Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1978, Síða 75

Frjáls verslun - 01.11.1978, Síða 75
„Brauðin ný, ef þau eru ekki orðin vikugömul” Hjúkrunarkona gift tannlækni væri sér- staklega boöin vel- komin á Fáskrúðsfirði Á Fáskrúðsfirði vildi svo til að blaðamaður Frjálsrar Verzlunar gekk inn á skrifstofu sveitastjóra, rétt í þann mund að þar áttu sér stað mannaskipti. Helgi V. Guð- mundsson, sem verið hefur sveit- arstjóri þar, en nú er að taka við starfi sveitarstjóra á Breiðdalsvík, var að setja nýjan mann í starfið, það er Jón G. Sigurðsson. Þeir voru fáanlegir til að setjast niður andartak og spjalla. ,,Það sem fyrst kemur í hug- ann", sagði Helgi, „erauðvitað allt það sem hér vantar, en ætti að geta borið sig á svona stað. Hér vantar til dæmis alla bókhalds- þjónustu og alhliða endurskoðun- arþjónustu og er vafalaust að sú vöntun kemur illa niður á viðskipt- um hér á staðnum. Auk þess vantar hér alls konar þjónustufyrirtæki. Hér er enginn bakari og brauð í búð teljast ný, ef þau eru ekki orðin vikugömul. Ekkert þvottahús, enginn rakari og ekkert, ekkert. Hér kemur rakari frá Eskifirði einu sinni í mánuði og hann þarf ekki að auglýsa, því það sést þegar á höfðum þorpsbúa þegar hann er kominn. Þá vantar hér hjúkrunarkonu og tannlækni, helzt hjúkrunarkonu, sem væri gift tannlækni, því hús- næði er af skornum skammti og aldrei verra að spara það. Kaupfélagið með almennar vörur og sérdót Verzlun og viðskipti eru blómleg á staðnum. Kaupfélagið er ákaf- lega umsvifamikið. Rekur tvær verzlanir með almennar vörur, svo og sérverzlanir með málningar- vörur og fleira sérdót og jafnframt bókabúð. Það er nú búið að steypa undirstöðu að feikna stóru verzl- unarhúsi, sem kemst vonandi í gagniö sem fyrst. Auk verzlunar rekur kaupfélagið tvo togara, hraðfrystihús og bræðslu. Hér, eins og víða, er nokkuð al- hlióa skortur á menntuðu fólki, jafnt í viðskiptalífinu, sem öðrum þáttum lífsins. Jafnframt háir okk- ur skortur á vinnuafli almennt. Æskilegt væri að fjölbreytni gæti orðið meiri í atvinnulífinu og hefur verið rætt um að koma á léttum iðnaði, í sambandi við trésmiðjuna sem hér er. Hún er stærsta iðnfyr- irtækið á staðnum og stundar bæði bátasmíði og húsbyggingar, auk þess að reka vísi að bygg- ingavöruverzlun. Þá rekur hún vélsmiðju og önnur slík er hér á vegum kaupfélagsins. Tólf nýjum lóðum úthlutað Hér er allnokkur uppbygging. Á árinu hefur verið úthlutaö tólf lóð- um. Nýlokið er byggingu verka- mannabústaða og nú er verið að hefja framkvæmdir við leigu- íbúðablokk. Landsbankinn hefur fengið lóð fyrir bankabyggingu og fer hann vonandi af stað fljótlega. Annars eru það þessi atriði, sem athuga þarf, áður en hugað er að nánari uppbyggingu atvinnu- og viðskiptalífs á staðnum. Nauðsyn- leg þjónusta fyrir þau viðskiptafyr- irtæki sem hér eru eða hingað koma þarf að verða fyrir hendi, bókhalds- og endurskoðunarskrif- stofa fyrst og fremst. Svo þarf að finna leið til að hafa fyrir hendi þá þjónustu, sem fólkið sjálft vill geta gengið að, þannig að brauðin frá því í fyrradag verði ekki lengur tal- in alveg glæný." Maður kemur í manns stað. Sveitarstjóraskipti á Fáskrúðsfirði fest á mynd. Jón G. Sigurðsson tekur við af Helga Guðmundssyni, t.h. 75
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.