Frjáls verslun - 01.03.1982, Side 60
Tjaldvagnlnn kominn í áfangastað í Atlavík í Hallormsstaða-
skógi á hrlngferð um landið. Birgir Þorgilsson telur að koma
þurfi tjaldmiðstöðvum á 6—8 stöðum, líkt og er í Skaftafefli.
um hylli flugfarþegans? Má vænta
stórkostlegrar aukningar erlendra
ferðamanna til fslands eða munu
flugfélögin bítast um sömu far-
þegana, sem allir hefðu fallið öðru
félaginu í skaut, ef aðeins hefði
verið um eitt félag að ræða? Mín
skoðun er sú, að samkeppni muni
hafa í för með sér nokkra fjölgun
ferðamanna til íslands, en ekki hef
ég trú á að sú aukning muni valda
byltingu í þessum málum auk þess
sem hún mun væntanlega, því
miður, verða yfir sumarmánuðina,
sem nú þegar eru orðnir mjög á-
setnir í þessu tilliti. Takist hins
vegar öðru hvoru flugfélaginu,
Flugleiðum eða Arnarflugi, aö
stórauka ferðamannastrauminn til
íslands á tímabilinu september til
maí, mun það valda byltingu í ís-
lenskum ferðamálum.
(þessu sambandi má minna á að
mikil aukning varð á ferðum Dana
og Svisslendinga hingað á síðast
liðnu ári, sem rekja má til reglu-
bundins leiguflugs milli Reykjavík-
ur annars vegar og Kaupmanna-
hafnar og Zurich hins vegar. Það
sama var uppi á teningnum fyrir
nokkrum árum, þegar Arnarflug
flaug reglubundið leiguflug frá
Dusseldorf. Þá fjölgaði þýskum
ferðamönnum til íslands árlega en
síðan það lagðist af hefur sú
aukning stöðvast. Þetta eru þrjú
atriði, sem gefa vísbendingu um
að reglubundiö leigutlug sé liklegt
til að auka ferðamannastrauminn
til íslands enda Evrópubúar, og
sömuleiðis við fslendingar sjálfir,
orðnir vanastir að þannig skuli
ferðast til sumarleyfisstaða. Ef til
vill hefði það orðið íslenskri ferða-
útgerð til meiri framdráttar að hafa
eitt flugfélag sem annaðist áætl-
unarflugið og annað sem sinnti
reglubundnu leiguflugi fyrirferða-
menn. En mikið hefur mönnum,
sem til þessa hafa starfað að
markaðsmálum og sölumálum hjá
Flugleiðum verið mislagðar hend-
ur, ef Arnarflugsmenn hafa nú
fundið þann töfrasprota á stuttum
ferli félagsins, sem leyst getur
þetta stóra vandamál íslenskrar
ferðaútgerðar.
56