Frjáls verslun - 01.11.1978, Blaðsíða 9
Drífa Pálsdóttir, lögfræðingur, tók 1. nóvem-
ber s.l. við starfi lögfræðings mæðrastyrks-
nefndar, en það er starf sem konur eingöngu
hafa annast.
Starfið felur í sér, að sögn Drífu, lögfræði-
legar leiðbeiningar fyrir efnalitlar mæður, end-
urgjaldslaust. Helst eru það leiðbeiningar og
ráðleggingar á sviði sifja- og erfðaréttar, t.d.
viðvíkjandi skilnað hjóna og umráðarétt yfir
börnum svo og sambúöarslit.
Drífa Pálsdóttir er fædd 8. apríl 1945 í
Reykjavík. Hún varð stúdent frá Menntaskól-
anum á Laugarvatni 1966, en hélt síðan til
Þýskalands, og stundaði nám í þýsku við há-
skólann í Munchen. 1972 innritaðist Drifa í
lagadeild Háskóla Islands og lauk þaðan lög-
fræðiprófi á s.l. vori.
Drífa sagöi, að lögfræðingur mæðrastyrks-
nefndar væri til viðtals einu sinni í viku hverri á
mánudagsmorgnum, og þá gætu þær konur,
sem á lögfræðilegum leiðPeiningum þurfa að
halda leitað til hennar annað hvort í gegnum
síma, eða með beinum viðtölum.
Mæðrastyrksnefnd hefur nú verið starfrækt í
fimm áratugi, eða frá 1928. Starfssvið hennar
má segja að sé tvíþætt. Annars vegar er rekin
orlofsstarfsemi, þar sem konum er boðið til or-
lofsdvalar í eina viku að Flúðum í Hruna-
mannahreppi, en um 40 konur hafa tekið þátt í
þessum orlofsdvölum á hverju ári.
Hinn þátturinn í starfi mæðrastyrksnefndar
er jólasöfnun, en þá hefur verið leitað til fyrir-
tækja og annarra um fjárstuðning. Bæði ein-
staklingar og fjölskyldur, sem hafa átt í erfið-
leikum eða eru illa staddar, hafa síðan notið
góðs af þessari jólasöfnun nefndarinnar með
framlögum.
Hjálmar R. Bárðarson, siglingamálastjóri var
á síðasta fundi aðildarríkja alþjóðasamþykktar
um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar
úrgangsefna og annarra efna í það, endurkjör-
inn formaður í þessari alþjóðasamþykkt.
Fyrir nokkrum vikum var Hjálmar einnig end-
urkjörinn til eins árs í sérnefnd, sem fjallar um
öryggi fiskiskipa. Þessi nefnd undirbjó al-
þjóðasamþykkt um öryggi fiskiskipa, sem eru
24 m að lengd og þar yfir, og var það fyrsta
alþjóðasamþykkt sem gerð var í heiminum um
öryggi fiskiskipa.
Á fundi aðildarríkjanna að alþjóðasamþykkt-
um sem haldinn var í aðalstöðvum IMCO,
Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar í London
voru á dagskrá ýmis mikilvæg mál er varða
varnir gegn mengun hafsins. Voru t.d. settar
reglur um kröfur varðandi eyðingu efna með
brennslu um borð í skipum. Einnig var rædd
tillaga Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar um
reglur og kröfur varðandi takmarkaða losun
geislavirkra efna í hafið.
Hjálmar R. Bárðarson, siglingamálastjóri er
fæddur 8. júní 1918 á ísafirði. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1939.
Fór hann síðan til verkfræðináms í Danmörku
árið 1940, og lauk prófi 1946. Starfaði hann að
því loknu sem verkfræðingur á skipasmíðastöö
í Danmörku, og vann einnig um tíma hjá brezkri
skipasmíðastöð við stöðugleikaútreikninga á
togurum.
Að störfum erlendis loknum fór Hjálmar að
starfa hjá Stálsmiðjunni hf. og teiknaði þá m.a.
dráttarbátinn Magna, fyrsta stálskip íslendinga,
og vann að fjölmörgum öðrum verkefnum.
1954 varð hann skipaskoðunarstjóri og einnig
skipaskráningarstjóri. 1970 var Siglingamála-
stofnun ríkisins sett á fót og voru þessi embætti
þá sameinuð undir siglingamálastjóra.