Frjáls verslun - 01.11.1978, Blaðsíða 72
Margt er að gerast
í athafnalffi á Reyðarfirði
reisa vöruskemmu, en hér hefur
verið umhleðsluhöfn hjá þeim frá
1964 . Hér er einnig miöstöð þjón-
ustu af ýmsu tagi, svo sem útibú
verkfræðiskrifstofunnar Hönnunar
fyrir Austurland og fleira.
Fyrirtækjum stjórnað utan byggð-
arlagsins
Hinu er þó ekki að neita, að
menn hér vildu gjarnan hafa sjálfir
meiri hönd í bagga en nú er. Hér er
enginn banki, aðeins afgreiðslur
frá Búnaðarbankanum á Egils-
stöðum og Landsbankanum frá
Eskifirði. Kaupfélagið, sem er stór
vinnuveitandi, er útibú frá Egils-
stöðum og Síldarverksmiðjum rík-
isins er stjórnaö annars staöar frá.
Á það ber að horfa, að með þessu
móti er sterkara afl á bak við fyrir-
tækin, en menn hafa verið óá-
nægöir með sumt, til dæmis Síld-
arverksmiðjurnar, sem ekki hafa
sinnt málum nógu vel hér, og erfitt
að fá úr leyst þegar stýrt er úr öðr-
um byggðarlögum.
Ekki er allt illt sem annars staðar
kemur frá og ber þess sérstaklega
að geta að við eigum mikið og gott
samstarf við Eskifjörð.
Framleiösluiðnaður er enginn
hjá okkur, en undirbúningur hefur
verið unninn, sérstaklega að
byggingariðnaði á borð við hús-
einingaverksmiðju. Við vitum þó
ekki enn árangur af þeim undir-
búningi.
Þörf fyrir skuttogara
Hér vantar einnig meiri útgerð.
Okkur vantar skuttogara. Mér er
alveg sama hvað sagt er um skut-
togara, þeir jafna atvinnu og gera
hana stöðugri. Með þeim má miðla
hráefni milli staða og jafna þannig
vinnu með svæðalegu tilliti líka.
Það er verið að vinna að útgerð
hér núna. Við ætlum að fá skip,
hvort sem því verður ansað eóa
ekki. Aukning í öðrum þáttum
fylgir á eftir. Það er nauðsynlegt aö
vaxtarbroddurinn verði þar.
Landsbanki íslands
á Eskifirði rekur af-
greiðslu á Reyðar-
firði. Þar ræður hús-
um Vigfús Ólafsson,
fulltrúi, sem við feng-
um til að spjalla ofur-
lítið um staðinn.
,,Það má segja að hér skiptist
atvinnulíf nokkurn veginn jafnt í
þrjá hluta, það er verzlun, fisk-
vinnslu og þjónustuiðnað", sagði
Vigfús, ,,og eru þar Kaupfélag
Héraðsbúa og Síldarverksmiðjur
ríkisins ákaflega stórir aðilar. Hins
vegar er ákaflega margt að gerast
hér í viöskiptalífinu, því hér er verið
að koma upp tollvörugeymslu, á
vegum Tollvörugeymslu Austur-
lands h.f., sem er í eigu aðila héð-
an og af Egilsstöðum, að megninu
til. Svo og er Eimskipafélagið aó
Vlgfús Ólafsson, fulltrúi Landsbankans á Reyflarflrðl.
72