Frjáls verslun - 01.05.1979, Síða 66
Anders Helgstrand við forstjóraborðið t Kaupmannahöfn. Hann situr líka við og við í flugstjórasætinu í
Boeing 727 — 200 þotum Sterling Airways.
AÆTLUNARFLUGFELOGIN
— segir Anders Helg-
strand, flugstjóri og
forstjóri leiguflug-
félagsins Sterling
Airways í Danmörku
— Upphaf Sterling Airways var
mjög einfalt mál, sagöi Helgstrand.
Félagið var stofnað af séra Kro-
ager, sem byrjaði hópferðarekstur
sinn á árunum 1950—51. Hann
var búinn að hafa samninga um
leiguflug við danska flugfélagið
Nordair og Flying Enterprise síðan
1959—60 og vildi gerast hluthafi í
Nordair. Þeir sögðu hins vegar nei.
Séra Kroager sagðist þá verða aö
stofna eigiö flugfélag, því aö hann
vildi leggja til sjálfur alla þætti
þjónustunnar við viðskiptavini
sína til að halda verði eins langt
niðri og mögulegt var. Hann var
sérfræðingur á þessu sviði og
hafði það skapaö honum mikil
viöskipti. Hann átti t.d. sjálfur alla
langferðabílana, sem notaðir voru
íferðum á hans vegum. Vorið 1962
varð Sterling til. Kroager keypti
tvær notaðar flugvélar af gerðinni
DC-6B af Swissair, sem voru tekn-
ar í notkun í júlímánuði sama ár.
Þá gat Kroager ekki séð okkur fyrir
neinum flutningi vegna langtíma-
samninga við Nordair, svo að hann
gaf okkur frelsi til að leita eftir við-
skiptum við aðra. Stefna hans var
sú, að það væri nákvæmlega sama
fyrir hverja við flygjum, svo fram-
arlega sem félagið skilaði hagn-
aði. Allt frá upphafi höfum við þess
vegna flutt farþega fyrir keppi-
nauta séra Kroagers, allt aö 50% af
heildinni á móti 50% fyrir Tjære-
borg, sem er ferðaskrifstofa Kro-
agers.
Sp.: — Hvernig hefur þróunin í
uppbyggingu flugvélaflota félags-
ins verið?
Sv.: — Við vorum fyrsta leigu-
flugfélagiö í Evrópu, sem festi
kaup á nýsmíðuðum þotum. Það
var árið 1965 að viö tókum fyrstu
Super Caravelle-vélarnar í notkun.
Núna notum við fimm vélar af
gerðinni Boeing 727-200A, sem er
með sæti fyrir 185 manns, sjö
Super Star Caravelle, en sú vél er
með 121 sæti, og svo sex Super
Caravelle, sem eru með 109 sæti
hver. Að auki eigum við þrjár smá-
vélar til leiguflugs fyrir fyrirtæki og
stofnanir í skemmri ferðum. Þetta
eru nýrri vélar en keppinautar
okkar á leiguflugsmarkaði al-
mennt nota, sú elzta frá 1969, og
þær upþfylla nýjustu kröfur, sem
gerðar hafa veriö varðandi há-
vaðamengun við flugvelli. Það er
líka til mikils hagræðis fyrir okkur
að vélarnar eru búnar sömu teg-
60