Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Síða 33

Frjáls verslun - 01.11.1978, Síða 33
Kápa af einu tímaritinu, sem Bertelsmann gefur út, kvennablaðinu Brigitte en það er hið stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Kemur víða við Bertelsmann hefur fært út kví- arnar á alþjóðlegum markaði í miklu meiri mæli en nokkurt annað útgáfufyrirtæki. Nærri þriðjungur af sölu á sér stað utan Þýzkalands, þ.e.a.s. í öðrum Evróþulöndum, Suður-Ameríku og fer vaxandi í Norður-Ameríku. Bertelsmann-fyrirtækið hefur staðið andsþænis margvíslegum' öröugleikum í sambandi við dreif- ingarmál sín og vegna mismun- andi menningarlegra og samfé- lagslegra skilyrða í hinum ýmsu löndum. Tungumálavandinn veld- ur því að Bertelsmann verður aö ráða til sín blaöamenn frá viökom- andi löndum. Þetta gerir stjórnun þyngri í vöfum. Mohn bætir við: ,,í mörgum löndum er útlend- ingum alls ekki heimilað að stunda útgáfustörf. Franska stjórnin hefur t.d. bannað okkur að kaupa tíma- ritiö Modes et Travaux." I Þýzkalandi, Hollandi og Frakk- landi eru bókabúðir algengar. Þær eru færri í Bretlandi. Á Spáni, Ítalíu, stærstum hluta Bandaríkj- anna og í Suður-Ameríku eru þær mjög fáar. „[ mörgum þessara landa notast útgefendur við sölumenn, sem ganga um með vörulista og selja bækur — ævinlega safnrit.", segir Mohn. „Það eru ekki gefnar út einstakar bækur vegna þess að þær myndu ekki seljast. I Brasilíu eru engar pappírskiljur gefnar út vegna þess að dreifingarkerfi vantar." Þannig nálgast Mohn vanda- málin jafnt sem margvísleg tæki- færi í starfsemi fyrirtækja sinna. Þar er um að ræða bókaklúbbana með um 38,7% sölu, bókaútgáfu 8%, prentun og hljómplötuútgáfu 11,8%, kvikmynda- og sjónvarps- þáttagerð 9%, og tímaritaútgáfu á vegum Gruner & Jahr A.G., þar sem Mohn ræður yfir 75% hluta- fjár. Tímaritaútgáfan skapar hins vegar 32,5% sölu hjá samsteypu Mohns. Vinsælir bókaklúbbar Kjarni starfseminnar, bóka- klúbbarnir, bjóða ýmsum löndum upp á nýtt dreifingarkerfi þannig að einangruð þjóðabrot fá tæki- færi til að velja úr 500 til 600 bókatitlum. ,,Ég var nýlega í Kólumbíu, í 2000-3500 manna þorpum Indí- ána“, sagði Mohn fyrir skömmu í samtali viö blaðamann bandaríska tímaritsins Forbes. „Þetta er virki- lega fátækt fólk. Samt sem áður eru í slíku smáþorpi milli 100 og 200 meðlimir bókaklúbbs." Mohn hóf aðgerðir á mörgum framleiðslusviðum sínum einfald- lega vegna þess að aðrir ætluðu að halda honum úti í kuldanum. Þegar fjölþjóölegu hljómplötufyr- irtækin neituðu að viðurkenna hljómplötuklúbbana hans sem dreifingaraöila, byrjaði hann að gefa út plötur sjálfur. „Alfræðibókadeildin okkar var stofnsett vegna þess að útgefend- ur slíkra bóka í Þýzkalandi vildu ekki veita okkur dreifingarrétt", segir Mohn. „Hið sama er að segja um landakortaútgáfuna, sem við byrjuðum á á sjötta áratugnum." Kvikmyndagerðin erfið viðfangs Því er ekki að neita, að Mohn hefur hlotið skrámur við og við. Það gerðist í kvikmyndaiönaðin- um. Mohn hefur lýst því þannig: „Við keyptum ufa-kvikmynda- gerðina þýzku. En vegna sam- keppni frá stóru kvikmynda- og sjónvarpsþáttafyrirtækjunum er næstum útilokað að halda áfram. Við seljum ríkissjónvarpsstöðvun- um sjónvarpsþætti fyrir um 7,5 milljónir marka á ári og um aukn- ingu er ekki að ræöa. Eina ráðið fyrir þýzka kvikmyndaframleið- endur er að leita á náðir amerískra dreifingarfyrirtækja." Framhald er á aðgerðum Mohns erlendis vegna aukinna umsvifa þýzku stjórnardeildarinnar, sem hefur eftirlit með hringamyndun- um. Á síðustu 18 mánuðum hefur hann gert mikilvæga samninga á Spáni og Italíu. Þýöingarmest voru þó kaup hans á bandaríska út- gáfufyrirtækinu Bantam Books, sem hann fékk fyrir 36 milljón dollara á borðið. Aðgerðir Mohns á bandaríska markaðnum einkennast af mikilli varfærni. „Öll árin eftir stríöið var ég að læra af reynslu Bandaríkja- manna", segir hann. „Þetta átti við um útgáfuna, prentun, skipulag og stjórnun. Ég sagði alltaf að það væri ástæðulaust að fara inn á bandaríska markaðinn. Ameríkan- arnir kynnu til verka." Nú telur hann aftur á móti að beztu evrópsku útgáfufyrirtækin standist samanburð við góð bandarísk útgáfufyrirtæki. 33
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.