Frjáls verslun - 01.04.1989, Page 22
upplýsingar um fjárhag félaganna.
Sum félög kjósa að gera slíkar upp-
lýsingar mjög aðgengilegar og gefa
ársreikninga út í fréttabréfi eða sér-
stakri skýrslu. Fleiri brugðust þó við
fyrirspurnum blaðsins af fyllstu tor-
tryggni og neituðu sumir beinlínis að
veita aðgang að reikningum án þes að
rökstyðja það frekar. Formaður
Dagsbrúnar í Reykjavík vísaði blaða-
manni á dyr með þeim orðum að
Fijáls verslun fengi síðust fjölmiðla
aðgang að ársreikningum félagsins.
Slík viðbrögð eru heimóttarleg og
lýsa skilningsleysi. Frjáls verslun
birtir reglulega mikilvægar tölulegar
upplýsingar um stöðu stærstu fyrir-
tækja landsins. Ekki er síður mikil-
vægt að fyrir liggi upplýsingar um
íjárhagsstöðu anarra aðila sem miklu
ráða um þjóðarhag, þar á meðal
verkalýðshreyfingarinnar. Forystu-
menn verkalýðsfélaga ættu að sjá
sóma sinn í að taka þátt í slíkri upp-
lýsingastarfsemi í stað þess að fara
með ofur eðlilegar upplýsingar eins
og hernaðarleyndarmál.
FASTEIGNIRNAR
Skrifstofu- og félagshúsnæði eru
að öllum líkindum þær fasteignir sem
launþegarhreyfingin á mest af. Ætla
má að sú eign nemi að minnsta kosti
tveimur og hálfum milljarði.
Af eignum í Reykjavík ber hæst
eignir opinberra starfsmanna við
Grettisgötu, en hlutur þeirra í Grett-
isgötu 79 er metinn á um 85 milljónir
króna. Önnur glæsileg bygging er
Skipholt 50a, sem er í eigu starfs-
mannafélagsins Sóknar og verka-
kvennafélagsins Framsóknar. Þar er
um að ræða skrifstofuhúsnæði félag-
anna, fundaraðstöðu, heilsubótarstöð
og fleira. Eignarhlutur félaganna
tveggja er samkvæmt brunabótamati
tæplega 70 milljónir króna. Sjó-
mannafélag Reykjavíkur og Dagsbrún
eiga saman Lindargötu 9, húseign
sem samkvæmt brunabótamati er
andvirði um 70 milljóna króna. Af öðr-
um byggingum má nefna hlut ASÍ í
Grensásvegi 16, húseign Félags
bókagerðarmanna að Hverfisgötu 21
og sameignir félaga að Lágmúla 7,
Skólavörðustíg 16 og víðar. Ekki má
gleyma húsi iðnaðarmannafélaganna
að Suðurlandsbraut 30 og eignarhlut
VR í húsi verslunarinnar.
Þá hefur Dagsbrún verið úthlutað
lóð við Borgartún 1 í Reykjavík, þar
sem nú er bflasalan Bflakaup. Dags-
brún hefur leitað til verkalýðsfélaga
og lífeyrissjóða um samvinnu vegna
byggingar nýs Alþýðuhúss á þessari
lóð, en engar ákvarðanir hafa verið
teknar. Gerðar hafa verið útlitsteikn-
ingar sem gera ráð fyrir myndarlegu
húsi. Frumkostnaðaráætlanir gera
ráð fyrir að byggingin komi til með að
kosta nálægt einum milljarði króna.
Næststærsti hluti fjármuna laun-
þegahreyfingarinnar liggur í orlofs-
húsum og tengdum byggingum. Ætla
má að hún eigi um 400-500 orlofshús
og -íbúðir vítt og breytt um landið.
Stærsta orlofshúsaþyrpingin er að
líkindum orlofshús BSRB í Munaðar-
nesi og Stóru-Skógum, sitt hvorum
megin við þjóðveginn í Norðurárdal.
Þar eru um 100 hús og svipaður fjöldi
er í Húsafelli, þar sem nokkur félög
eiga orlofshús. Víðar eru miklar húsa-
þyrpingar, svo sem í Ölfusborgum, í
Svignaskarði, á Laugarvatni og á
Héraði.
Það verður æ vinsælla hjá verka-
lýðsfélögum í Reykjavík að kaupa or-
lofsíbúðir á Akureyri og jafnvel er litið
til ísafjarðar í framhaldi af því. Hitt
færist einnig í aukana að verkalýðsfé-
lög úti á landi kaupi íbúðir í Reykjavík,
sem nýtast þeim sem brýn erindi eiga
þangað.
Að auki eiga verkalýðs- og stéttar-
félög aðrar tegundir fasteigna, svo
sem orlofslönd og jafnvel bújarðir.
HLUTABRÉF
Verkalýðs- og stéttarfélög eiga
hlut í nokkrum bönkum. Fyrstan skal
telja Alþýðubankann, en 15 félög og
lífeyrissjóðir þeirra eiga um 75%
hlutabréfa í honum. Dagsbrún á tæp
10%, að nafnverði um 22 milljónir
króna. Verkakvennafélagið Fram-
sókn á litlu minna og sameiginlegur
lífeyrissjóður beggja önnur 7%. Eigið
fé Alþýðubankans var 306 milljónir
króna á síðasta ári.
Launþegafélög hafa fjárfest í fleiri
bönkum: Samvinnubanka, Verslunar-
banka og Iðnaðarbanka. Að auki eiga
nokkur félög hlut í Eimskipafélagi ís-
lands frá gamalli tíð og ekki er óal-
gengt að verkalýðsfélög úti á landi
eigi hlut í helstu atvinnufyrirtækjum í
heimabyggð sinni.
LAUNÞEGAHREYFINGIN:
ER ÞREFALT RÍKARI
EN EINKABANKARNIR
Til að freista þess að átta sig betur á
fjárhagslegum styrk verkalýðs-
hreyfingarinnar er fróðlegt að bera
hreina eign hennar saman við at-
vinnufyrirtæki.
Yfirleitt er litið svo á að bankamir
þyki öflugar stofnanir. En launþega-
hreyfingin er með þrefalda eiginfjár-
stöðu á við einkabankana fjóra! í
árslok 1988 var bókfært eigið fé
þeirra sem hér segir: Iðnaðarbank-
inn 950 millj.kr., Verslunarbankinn
660 millj.kr., Samvinnnubankinn
587 millj.kr. og Alþýðubankinn 305
millj.kr. eða samtals 2502 millj.kr.
En eiginfjárstaða launþegahreyfing-
arinnar er talin vera 6-8 milljarðar
króna eins og hér kemur fram.
Annað dæmi má nefna. Bókfærð
eiginfjárstaða þriggja helstu fyrir-
tækja landsins, Flugleiða, Eimskips
og SÍS, er um 7 milljarðar samtals.
Staða þeirra samtals er því svipuð
og eignastaða launþegafélaganna í
heild.
í ljósi þessa er fróðlegt að velta
því fyrir sér hvar peningavaldið er í
þessu landi.