Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 55

Frjáls verslun - 01.11.1978, Qupperneq 55
íslendingum ekki leyfilegt að gera skuldbind- andi samninga um kaup á efni eða vélum er- lendis, það þýðir m. ö. o. að manni er ekki leyfilegt að skrifa undir neina samninga sitj- andi við þorð utan íslenzkrar lögsögu. Það segir sig sjálft að eftir þessum reglum er ekki ávallt farið. Allt sem um er rætt á að vera í tilboðsformi til síðari staöfestingar bréflega. Kaupsamn- ingar skulu vera „proforma" og öðlast ekki gildi nema til komi staðfesting heiman frá fs- landi eða staðfesting í formi bankamilli- göngu, svo sem með opnun bankaábyrgöar. Allir greiösluskilmálar eru háðir samþykki viðkomandi opinberra aðila hérlendis á sama hátt og lántaka erlendis. Af þessum sökum hafa oftar en einu sinni skapazt erfiðleikar og jafnvel samningsrof við erlenda aðila. Hjá þessu má komast með því að skýra málin ítarlega og skírskota óspart til íslenzkra laga, sem þegar eru orðin að þjóð- sögum meðal kaupsýslumanna víðaerlendis. Erlendis er það ákaflega misjafnt hvar og með hvaða hætti gert er út um málin. í Bandaríkjunum, Kanada og jafnvel í Svíþjóó er málið yfirleitt til lykta leitt við hádegis- eða miðdegisverð á veitingastað. Sé um heimboð að ræða, þá er það yfirleitt eftir að sam- komulagi hefur veriö náð og þá er það ófrá- víkjanleg regla að minnast ekki á viðskipti nema gestgjafinn hafi um það frumkvæði. Eitt af því sem útlenzkir kaupsýslumenn eiga hvað erfiðast með að gera sér grein fyrir er hvað innkaupsverð virðist oft skipta litlu máli hjá okkur íslendingum. Þetta gildir að sjálfsögðu mismunandi eftir því hvað verið er að kauþa, en þeim finnst oft með öllu óskilj- anlegt hvernig íslenzk fyrirtæki fara að því að selja vörur með allt niður í 1 /10 hluta þeirrar álagningar sem er viðhöfö hjá þeim. Þegar þeim finnst innkaupsverö skipta höfuðmáli en umboðslaun vera aukaatriði, er þessu þver- öfugt farið hjá íslendingum, þá er ekki mikil von til þess að samningar verði hagstæðir íslenzka aðilanum. Þegar um er að ræða efni og vélar til framleiðsluiðnaðar gilda hinsveg- ar allt önnur lögmál. Við skulum byrja á því aó gera okkur einhverja grein fyrir því við hvern við erum að reyna að semja. Án þess að það hafi nokkuð með kynþáttafordóma að gera, er nauðsynlegt að vita hvort viðsemjandi er t. d. hreintrúaður gyðingur. Hvers vegna? Það væri ef til vill ekki nema til þess að vita á hvaða dögum þýðir að tala við hann. Hrein- trúaðir gyðingar, en þeir eru margir í við- skiptum, t. d. í Bandaríkjunum, Sviss og Frakklandi, Ijúka vinnuviku sinni um kl. 15 á föstudögum. Eftir þann tíma og til sunnu- dagsmorguns sinna þeir ekki viðskiptum, hvað mikilvæg sem þau kunna að teljast, svara ekki einu sinni síma. Þetta er ekki ólið- legheit eða ókurteisi, heldur trúarbrögó, sem þeir taka alvarlegri tökum en okkur íslend- ingum kann að þykja skynsamlegt. Sunnu- dagurinn er aftur á móti vinnudagur gyðinga og þá er ekkert því til fyrirstööu að hafa sam- band við þá. Einungis þessi vitneskja getur forðað manni frá leiðinlegum árekstrum og misskilningi. Það er útbreiddur misskilningur hérlendis að gyóingar séu erfiðir að eiga viðskipti við. Þvert á móti mun það vera samdóma álit þeirra, sem reynt hafa, aö gyöingar séu yfir- leitt traustari aðilar en aðrir. Þeir eru vissu- lega harðir í viðskiptum, en þaö verður að hafa það í huga að þeirra sióur er að verð- leggja vöru með tilliti til þess að geta slegið af henni. Þetta felst einfaldlega í þeirri skólum gyöinga, að það sé sálfræðilega mikilvægt aö láta kaupandann standa í þeirri trú aö honum hafi tekizt aö beita hyggjuviti sínu til þess að komast aó betri samningum en næsti við- skiptavinur á undan og á eftir. Það sem hreintrúaður gyðingur tekur að sér eftir aö samkomulag hefur tekizt stenzt yfirleitt eins og stafur á bók. Þeir skilja aldrei eftir neina lausa enda og oftast taka þeir enga „óþarfa" áhættu, eins og raunar er gullin regla í viðskiþtum og skilur þau frá ,,þraski.“ Eitt ættu menn að varast í sambandi við gyðinga, — það er tilgangslaust að reyna aö skáka þeim í drykkju, ef einhverjum skyldi detta í hug slík firra. Gyðingar hafa nefnilega vakið athygli þjóðháttafræðinga og annarra vísindamanna á því að meðal þeirra gildir allt annað lögmál varðandi áfengi en með öðrum þjóðum eða trúarhópum. Meðal þeirra er of- neyzla áfengis svo til óþekkt fyrirbrigöi og þótt meðferð áfengis sé þar daglegt brauð hafa þeir allra manna mesta stjórn á sjálfum sér og fara aldrei yfir mörkin. Þetta gæti verið ágætt minnisatriði fyrir einstaka berserki ís- lenzka, sem telja sig eiga heiminn eftir nokkra sjússa. Hvað ber að varast? Harka í samningum og ofurkapp við að skáka viðsemjandanum í prútti kann að gagna hagsmunum túrista á arabísku mark- aðstorgi, en er eins líklegt til að kosta kaup- 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.