Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 52
GOLF
x-xvxvx-x-xvx-xxvx-
Teppabúdin Suðurlandsbraut 26.
gólfið né bóna dagsdaglega. Þetta eru
þykkir og mjúkir dúkar, 3 og 4 mm
þykkir og eru seldir í tveggja, þriggja
og fjögurra metra rúllum. Þessir dúk-
ar fást í um sextíu litum og kosta 4
mm dúkamir 1185 kr. hver fermetri
en 1090 kr. hver fermetri af 3 mm
dúkunum.
Teppin eru flutt inn frá hinum ýmsu
löndum, m.a. Danmörku, Þýska-
landi, Belgíu, Hollandi, USA og Kan-
ada. Mest hefur verið keypt af
dönsku Weston teppunum sem eru
með sérstakan gúmmíbotn og henta
því vel á álagsfleti. Verðbilið á tepp-
um er mikið og í fullu samræmi við
gæðabilið. Að sögn Jóns er hægt að fá
ódýr bráðabirgða teppi - filt-teppi - á
375 kr. hvem fermetra en þau em til í
sex litum. Ódýrustu límbundnu tepp-
in eru frá 700 kr. fermetrinn, teppi
sem duga í 3-6 ár. Meðaldýr teppi
kosta 1000-1500 kr. fermetrinn en
mjög efnismikil og góð teppi kosta allt
að 3000 kr. fermetrinn. Islensku Ála-
foss-teppin fást í sex mismunandi lit-
um og kosta þau algengustu um 4000
kr. fermetrinn með filter og listum,
þ.e. komin á gólf, en hægt er þó að fá
mun ódýrari gerðir, þ.e. á um 2000
kr. fermetrinn.
Teppabúðin flytur inn norska park-
etið Boen og fæst það í 16 mismun-
andi tegundum. Verðið er frá um
2600 kr. fermetrinn og upp í 3200 kr.
Þess ber að geta að svampfilter kost-
ar 130 kr. fermetrinn og parketlistar
eru á 220 kr. lengdarmetrinn.
Flísamar sem em á boðstólum í
versluninni er frá ítahu og Spáni.
Þetta em keramíkflísar og eru al-
gengustu stærðir á gólf 30x30 sm og
20x20 sm en á vegg 20x25 sm og
15x20 sm. Flísar kosta frá 1420 kr.
fermetrinn upp í 2500 kr.
EGILL ÁRNAS0N
Verslunin Egill Árnason, Ármúla 8,
selur parket og granít á gólf. Að sögn
Birgis Þórarinssonar eiganda versl-
unarinnar selja þeir aðallega sænskt
parket frá Kahrs og er eik vinsælust
þó alltaf sé mikið tekið af beyki, aski
og hlyn. Nú hefur aukist að keypt sé
dekkra parket, s.s. merbau og gegn-
umlituð eik. Skipta má parketinu frá
Agli Árnasyni í íjóra flokka. í fyrsta