Frjáls verslun - 01.03.1983, Blaðsíða 29
rekstri fyrirtækisins var tap
þess upphæð sem svarar til 42
milljóna íslenskra króna, en
þegar á fyrsta starfsári sínu
sneri Carlzon tapinu í hagnað
sem nemur 84 milljónum ís-
lenskra króna. Árið 1978 er
Carlzon var 38 ára var hann
ráðinn forstjóri Linjeflyg sem
er stærsta innanlandsflugfé-
lagið í Svíþjóð. Þar kom hið
sama upp á teninginn. Hann
sneri 88 milljón króna tapi í 30
milljón króna hagnað á einu ári
— enn er miðað við íslenskar
krónur. Þar með var Jan Carl-
zon orðiö þekkt nafn í við-
skiptalífinu í Svíþjóð, og ekki
nema von að SAS-stjórnin
renndi til hans hýru auga. Árið
1981 var hann ráóinn forstjóri
félagsins og enn sneri hann
tapi í hagnað. Árið 1981 nam
tapið hjá SAS upphæð sem
svarar til 183 milljóna íslenskra
króna, en 1982 var rekstrarút-
koman 1.570 milljónir í hagnað.
Fyrsta spurningin sem Frjáls
verslun lagði fyrir Jan Carlzon
var um afkomu SAS á árunum
1980 og 1981, og hvort fyrir-
tækið hefði verið illa á vegi statt
fjárhagslega þegar hann tók
við því.
JC: SAS átti við ýmis vanda-
mál að stríða sem algeng eru
núa tapi í hagnað—Hvernig?
spurningar um hann sjálfan og
rekstur SAS.
Jan Carlzon lauk MBA prófi
frá Stokkhólm School of
Economics árið 1967. Árið
1974, þegar hann var 33 ára,
var hann ráðinn forstjóri
Vingresor/Club 33, sem var þá
stærsta hópferðaskrifstofa
Svíþjóðar. Þar tókst Jan Carl-
zon rækilega að sanna hæfi-
leika sína. Hann sneri rekstri
fyrirtækisins algjörlega við.
Árið áður en hann tók við
hjá fyrirtækjum sem eiga í
rekstrarerfióleikum. Salan var
minnkandi, framboð fyrirtæk-
isins á þjónustu á undanhaldi
og neikvæður andi orðinn ríkj-
andi í garð fyrirtækisins, bæði
utan þess og meðal starfs-
29