Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 67
Þessi ugla var teiknuð af danska
teiknaranum Erik Ellegaard Fred-
eriksen og er notuð sem tákn
danskra, sænskra og svissneskra
bóksala. Þess má geta að ugla er
einnig merki Menntaskólans á
Akureyri.
Svanurinn erfallegurfugl og hefur
verið tákn óteljandi fyrirtækja og
vörutegunda um allan heim. Sem
dæmi má nefna að svanurinn
hefur verið tákn Félags danskra
hreingerningamanna um áratuga
skeið.
SWAN
VESTAS
Swan Vestas eldspýtur nota þetta
tákn og á eldspýtustokknum
stendur „Bjargaðu svaninum,
þessi stokkur er eins pennys virði
fyrir fuglaverndarfélagið“ (the
Wildfowl Trust).
Krókódílar eru ekki sérlega vina-
legar skepnur, en samt er það svo
að fólk greiðir stórfé fyrir það eitt
að hafa krókódíl á skyrtu eða bux-
um á sportfatnaði, þó að fötin séu
að öðru leyti eins.
Þessi krókódíll gefur til kynna að
fötin séu frá Chemin Lacoste, sem
þykir ákaflega fínt og eini maður-
inn, sem ekki þarf að borga fyrir
merkið, en fær þess í stað borgað,
er Björn Borg.
Hlébarðar eru ekki heldur vina-
legar skepnu^ en margir vildu þó
hafa þennan fyrir augunum, þegar
þeir aka um götur borgarinnar.
I 45 ár hefur þessi hlébarði skreytt
nefið á Jaguarbílunum bresku,
sem hafa alla tíð þótt hinir ágæt-
ustu bílar, þó að fáir hafi borist
hingað til lands.
íslensk dýramerki eru oft mjög
skýr. Gott dæmi um það er merki
fyrirtækisins Bústólpa á Akureyri.
Þessi bangsi hefur lengi verið
vörumerki Solido hf. fyrirbarnaföt,
sem fyrirtækið framleiðir.
Þessi sexfætti hundur spúir eldi.
Fyrirtækið flytur inn kjarnfóður
fyrir búfénað og það fer ekkert á
milli mála hvaða búfénað er átt við.
En það eru fleiri fyrir norðan.
Þetta er merki Bautans á Akureyri,
sem leggur áherslu á nautakjöts-
rétti. Ætla mætti af merkinu að þeir
veiddu nautin í einhverju nautaati.
Þetta er merki alifuglabúsins Fjör-
eggs á Svalbarðsströnd, sem
framleiðir kjúklingaafurðir í
stórum stíl, sem vart fer á milli
mála af merkinu.
Birnirnir eru ekki algengar
skepnur á íslandi, en mörg börn
eiga þó bangsa.
Hann er tákn ítalska olíufélagsins
AGIP og skreytir mikinn fjölda
bensínstöðva um alla Ítalíu. Ekki er
vitað hvaðafæti hann lyftirvið Ijósa-
stauraog þúfur.
Allmörg fiskiðnaðar- og fisk-
veiðafyrirtæki nota fiska í merkj-
um sínum, flest einfaldlega
mynd af þorski eða ýsu.
Rækjuver á Bíldudal notar mynd af
rækju, sem vissulega er ekki fjarri
lagi, miðað við starfsemi fyrir-
tækisins.
Algengt er að reynt sé að ná mörg-
um hugmyndum inn í sama merk-
ið. Náttúruverndarráð ætlar ekki
að missa af neinu.
Hér er lauf og inn í það teiknaðir
fiskurog fugl.