára gamall. Þær reglur gilda um þetta or- lofsskipulag aó starfsmenn verða að láta verkstjóra sinn vita með að minnsta kosti fimm daga fyrirvara ef þeir ætla að taka sér frí í einn dag. í reynd er þetta þó sveigjan- legt og menn fá frí með skemmri fyrirvara, svo framarlega sem það bitnar ekki á afköstum viðkomandi deildar og einnig er það háð því, hvort margir aörir hafa tekið sér frí viðkomandi dag. Starfsmenn verða að taka frí í heilan dag. Þeir geta ekki skipt dögum í tvennt eða tekið frí nokkrar klukkustundir í senn. Lítil áhrif á afköst Forráðamenn Peugeot og Citroén gera ráð fyrir að ráða til starfa milli 400 og 1000 nýja starfsmenn á næstu þremur árum vegna hinnar nýju orlofsáætlunar. I raun hefur hún hingað til haft furðulítil áhrif á afköst vegna þess að starfsmenn hafa getað lokið verkefnum þeirra sem fjarstaddir hafa veriö. Sala hjá fyrirtækinu nam í fyrra sem svarar 9,2 milljörðum dollara, en það er 19% aukning frá 1976. Nettóhagnaður minnkaði þó úr 314 milljónum dollara í 275 milljónir á sama tíma. „Fyrir mig er munurinn sá, að ég get áætlað fjarvistir", segir Georges Hebert, verkstjóri í gír- 65

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.