Frjáls verslun - 01.12.1979, Qupperneq 48
byggd
Sparisjóöurinn er
stærstur í Hafnarfirði
af peningastofnunum
I Hafnarfirði eru 4 peninga-
stofnanir er stunda bankastarf-
semi. Það er Sparisjóður Hafnar-
fjarðar, Iðnaðarbankinn, Sam-
vinnubankinn og Útvegsbankinn.
Sparisjóðurinn er stærstur bank-
anna og auk aðalstöðva hans við
Strandgötuna, rekur hann eitt úti-
bú við Reykjavíkurveg og hyggst
opna annaö í suðurbænum áður
en langt um líður. Hinir bankarnir
eru aftur á móti útibú frá aðal-
bönkunum í Reykjavík.
Sparisjóður Hafnarfjarðar (Ssj.
Hf.) var stærsti sparisjóður lands-
ins um síðustu áramót. Á árinu
1978 námu innlán hjá honum
3.145 milljónum króna en fram í
miðjan desember þessa árs hafði
sú tala hækkað í 4.660 milljónir
króna og er hér um 48.2% hækkun
að ræða. Það skal tekið fram að
þegar þessar tölur voru gefnar
upp var rúmur hálfur mánuður eftir
af árinu. Útlán á árinu 1979 voru
þannig að lán til einstaklinga og
fyrirtækja námu 3.230 milljónum
króna en bundið fé var 1.230 mill-
jónir króna.
Guðmundur Guðmundsson,
sparisjóðsstjóri, og aðstoðarmað-
ur hans, Þór Gunnarsson tjáðu FV
að útlán hefðu mikiö aukist eftir því
sem leið á þetta ár. Þeir tóku fram
að verktaka- og byggingafyrirtæki
stæðu fjárhagslega mjög höllum
fæti um þessar mundir þó að
sennilega væri ástandiö í þeim
málum betra í Hafnarfirði heldur
en annarsstaöar á landinu.
Sem svar við þeirri spurningu
hverju Sparisjóðurinn ætti helst að
þakka velgengni sína svöruðu þeir
því til að þeir hefðu aðstoðað við-
skiptavini sína til hins ítrasta og
þaö hefðu viðskiptavinirnir kunn-
að að meta. Þeir reyndu að hjálpa
sem flestum, hvað þeir gætu, þrátt
fyrir að þeir hinir sömu hefðu kan-
nski ekki átt mikil innlán. En hvað
meö fyrirgreiðslu við þá sem ekki
ættu innlán en ætluðu t.a.m. að
flytja eða fjárfesta í Hafnarfirði?
,,Nýir Hafnfirðingar fá fyrir-
greiðslu fljótlega hjá okkur en
samt ekki fyrr en þeir eru fluttir í
bæinn og hafa búið þar nokkurn
tíma og sýnt viðskipti við Ssj. Hf.
Þá má nefna að nú hefur verið
tekiö upp samstarf á milli spari-
í afgrelfislu Sparisjóðs Hafnarfjarfiar.
48