Frjáls verslun - 01.04.1989, Side 55
teppin eru til í fjölbreyttu litaúrvali en
þau eru strengd á grind - ekki límd á
gólfið. Verðið er frá 3000 kr. hver
fermetri og upp í 6000 kr. en þessi
teppi geta enst í allt að 30 ár.
Dönsku teppin heita Gram og eru
eingöngu úr gerviefnum. Fimm ára
ábyrgð er á Gram-teppunum frá
framleiðanda. Fjölbreytt úrval er til af
þessum teppum en það sem ekki er til
á lager er sérpantað og tekur það um
tvær vikur. Þessi teppi eru með
áföstu undirlagi og eru límd beint á
steininn. Ódýrustu teppin kosta um
1000 kr. hver fermetri en þau dýrustu
kosta 3000 kr. hver fermetri.
BYK0
Verslunin BYKO í Kópavogi selur
flísar, dúka og parket. Að sögn Arnar
Bragasonar hjá BYKO eru flísamar
allar ítalskar en mest er selt af flísum
frá Emil og Grohn. Á boðstólum eru
bæði keramíkflísar og steinflísar og
eru þær til í ýmsum litum, stærðum
og gerðum. Ódýrustu gólfflísamar
kosta 1400 kr. hver fermetri en þær
dýrustu em á 2600 kr. Veggflísar er
hægt að fá ódýrastar á 840 kr. hvern
fermetra en dýrast eru þær á um 1700
kr. hver fermetri. Einnig er til ítalsk-
ur marmari, sem reyndar er sérpant-
aður í flestum tilfellum, og kostar
hann frá 4000 kr. hver fermetri og
upp í 6000 kr.
BYKO selur dúka frá mörgum
löndum en mest er keypt af fmnsku
Nokia-dúkunum en einnig eru ýmsir
dúkar frá Hollandi, Svíþjóð og Þýska-
landi vinsælir. Dúkarnir fást í 2-2.5
mm þykktum, einlitir eða mynstraðir
t.d. parketmynstraðir eða kork-
mynstraðir. Ódýrustu dúkamir kosta
560 kr. hver fermetri en þeir dýrustu
fást fyrir 1100 kr. hver fermetri.
í BYKO er hægt að kaupa norska
Langmoen-parketið. Mest er tekið af
beyki, eik og aski en þetta eru 15 mm
krosslímdar parketplötur. Spónninn,
þ.e. slitflöturinn sjálfur, er 4 mm
þykkur og er um að ræða fimmfalda
brennda lakkáferð. Til er valið og
óvalið parket og kostar það ódýrasta
2484 kr. hver fermetri en það er óva-
lið beyki, eik eða askur en dýrasta
parketið er úr furu og kostar það 3187
kr. hver fermetri. Einnig er til „plank-
elit“ en það er pressaður spónn sem
mikið er tekinn á bamaherbergi og í
sumarbústaði og kostar fermetrinn
1220 kr. en bara er um eina áferð að
ræða.
/ /
Fleiri Islendingar kunna á Opus en
nokkurn annan viðskiptahugbúnað
□ vegna þess að fleiri en 600 fyrirtæki nota Ópus viðskiptahugbúnað frá
Islenskri forritaþróun sf. í daglegum rekstri.
□ vegna þess að Ópus er notaður við tölvubókhaldskennslu hjá Háskóla
Islands, Verzlunarskóla íslands og fjölmörgum öðrum framhaldsskólum.
Ópus er öruggur og sveigjanlegur í notkun og honum fylgja skýrar hand-
bækur. Á bak við Ópus er öflugt fyrirtæki með vel þjálfuðu og reyndu
starfsfólki. Sérstök þjónustudeild okkar sér um það eitt að veita notendum
Ópus viðskiptahugbúnaðar úrvalsþjónustu og þjálfun. Markmið okkar er
að tryggja rekstraröryggi og velgengni þeirra fyrirtækja er fjárfest hafa í
Ópus.
Þegar þú velur hugbúnað skiptir miklu máli að velja rétt. Mistökin geta
kostað of mikið.
VELDU ÖRYGGI, VELDU ÓPUS
Bíslensk
forritaþróun sf
Höfðabakka 9
112 Reykjavík, sími 671511