Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Blaðsíða 19

Frjáls verslun - 01.11.1978, Blaðsíða 19
einnig með tilliti til þess að ólíklegt er að skekkjurnar breyti nokkru um það hvaða fyrirtæki eru á skránni og hver ekki. Einnig með tilliti til þess að ólíklegt er að röð efstu tíu fyrirtækjanna sé röng, þó með þeirri undantekningu að hugsanlega hafi ekki öll kurl Pósts og síma komið til grafar. Ef til vill raskar þessi skekkja, það er sú staðreynd að tölur eru ekki endanlegar, stöðu fyrirtækj- anna 100 nokkuð mikið innbyrðis og ber að hafa það í huga, þegar skráin er lesin. Saman, eða sitt í hvoru lagi? Annað það, sem taka þurfti af- stöðu til, var hvort skrá ætti fyrir- tæki, sem eru að fullu í eigu sömu aöila, eða fyrirtæki, þar sem eitt er í eigu annars, sem eitt, eða sundurskilja þetta. Ákveðið var að fara þar beint eftir skrám Hagstof- unnar. Einni breytingu hefur þetta valdið, þar sem síðasta ár voru talin saman fyrirtækin íshúsfélag Bolungavíkur hf. og Einar Guð- finnsson hf. og þá sett í átjánda sæti. Nú eru þessi fyrirtæki sitt í hvoru lagi, eins og skráning Hag- stofunnar segir til um, eru bæði á listanum en í 34. og 93. sæti. Séu þau lögð saman, lenda þau hins vegar nú í fimmtánda sæti. Breytingar Ræða verður um breytingar á skránni með nokkurri varúð, bæði vegna þess, að mörg fyrirtækj- anna, sem við sögu hafa komið á skrám af þessu tagi, eru sviftinga- fyrirtæki í starfsmannahaldi. (Þá sérstaklega þau sem tengjast sjávarútvegi og fiskvinnslu), svo og vegna áöurgreindra annmarka. 10% hjá 10 stærstu Af þeim tölum, sem hér birtast, má ráða, að hjá tíu stærstu fyrir- tækjum landsins starfi rétt um níu þúsund manns, eða um ellefu af hundraði vinnandi fólks í landinu. Hjá hundrað stærstu fyrirtækj- unum virðist hins vegar óhætt að fullyrða að meir en fjórðungur vinnuafls í landinu starfi, eða líklega um 27—28%. Athyglisvert er, að auk þess að S.Í.S. reynist vera stærsta fyrir- tækið á þessari skrá, eru á henni ein þrettán kaupfélög. Hjá þeim eru skráðir hér liðlega fjögur þús- und starfsmenn. Bætt um betur næst Hér á eftir fylgir svo listinn, með öllum sínum vanköntum, en jafn- framt kostum. Út frá gefnum for- sendum og miðað við þær tak- markanir á gagnaöflun og gagna- vinnslu, sem hér greinir að framan, er hann réttur. Hins vegar er ekki ástæöa til annars en að lofa bót og betrun. Listi næsta árs verður væntanlega unninn út frá breyttum forsend- um, að einhverju leyti. Hvort sem gengið verður út frá öðrum við- miðunum, eða hvort þar verður eitthvert sambland á. Reynt verður þá, að ná fram lista, sem óumdeil- anlega nær yfir hundraö stærstu fyrirtæki landsins. Fyrirtæki Tryggðar Meöalfjöldi vikur starfsmanna 1. Samband íslenskra samvinnufélaga 73.546 1.414 2. Póstur og sími 70.358 1.353 3. Flugleiðir 70.205 1.350 4. Eimskipafélag fsiands 50.899 978 5. Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri 47.949 922 6. Landsbankinn 40.004 769 7. islenska Álfélagið 35.612 685 8. Sláturfélag Suðurlands 28.700 551 9. fslenskir Aðalverktakar 22.287 429 10. Útgerðarfélag Akureyrar 22.009 423 11. Skeljungur 13.554 261 12. Norðurtanginn h.f. isafirði 13.303 ' 256 13. Olfufélagið h.f. 13.205 254 14. Mjólkursamsatan 13.082 252 15. Kaupfélag A-Skaftfellínga 12.945 249 16. Áiafoss 12.845 247 17. Slippstöðin Akureyri 12.788 246 18. Kaupfélag Borgfirðinga 12.267 236 19. Kaupfélag Árnesinga 12.051 232 20. Kaupfélag Skagfirðinga 11.841 228 21. Olíuverslun fslands 11.479 221 22. Síldarvinnslan Neskaupstað 11.455 220 23. Meitillinn Þorlákshöfn 11.153 214 24. Þormóður Rammi 10.883 209 25. Búnaðarbankinn 10.724 206 26. Áburðarverksmiðja ríkisins 10.575 203 27. Sementsverksmiðja ríkisins 10.498 202 28. Útvegsbankinn 10.066 194 29. Reykjalundur 9.609 185 30. Isbjörninn 9.293 179 31. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar 9.247 178 32. Haraldur Böðvarsson og Co. 9.245 178 33. Hampiðjan 9.167 176 34. fshúsfélag Bolungavíkur 9.086 175 35. Vélsmiðjan Héðinn 8.900 171 36. Hagkaup (Pálmi Jónsson) 8.576 163 37. Fiskiðjan hf. Vestmannaeyjum 8.450 162 38. Hraðfrystihús Eskifjarðar 8.372 161 39. fshúsfélag ísfirðinga 8.308 160 40. Breiðholt h.f. 8.177 157 41. Freyja h.f. Suðureyri 8.153 157 42. Kirkjusandur 7.989 154 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.