Frjáls verslun - 01.04.1989, Qupperneq 70
FRAMKVÆMDIR
FUSKIÐ DYRKEYPT
RÆTTVIÐ GUNNAR BJÖRNSSON FORMANN MEISTARASAMBANDSINS
„Hingað til Meistarasam-
bandsins berast oft kvartanir frá
fólki vegna svika og rangra
vinnubragða manna sem hafa
tekið að sér viðhald á húsum eða
aðra verklega vinnu. Gjarnan
heldur fólk að þar sé um
aðila úr okkar röðum að
ræða en einatt kemur á
daginn að þar hafa verið
áferðinni réttindalausir
menn, sem gefa sig út
fyrir að vera sérfræð-
ingar á sínu sviði,“
sagði GunnarBjömsson
formaður Meistara- og
verktakasambands
byggingarmanna í sam-
tali við Frjálsa verslun,
en við höfðum heyrt af
tíðum kvörtunum fyrir
handvömm fúskara.
„Vinnusvik af þessu tagi
eru því miður mjög algeng
hér á landi og hafa færst í
vöxt með aukinni þörf fyrir
viðhald mannvirkja. Þessir
menn auglýsa í dagblöðun-
um og taka að sér viðgerðir
á þakrennum, þéttingu
vegna leka, hreinsun á
steypuskemmdum, klæðn-
ingar utan dyra o. s. frv. Fólk
er grandalaust og ræður
þessa fúskara til verksins en stendur
síðan varnarlaust uppi ef í ljós kemur
að aðgerðir hafa mistekist. Ekki er
nóg með að fólk taki þessa áhættu
heldur þekkjum við ótal dæmi um að
verðlagning þessarra manna er oft
mun hærri en meistaranna, sem þó
bjóða ábyrgð á sinni vinnu“.
Gunnar rakti fyrir okkur sorgar-
sögur um viðskipti af þessu tagi og
minntist m.a. dæma um menn sem
hefðu við upphaf verks fengið hluta
greiðslunnar fyrirfram en síðan horfið
á braut og ekki látið sjá sig eftir það.
Eins og hann sagði áður hefur þörf
fyrir viðhaldsvinnu íbúðarhúsa farið
mjög vaxandi á síðustu árum og talið
er að þessi þáttur byggingarstarf-
seminnar muni stóraukast á næstu
árum og áratugum. En hvernig hefur
Meistarasambandið sinnt þessari
auknu þörf fólks fyrir sérhæfða iðnað-
armenn til viðhaldsvinnu? Hefur ekki
verið erfitt fyrir fólk að ná í fagmenn
til þess arna og því hafa fúskararnir
getað leikið lausum hala?
„Það má vissulega segja að þetta
sé rétt enda höfum við í okkar félags-
skap gert ráðstafanir til að mæta auk-
inni eftirspum eftir mönnum til við-
haldsvinnu. Samband okkar er sam-
tök manna, sem hafa meistararéttindi
í öllum greinum byggingariðnaðarins,
og þeirra fyrirtækja sem honum
tengjast. Nú höfum við stofnað sér-
staka verktakadeild sem mun ein-
beita sér að viðgerðum á húsum og
mannvirkjum. Þessi deild starfar í
nánum tengslum við verk-
fræðistofur, m.a. Línuhönn-
un, sem hefur einstæða
reynslu í viðgerðarverkefn-
um. Þá vinnum við í náinni
samvinnu við Rannsóknar-
stofnun byggingariðnaðar-
ins og fjölmörg fyrirtæki
sem hafa sérhæft sig í við-
gerðum. Loks ætlum við að
taka upp samstarf við Neyt-
endasamtökin í landinu.
Tilgangurinn með þessari
nýju deild er sá að Meistara-
sambandið vill stuðla að því
að fólk verði vemdað fyrir
réttindalausum mönnum
sem vaða uppi og bjóða fram
þjónustu sína á fölskum
forsendum. Þannig getur
fólk haft samband við okkur,
við bendum á traustan aðila
innan okkar vébanda til að
gera úttekt á verkinu sem á
að vinna, sá gerir fast tilboð
og tryggilega er frá öllu
gengið áður en iðnaðarmenn
mæta á staðinn.
Við munum gera strangar kröfur til
þeirra sem fá að skrá þjónustu sína hjá
þessari nýju deild. Aðeins menn og
fyrirtæki geta orðið aðilar, sem við
treystum í hvívetna, og reglulega
verða haldin námskeið fyrir þessa að-
ila þannig að þeir geti fylgst með nýj-
ungum varðandi ný efni til viðgerða
og nýjar aðferðir sem kunna að verða
þróaðar.
Síðast en ekki síst vil ég nefna að
með þessari nýju deild í Meistara-
sambandinu er leitast við að tengja
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: GUNNAR GUNNARSSON
Gunnar Björnsson.
70