Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 14
Óli Anton Bielvedt, forstjóri Nesco. Umsvif á skandinaviskum sjón-
vörpsmarkaði.
sjónvarpstæki, myndsegul-
bandstæki og fleiri tegundir
rafmagnstækja, og er nú hægt
að kaupa Nesco-sjónvarps-
tæki víða um Skandinavíu. ís-
lendingar eru með öörum orð-
um orðnir framleiðendur sjón-
varpstækja, og á þessu ári mun
framleiðsla Nesco líklega
nema nærri einum milljaröi
króna á markaðsverði, og um-
talsverður hluti þess koma
fram sem gjaldeyristekjur til Is-
lands. Framleiðsla Nesco á
fyrrnefndum tækjum fer fram á
þann hátt í stórum dráttum, að
fyrirtækið lætur hanna fyrir sig
ákveðnar geróir tækja, og sett-
ir eru uþp ákveónir staölar um
lágmarksgæðakröfur í sam-
ræmi við ákvæði í þeim lönd-
um, sem varan á aó seljast til.
Síðan er leitað tilboða í fram-
leiösluna víóa um heim, ekki
síst í Asíu þar sem vinnuafl er
ódýrt, og þegar veró liggur
þannig fyrir á vörunni er hún
boðin til kauþs á mörkuðum í
Evrópu. Nesco hefur þegar
náð stórum samningum um
sölu í kaupfélagakeðjum á
Norðurlöndunum, og ýmislegt
fleira mun vera í athugun.
Markaðshlutfall Nesco á ferða-
sjónvarpstækjum sums staðar í
Skandinavíu er allt að 20% svo
dæmi sé tekið.
Öll þessi starfsemi fer sem
áöur segir fram án þess að
Nesco reki eigin verksmiöjur
erlendis. Fyrirtækið heldurekki
umfangsmiklar skrifstofur á er-
lendri grund, heldur er starf-
semin öll rekin héðan að heim-
an, í gegnum síma- og telex-
vióskipti, og með utanferðum
eftir því sem nauðsyn krefur.
Lega (slands skiptir því engu
máli, heldur ekki gjaldeyris-
reglur hér heima, ótryggt efna-
hagsástand eða neitt slíkt, öll
starfsemin ferfram erlendis, að
því undanskildu að starfsfólk
Nesco hér heima stjórnar
framleiðslunni og sölunni um
telextæki. — í haust mun ætl-
unin að setja Nesco-mynd-
bönd á markað hér heima, og
hefur Óli Anton fullyrt aó tækin
muni verða ódýrari en sam-
bærileg tæki frá öðrum fram-
leiðendum.
Útrás á alþjóðlegan
skemmtiiðnað
Af nokkuð öðrum toga eru
tilraunir þær sem þeir Steinar
Berg (sleifsson, Guðlaugur
Bergmann og fleiri í útgáfufyr-
irtækinu Steinar hf. hafa gert
undanfarin ár, og ná nú há-
marki meó góóum árangri
hljómsveitarinnar Mezzoforte á
erlendri grund. Að baki vel-
gengni Mezzoforte víöa um
Evrópu á undanförnum mán-
uðum, liggur ekki aðeins þrot-
laus æfing og vinna hljóm-
sveitarmeðlima, heldur einnig
og ekki síður gífurleg vinna
sem Steinar hf. hefur unnið að
undanfarin ár.
Hjá Steinum hefur nú safnast
saman mikilvæg vitneskja og
reynsla í því hvernig eigi að
kynna skemmtikrafta erlendis
og koma þeim á framfæri.
Þegar popphljómsveit eöa
rokksöngvari slær í gegn í
Bretlandi, Bandaríkjunum eóa í
öðrum löndum mikils skemmt-
anaiónaóar, þá þarf venjulega
að koma til mikil heppni, klók-
indi umboðsmanna og reynsla
þeirra, og hæfileikar viðkom-
andi skemmtikrafts. Ekkert
gerist sjálfkrafa í þessum efn-
um, og hefur oft verið til þess
vitnað, að þótt The Beatles séu
nú óumdeildir listamenn um
allan heim, þá þurfti umboðs-
maður þeirra aö berjast árum
saman fyrir því að fá mikilvæga
14