Frjáls verslun - 01.04.1989, Qupperneq 62
MALNING
lískemmdir heldur þurftum við að
leysa vandamálið sjálfir. Miklar rann-
sóknir gerðu okkur kleift að framleiða
málningu sem stöðvaði efnabreyting-
ar af völdum vatnsupptöku og Stein-
vari 2000 var settur á markaðinn árið
1985.
Núna, áratug eftir að íslendingar
byijuðu að fást við alkalískemmdir
standa aðrar þjóðir frammi fyrir sama
vanda. Alkalískemmdir eru þegar
komnar fram í steinsteypum mann-
virkjum á Norðurlöndunum, í Eng-
landi ogjapan. En við hjá Málningu hf.
nýttum okkur þetta tíu ára forskot og
hver veit nema erlendar verksmiðjur
sem seldu okkur framleiðsluleyfi á
sinni málningu kaupi framleiðsluleyfi á
Steinvara 2000. Við vonumst í það
minnsta til að geta selt framleiðsluna
á erlendum markaði!"
HARPA HF.
FRAMLEITT EFTIR EIGIN UPPSKRIFTUM
Málningarverksmiðjan Harpa hf.
er íslenskari en aðrar íslenskar máln-
ingarverksmiðjur að því leyti til að
framleiðsluvörumar eru framleiddar
samkvæmt íslenskum uppskriftum.
Reyndar er hráefnið, að vatninu und-
anskildu, erlent en þróunarvinnan og
uppskriftir framleiðsluvaranna eru
verk starfsmanna Hörpu hf.
En það er ekki nóg að búa til eigin
uppskrift. Málning, rétt eins og hver
annar iðnaðarvarningur, þarfnast
stöðugs eftirlits og endurbóta. Þar
kemur til kasta rannsóknarstofu
Hörpu, þar sem Atli Asbergsson yfir-
verkfræðingur ræður ríkjum.
Atli segir starfsemi Rannsóknar-
stofunnar ansi margbreytilega. „En
eðli málsins vegna beinist starfsemi
rannsóknarstofunnar að sífelldri þró-
un og leit að endurbótum í efnasam-
setningu málningarinnar." Auk þessa
segir Atli að eftirlit með framleiðslu
verksmiðjunnar sé veigamikill þáttur í
starfsemi rannsóknarstofunnar, „því
við tökum sýni úr hverri einustu lög-
un og reynum á þann hátt að ganga úr
skugga um að framleiðslan sé ná-
kvæmlega eins og við viljum hafa
hana. Rannsóknarstofan sér einnig
um þjónustu við fagmenn sem og fólk
úti í bæ. Einkum er þar átt við aðstoð
varðandi efnisval og vinnsluaðferðir. í
því sambandi eigum við mikið sam-
neyti við almenning, því á fáum stöð-
um í heiminum er jafn algengt að fólk
máli híbýli sín sjálft og hér á íslandi.
Fagmenn leita síðan til okkar með
sérhæfðari vandamál og ef fólk telur
vöruna okkar gallaða kemur til kasta
rannsóknarstofunnar. Við reynum þá
að komast að því hvort gallinn er til-
kominn vegna meðferðar efnisins eða
framleiðslunnar. Það er því ekki of-
sögum sagt að segja að starfíð á rann-
sóknarstofunni sé allt í senn mjög
gagnlegt, margbreytilegt og lifandi. “
Fjórir starfsmenn vinna á rann-
sóknarstofu Hörpu og að sögn Atla
gefur það augaleið að fjórir starfs-
menn geta ekki lagt stund á marg-
brotnar rannsóknir. „Það er í sjálfu
sér flókið verk að blanda málningu.
Málning er ef til vill blönduð úr allt að
þrjátíu mismundi efnum sem verða
hugsanlega að raðast saman á einn
ákveðinn hátt. Rannsóknarstofan sér
um að fylgt sé réttri formúlu við
hveija lögun en sjálfar frumrannsókn-
irnar og hráefnisframleiðslan fara að
mestu leyti fram erlendis.
Vitaskuld fylgist rannsóknarstofan
vel með og er í sífelldri leit að betri
efnum. Það starf felst einkum í úr-
vinnslu gagna og upplýsinga sem okk-
ur berast erlendis frá en ótrúlega
mikið af tíma okkar fer í lestur ýmissa
fagrita og út frá þeim upplýsingum
reynum við að taka ákvarðanir sem
leiða til sífellt betri framleiðsluvara frá
Hörpu!“
Ólafur Már Sigurðsson er mark-
aðsstjóri Málningarverksmiðjunnar
Hörpu hf. Verksvið markaðsstjóra er
víðfeðmt en engu að síður segir
Ólafur að unnt sé að undir það heyri
fyrst og fremst íjórir markaðshópar.
„í fyrta hópnum og þeim þýðingar-
mesta eru fagmenn, til dæmis allir
málaramir sem nota vömmar okkar.
í öðru lagi má nefna verslanimar sem
selja framleiðsluna og dreifa vömnni
til notenda. I þriðja hópnum eru arki-
tektar og verkfræðingar. í hönnun
sinni kveða þeir á um efnisnotkun og
val milli tegunda. Það er því mjög
þýðingarmikið fyrir okkur að kynna
BYGGINGAFÉLAGIÐ BÚLKI SF.
Nýbyggingar — endurbyggingar og
viðhald húsa.
Sveinn Guömundsson
Grundartangi 11, Mosfellsbæ
Sími 666875
Jón Sigurðsson
Lindarflöt 48, Garðabæ
Sími656026
62