Frjáls verslun - 01.04.1989, Qupperneq 5
RITSTJÓRNARGREIN
PENINGAVALD LAUNÞEGAHREYFINGARINNAR
Nú á tímum mikillar umræðu um slæma afkomu
atvinnurekstrar hér á landi sem endurspeglast í
versnandi eiginfjárstöðu fyrirtækja er ekki að
undra þó menn líti í kringum sig og spyrji hvar
peningavaldið í landinu sé niður komið.
Því verður ekki svarað á einfaldan hátt og víst er
að það vald dreifist víða þó misskipt sé. Oft er bent á
að mikið peningavald hafi safnast saman í lífeyris-
sjóðunum en um síðustu áramót var hrein eign
þeirra talin nema 73 milljörðum króna. Forystu-
menn launþega og atvinnurekenda hafa stjórn líf-
eyrissjóðanna sameiginlega á hendi. Ríkisvaldið
hefur í vaxandi mæli sóst eftir að hafa áhrif á starf-
semi sjóðanna, m.a. til að beina ráðstöfunarfé
þeirra inn í húsnæðislánakerfið.
Viðskipti lífeyrissjóðanna skipta einstaka banka
miklu máli og sjóðirnir hafa í vaxandi mæli farið út í
að kaupa hlutabréf í vænlegustu almenningshluta-
félögum landsins, m.a. einkabönkunum. Engum
dylst að í lífeyrissjóðunum er saman komið mikið
peningavald á mælikvarða okkar litla þjóðfélags.
En hvað um launþegafélögin sjálf? Skyldi verka-
lýðshreyfingunni hafa tekist að safna auði?
Leitast er við að svara þessum spurningum hér í
blaðinu. í ljós kemur m.a. að áætluð hrein eign
Iaunþegahreyfingarinnar nemur 6-8 milljörðum
króna. Einnig kemur fram að bókfærð eiginfjárst-
aða allra einkabankana í landinu nam 2,5 mill-
jörðum í árslok 1988. Þannig er fjárhagslegur
styrkur verkalýðshreyfingarinnar þrefaldur á við
einkabankanna svo dæmi sé tekið til samanburðar.
HVAÐ KOSTAR EINBÝLISHÚS?
Frjáls verslun birtir að þessu sinni sérefni um
húsbyggingar. Bæði er fjallað um þætti sem snerta
íbúðarhúsnæði og atvinnurekstrarhúsnæði.
Blaðið birtir athyglisverða grein eftir Jón Kaldal
byggingarfræðing þar sem spurt er þeirrar áleitnu
spurningar: Hvað kostar að byggja einbýlishús?
Þar kemur fram að byggingarkostnaður við með-
alstórt einbýlishús á einni hæð nemur 14-15 mill-
jónum króna. Þá er ekki um neinn íburð að ræða og
miðað er við ódýra lóð. Sama stærð af húsi en í
dýrari útgáfu og á eftirsóttri lóð væri fljótt komið
yfir 20 milljónir króna. Sé hins vegar ráðist í að
byggja 300 fermetra tvílyft hús er trúlegt að bygg-
ingarkostnaðurinn fari í 25 - 30 milljónir króna.
Þessu eiga ýmsir erfitt með að trúa og margir
þeirra sem reist hafa einbýlishús í þessum verð-
flokki vilja sem minnst heyra um byggingarkostn-
aðartölur af þessu tagi.
Það er ef til vill ekkert undarlegt.
m pm
liL LlJ jLm
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon - RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Frjálst framtak hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasími 31661 - RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18, sírni 685380 -
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 1.975 kr. (329 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 399 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: Prentstofa G. Benediktssonar — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5