Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 75

Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 75
Þrjú af efstu félögunum á tossalist- anum Alitalia, Iberia og Aeroflot eru hvergi nefnd á nafn á listanum yfir vin- sælustu félögin. Staöa þeirra er því enn lakari fyrir vikið. Öll efstu félögin á vinsældalistanum koma hér aftur á móti líka viö sögu nema Swissair, efsta félagið á lista alþjóölegu farþeganna og Singapore Airlines, nýja stjarnan. Staöa þeirra er enn glæsilegri fyrir vik- ið. Þaö má því álíta sem þjónusta þessara tveggja félaga taki fram þjón- ustu keppinautanna. Þeirri þjónustu virðist heldur ekki kastaö á glæ. aö minnsta kosti ekki hvað Swissair viö- víkur. Samkvæmt blaðafregnum ný- lega, er þaö eina flugfélagiö, sem skilar viöunandi hagnaði á Noröur-Atlants- hafsleiöinni. Swissair á það að nokkru leyti sam- eiginlegt Singapore Airlines aö leggja áherslu á farþega í viðskiptaerindum frekar en ferðalanga, sem komast vilja á milli staöa á ódýrasta hátt. Viö- skiptafólkið vill feröast þægilega og er fúst til aö láta fyrirtæki sín borga það, sem slíkur ferðamáti útheimtir Þessi markaöur er flugfélögunum líka traustari, því hækkun á flugfargjöldum og efnahagskreppur valda mun minni samdrætti í viðskiptaferðum en skemmtiferðum. Flugfélögin, sem aðsetur sitt eiga í Mið-Evrópu eiga þaö sameiginlegt aö vera meöal traustustu flugfélaga í heimi. Vélar þeirra eru nýlegar, þjón- usta þeirra bæði í lofti og á láði gengur yfirleitt snuröulaust fyrir sig og áætl- anirnar eru tiltölulega lausar viö flökt. Af reynslu minni tek ég þó fúslega undir skipan Swissair í fyrsta sæti. Vélar félagsins eru sérlega snyrtilegar, um borö er þjónustuliðið á stööugu iði frá flugtaki til lendingar og matur er borinn fram á leirtaui og snæddur með stálhnífapörum. Þaö er ekki tilviljun, að Svisslend- ingar eru þekktir fyrir úrasmíði, ná- kvæmni þeirra er aö sumra mati óþol- andi. Enginn setur þó fyrir sig ná- kvæmni þeirra í flugáætlunum. Eitt sinn var mér tjáö (af Flugleiðum), aö aöeins British Airways flygi á milli Genfar og Lundúna á þeim degi, og þeim tíma, sem mér hentaði best. Mikiö sárnaöi mér, þegar ég komst aö því á flugvellinum, aö vél frá Swissair átti aö leggja af staö til Lundúna á nákvæm- lega sama tíma. Ég missti ekki einungis af rómaöri þjónustu Swissair heldur lyfti vél þeirra sér frá jörðu á nákvæm- lega áætluðum tíma um leiö og tilkynnt var um rúmlega klukkutíma seinkun hjá British Airways. Líkt og úrsmíðin og súkkulaöiframleiöslan er ferðamanna- og flugþjónustan hjá Svisslendingum í fyrsta flokki. í könnun samtaka flugfarþega var ekki aðeins athuguö afstaöa farþeg- anna til flugfélaga heldur og einnig til flugvélategunda. Vegna alls umtalsins. sem DC-10 slysiö á O'Hare flugvell- inum viö Chicago olli um það leyti, sem könnunin var gerö, var þó horfið fr^ því aö birta niöurstöður. I könnuninni 1977 aftur á móti kom í Ijós, að Boeing 727 var lang vinsælust á styttri flugleiðum en Boeing 747 og DC-10 vinsælastar á þeim lengri. ( nýjustu könnuninni kom í Ijós, aö bandarískir farþegar hafa lang oftast flogið meö Boeing 727, síöan DC-10, Boeing 707 og loks Boeing 747. Á alþjóðaflugleiöum höföu menn oftast notast viö eftirtaldar vélar: 1. Boeing 747 2. Boeing 727 3. DC-10 4. Boeing 707 5. DC-8 6. DC-9 7. Boeing 737 8. Tristar 9. Airbus 10. Concorde Bæöi Airbus og Concorde höföu hækkað verulega á listanum síðan í könnuninni 1966. En hversu mikla áherslu leggja þeir, sem mest ferðast á að fljúga meö ákveðnum flugfélögum eöa ákveðnum flugvélategundum? Þegar ákveöiö flug er valið, reyndust aörir þættir mun mikilvægari: 1. Beintflug 2. Hentugur brottfarartími 3. Hentugur komutími 75

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.