Frjáls verslun - 01.04.1989, Blaðsíða 67
— Hvað kostar að mála 100 fer-
metra íbúð?
„Efniskostnaður vegna málningar-
vinnu á 100 fermetra íbúð er í dag
nálægt 50.000 krónum.
Ég vil leggja áherslu á það að Sjöfn
framleiðir gæðamálningu á góðu verði
— málningu sem er þróuð fyrir ís-
lenskar aðstæður, jafnt úti sem inni.
Tækniþekkingin hjá Sjöfn er eins og
best verður á kosið og stendur þeim
til boða sem fást við þau margbreyti-
legu viðfangsefni sem felast í máln-
ingarvinnu. Málning í einu eða öðru
formi hefur verið fastur fylginautur
mannkyns frá örófi alda. Þörfin fyrir
að prýða og vernda umhverfi sitt og
eigur verður ávallt til staðar,“ sagði
Ingimar Friðriksson að lokum.
MÁLNINGARVERKSMIDJA
SLIPPFÉLAGSINS
SAMSTARF VIÐ ERLENDA AÐILA
Málningarverksmiðja Slippfélags-
ins nýtur nokkurrar sérstöðu á mark-
aðnum vegna skipamálningar. Styrk-
ur fyrirtækisins á því sviði er mjög
mikill og að sögn Kolbeins Sigurðs-
sonar, sölustjóra verksmiðjunnar,
hefur á síðasta tveimur og hálfa ári
verið gert mikið átak á sviði húsa-
málningar. Vélakostur fyrirtækisins
hefur verið endumýjaður og nýjar
vörutegundir hafa litið dagsins ljós að
undanförnu.
Knútur G. Hauksson, framleiðslu-
stjóri, segir að þótt skipa- og húsa-
málning séu í eðli sínu ólíkar bæti þær
engu að síður hvora aðra upp. „Oft
koma upp vandamál við þróun húsa-
málningar sem hafa þegar verið leyst í
þróun skipamálningarinnar og öfugt.
Reyndar er skipamálningin mjög sér-
hæfð. Það er til að mynda mikið
vandaverk að gera góða botnmáln-
ingu og við gerð hennar hjálpast að
verkfræðingar og líffræðingar til að
árangurinn verði sem bestur. Þau
störf eru ákaflega dýr og í raun og
veru er óþarfi að vinna að rannsókn-
um hér á Islandi sem búið er að fram-
kvæma erlendis." Og Kolbeinn líkti
því við það að menn færu að finna upp
hjólið aftur og aftur.
Knútur segir að framleiðsla Máln-
ingarverksmiðju Slippfélagsins sé því
Kolbeinn Sigurðsson sölustjóri.
að hluta til háð framleiðsluleyfum á
málningu sem þróuð hefur verið er-
lendis. „Þannig er það til dæmis með
Hempel’s skipamálninguna. Hún er
framleidd hér, þótt þróunarstarfíð
hafi farið fram erlendis. En oft á tíðum
þróum við málningu sem við höfum
fengið framleiðsluleyfi á. Málningar-
verksmiðja Slippfélagsins framleiðir
til að mynda þakmálningu undir vöru-
merki Hempel’s en sú málning er þró-
uð með tilliti til íslenskra aðstæðna og
er því dæmi um hvernig vara sem
framleidd er hér með framleiðsluleyfi
erlendis frá getur leitt til nýrrar og
betri vöru.“
Að sögn Knúts er reyndar alltaf um
þróunarstörf að ræða þótt framleiðsl-
an sé háð leyfum erlendra aðila.
„Stöðugt koma á markaðinn ný og
betri efni þannig að málningin verður
bæði betri og auðveldari í meðförum.
Innan tíðar er væntanleg ný tegund af
Vitratex-málningu. Sú málning er
framleidd eftir okkar eigin uppskrift-
um og inniheldur nýja tegundin ný og
betri hráefni. En auk þess að vera
betri eru nýju hráefnin ódýrari, þann-
ig að þróunin á Vitratex-málningunni
hefur þrjá kosti í för með sér fyrir
viðskiptavini okkar.
En þótt ég hafi verið að ræða um
þróunarstarf í sambandi við málningu
sem framleidd er eftir eigin uppskrift-
um er vissulega unnið að þróun og
endurbótum á vörum sem framleidd-
ar eru hér á landi með leyfum er-
lendra aðila. Þær rannsóknir eru ým-
ist unnar fyrir okkur á rannsóknar-
stofum erlendis eða þá erlendu
aðilamir útvega okkar mönnum að-
stöðu í rannsóknarstofum þeirra ef
leita þarf lausna á ákveðnum vanda-
málum.
Húsbyggjendur!
Smíði á:
# Handriðum úti og inni
# Stigum
# burðarvirki úr stáli
Vélsmiðja Guðmundar
Davíðssonar
Háholti, Mosfellsbæ, sími 666155
67