Frjáls verslun - 01.12.1979, Blaðsíða 11
flogið til Gautaborgar skv. vetrar-
áætlun 1979/80, en gert ráð fyrir
vikulegu flugi á sumri komanda og
aðstöðu á flugvelli fyrir afgreiðslu
flugvéla og farþega.
Lokun söluskrifstofunnar í
Gautaborg er liður í varnaraðgerð-
um sem boöaðar voru í upphafi
pessa árs og miða að hagræðingu í
rekstri.
Söluskrifstofa félagsins í Gauta-
borg hefur frá upphafi haft þá sér-
stöðu að mikið af þeirri starfsemi
sem þar hefur átt sér stað hefur
verið sala á farmiðum í Atlants-
hafsflug félagsins, þ.e. til Banda-
ríkjanna, og þá á lægstu fargjöldum
sem í gildi voru hverju sinni. Vegna
lélegrar afkomu þessa flugs hefur
sætaframboð á flugleiðum þessum
verið stórminnkað frá því sem áður
var. Ohagkvæmt er fyrir félagið að
halda áfram starfsemi á þessum
grundvelli.
Rekstur Sambandsins
Á fundi kaupfélagsstjóra fyrir
nokkru vék Erlendur Einarsson
forstjóri að rekstri SamPandsins
fyrstu níu mánuði þessa árs. Gat
hann þess, að umsetningin þetta
tímaPil væri um 70,4 milljarðar, sem
væri um 60% aukning. Á þessum
tíma hefðu tekjur aukizt um 67%, en
gjöld hefðu á hinn bóginn vaxið um
72%. Hann ræddi nokkuð einstaka
kostnaðarliði, og m.a. kom fram, að
vextir hafa hækkaö um 87% eða
rúmar 900 milljónir. Af öðrum liðum
nefndi hann m.a. olíu til skipa, sem
hefði hækkað um 307 millj., og orku
og annan kostnað í Iðnaðardeild,
sem hefði hækkaö um 464 millj.
Síðan vék hann að smásölu-
verzlun kaupfélaganna, en hann
taldi að smásöluverzlun í dreifbýli
ætti enn svo mjög í vök að verjast,
að það kallaði mjög ákveðið á leið-
réttingar. Sömuleiðis taldi hann, að
fyrirsjáanlegt væri að erfiðleikar
væru framundan í fjármálum. Auð-
séð væri, að vandamál landbún-
aðarins myndu skapa verulega
erfiðleika á því sviði hjá kaupfélög-
unum, sem aftur myndu endur-
speglast hjá samvinnuhreyfingunni
í heild. Af þeim sökum meðal ann-
ars taldi hann brýnt að taka málefni
peningastofnana samvinnuhreyf-
ingarinnar, þar á meðal innláns-
deildanna og Samvinnubankans, til
skoðunar og vinna að því með öll-
um ráðum að efla þessar stofnanir.
Kalda bordid
í Blómasalnum
Bjóðið viðskiptavinum í kalda borðið í hádeginu
eða upp á fjölbreyttan matseðil í Blómasal.
Munið hin vinsælu skemmtikvöld með dagskrám
tileinkuðum ýmsum þjóðlöndum nær og fjær og
girnilegum sérréttum.
Verið velkomin í gistingu og mat
HÓTEL
LOFTLEIÐIR