Frjáls verslun - 01.04.1985, Blaðsíða 24
FLUGREKSTUR
Flugleiðir auka enn á
þjónustu á SAGA-CLASS
FLUGLEIÐIR tóku upp þá ný-
breytni í flugvélum sínu á síð-
asta ári að farrýmaskipta þeim
á ákveönum leiðum, þannig aö
hægt yrði að veita þeim farþeg-
um félagsins sem hæst greiða
fargjöldin aukna þjónustu. Þetta
mæltist mjög vel fyrir og hefur
tilraunin gefið mjög góöa raun
að sögn Sæmundar Guðvins-
sonar, fréttafulltrúa Flugleiöa.
Því var ákveðiö að bæta við
fieiri flugleiðum í sumar, þar
sem farrýmisskiptingin er. í til-
efni þess buðu Flugleiðir nokkr-
um blaðamönnum að kynna sér
þessa þjónustu á flugleiðinni
milli íslands og Glasgow á dög-
uum.
I ferðinni upplýstu fulltrúar fé-
lagsins að i sumar verður
SAGA-CLASS farrými i milli-
landavélum félagsins á mun fleiri
leiðum en áður eins og áður
sagði. Fram til þessa hefur
SAGA-CLASS farrými eingöngu
verið i áætlunarflugi til Norður-
landa og Bretlands, en nú bætast
við fleiri áfangastaðir i Evrópu og
Bandarikjunum. Farrýmisskipting
verður i sumar á flugleiðum til
Glasgow, London, Kaupmanna-
hafnar, Stokkhólms, Gautaborg-
ar, Oslóar, Bergen, Frankfurt og
Salzburg, en Boeing þotur fé-
lagsins halda uppi flugi á þessa
staði. í sumar verður ein DC-8
þota félagsins einnig notuð til
áætlunarflugsins milli íslands og
Evrópulanda, auk beinna ferða
milli Islands og New York.
SAGA-CLASS farrými verður
einnig i þessari vél og mun hún
þá hafa sæti fyrir um 240 far-
þega. Fram til þessa hefur ekki
24