Frjáls verslun - 01.04.1989, Blaðsíða 60
MALNING
Valdimar Bergstað sölustjóri Málningar hf.
að bera á aukinni litagleði við innan-
hússmálninguna en minna ber á því
hvað varðar utanhússmálninguna."
Valdimar segir að um þessar
mundir sé Málning hf. að birgja sig
upp af útimálningu því nú sé að hefjast
tími utanhússmálunar. Að sögn Valdi-
mars er útimálning um 35% af heild-
arsölu Málningar. „En á góðu máln-
ingarsumri, eins og við gerum ráð
fyrir að verði í ár, getur salan orðið
enn meiri.“
Að sögn Valdimars er einkum um
þrjár málningartegundir að ræða í ut-
anhússmálningunni. „Þar ber fyrst að
nefna Kópal - Dyrótex sem er hefð-
bundin utanhússmálning, Steinakrýl
sem hefur mun meira rakagegn-
streymi en Dyrótexmálningin og loks
Steinvara 2000 sem bæði býr yfir
mun meira rakagegnstreymi og
vatnsheldin en hefðbundin málning.“
Steinvari 2000 er þróaður hjá
Málningu hf. og að sögn Óskars Mar-
íussonar er um algera framleiðslunýj-
ung að ræða, „enda hefur það verið
sannað með nýnæmisrannsóknum.
Þær leiddu til þess að við fengum
einkaleyfi á Steinvara 2000 og höfum
þegar sótt um einkaleyfi í 14 löndum.
Og ég veit ekki um aðra málningar-
verksmiðju á Norðurlöndunum, sem
hefur fengið einkaleyfi á einstakri
málningartegund.
Það er mikil samkeppni á málning-
armarkaðnum. Við erum ekki ein-
vörðungu að keppa við innlenda fram-
leiðendur heldur einnig erlendar
málningarverksmiðjur sem eru allt að
40 sinnum stærri en Málning hf.
Þegar við gengum í EFTA árið 1970
varð ljóst að samkeppnin yrði gífur-
leg, því eftir 10 ára aðlögunartímabil
var innlend málningarframleiðsla ekki
lengur vemduð með tollum. Þá varð
okkur ljóst að við gætum varla boðið
betri vöru en erlendu framleiðend-
urnir né lægra verði en þeir. Við hefð-
um ef til vill getað staðið jafnfætis
þeim með því að byggja stóra rann-
sóknarstofu og halda þar uppi dýrum
og umfangsmiklum rannsóknum. En
við sáum einnig að það yrði okkur
ofviða. í stað þess að búa til þekking-
una ákváðum við einfaldlega að fara út
í heim og kaupa hana. Við framleidd-
um því að hluta til, og gemm reyndar
ennþá, með framleiðsluleyfum frá er-
lendum verksmiðjum. Við fengum
meðal annars framleiðsluleyfi fyrir
fyrstu vatnsmálningunni sem fram-
leidd var í heiminum, bandarísku
Spred - Satin málninguna, sem við
framleiddum í tuttugu ár, frá 1953 -
1973.
Samhliða þeirri ákvörðun um að
framleiða samkvæmt erlendum fram-
leiðsluleyfum var tekið upp strangt
gæðaeftirlit sem er ennþá við lýði.
Hver einasta lögun gengst undir
strangar prófanir sem eiga að tryggja
að nánast útilokað sé að frá okkur fari
gölluð vara. Einnig var veruleg
áhersla lögð á vöruþróun hjá okkur og
Steinvari 2000 er einmitt afsprengi
vöruþróunarinnar. “
Óskar segir að íslendingar hafi
staðið ráðþrota frammi fyrir alkalí-
skemmdum í steinsteypu, áður en
nokkur önnur þjóð þurfti að glíma við
það vandamál. „Við gátum ekki fundið
málningu erlendis sem stöðvaði alka-
★ ★ ★ Allt á sama stað!
★ Flísar
★ Húsgögn
• • • Allar stærðir flísa
jafnt úti sem inni - á veggi og baðgólf
márazzi, ITILE Ítalía, AGROB V-Pýskaland,
• • LAUFEN , stílhrein hreinlætistæki frá Sviss
við allra hæfi.
•Húsgögn í alla íbúðina.
- Borðstofu og eldhúsborð í mörgum stærðum
með viðar eða glerplötu og stólum í stfl.
— Ódýrir fataskápar margar gerðir.
BjflUIGRES
Portúgal
ALFABORG i
BYGGINGARMARKAÐUR
Skútuvogi 4, S 686755
60