Frjáls verslun - 01.11.1978, Blaðsíða 69
á Eskifirði. Aðrar peningastofnanir
hafa ekki skrifstofur á Reyðarfirði.
í Breiðdalsvík eru umboðsmenn
tveggja banka. Annars vegar Út-
vegsbankans og heyrir hann undir
útibú á Seyðisfirði. Hins vegar
Samvinnubankans, útibúinu á
Stöðvarfirði.
Á Stöðvarfirði er sagan hins
vegar sú, að þótt Samvinnubank-
inn reki þar útibú, er Hraðfrystihús
Stöðvarfjarðar, svo og kaupfélag-
ið að einhverjum hluta, sem til
samans reka svo til allt atvinnulíf
staðarins, með öll sín viðskipti í
útibúi Landsbankans á Fáskrúðs-
firði.
Þannig eru þessir staðir sumir
hverjir í jafn einkennilegri valda-
aðstöðu gagnvart nágrannastöð-
um sínum, eins og Reykjavík hefur
stundum verið í gagnvart lands-
byggðinni.
Fleira en þetta
En, það var minnst á það í byrj-
un, að atvinnulíf væri orðið mun
fjölbreyttara, en flestir álíta, á
þessum stöðum. Á það við um þá
allflesta.
Breiðdalsvík sker sig þó þarna
úr, svo greinilegt er. Þar er ákaf-
lega fámennt og atvinnulíf mjög
fábreytt. Aðeins sjórinn og aftur
sjórinn. Meir að segja verzlun nær
engin.
Á öðrum stöðum hefur iðnaður
náð allnokkurri fótfestu. Aðallega
er um þjónustuiðnað fyrir sjávar-
útveg að ræða, niðri á fjörðunum í
það minnsta. Vélsmiðjur, málm-
smiðjur, netagerð og annað. Hins
vegar er það ekki heldur einhlítt.
Á Egilsstöðum er atvinnulíf orð-
ið næsta fjölbreytt. Þar eru rekin
stór fyrirtæki í byggingariðnaði,
prjónaiðnaði og fleiru. Á öðrum af
þeim stöðum sem heimsóttir voru
er svipaða sögu að segja, nema
aðeins smærri.
Neskaupstaður skartar með
nokkra þætti starfs Kaupfélagsins
Fram, sem ekki er bein verzlun,
það er brauðgerð, sláturhús og
skipaafgreiðslu. Þar aó auki starfa
þrjú fyrirtæki þar í byggingariðn-
aði, þar af eitt sem er steypustöð.
Tvö fyrirtæki reka þar leigu á
þungavinnuvélum. Loks má til telja
plastverksmiðju og prentsmiðju,
sem jafnframt er bókaútgefandi.
Á Seyðisfirði er vélsmiðja, raf-
magnsverkstæði, þungavinnu-
vélaleigur og fleira.
Á Eskifirði rekur Pöntunarfélag
Eskfirðinga sláturhús, svo og
skipaafgreiðslu. Þá er á staðnum
vélaverkstæði.
Á Reyðarfirði eru starfandi fyrir-
tæki í byggingariönaði, járnsmíöa-
og vélaviðgerðir, alhliða bifreiða-
þjónusta og svo fyrirtæki eitt er
saumar fatnað til útflutnings.
Greinilegt var einnig, af viðræð-
um við forystumenn á stöðum
þessum, að þar er fyrir hendi mikill
hugur til þess að koma á fót aukn-
um iðnaði. Vafalítið verður það
erfitt, þar sem iðnaður á ekki gott
með aö keppa við sjávarútveg um
vinnuafl, en þó virðist stefna hafa
veriö á það tekin.
Það vakti þó sérstaklega athygli
undirritaðs, aö forystumenn allra
þessara staða virtust vera að vinna
að sömu hugmyndum. Var það
framleiðsla á einingum í húsbygg-
ingar, sem þar er kepþt að.
Raunar kom það fram i fleiru, að
þarna á svæðinu virðist enn ákaf-
lega hörð samkeppni ríkja milli
einstakra staða, nánast rígur.
Samvinna er ekki fyrir hendi, nema
að takmörkuðu leyti og þá aðeins
af illri nauðsyn. Virðist það ekki
enn Ijóst að meö sameiginlegu
heildarskipulagi landshlutans og
samvinnu staða á milli, mætti ná
mun lengra, meðal annars í fest-
ingu iðnaöar, en ella.
69