Frjáls verslun - 01.04.1989, Blaðsíða 81
LANAMAL
HÚSNÆÐISKERFIÐ SPRUNGID
Fólk kemur daglega í Húsnæðisstofnun til að spyrja um lánið sitt. Biðtími er
nú um 3 ár.
Það er ljóst að hið opinbera
húsnæðislánakerfi í landinu er
gengið sér til húðar. Fjöldi um-
sókna um lán úr byggingasjóði
ríkisins er slíkur að ríkissjóður
getur engan veginn staðið undir
lánum til þeirra sem þó eiga rétt
á fyrirgreiðslu samkvæmt lög-
unum frá 1986. Þetta hefur vald-
ið því að biðtími eftir lánum er
nú 34 mánuðir að meðaltali og
ljóst að fjöldi manna, sem þegar
hefur ráðist í einhvers konar
skuldbindingar, mun gefast upp
á píslargöngu milli banka og
annarra lánastofnana áður en
stóra lánið frá Húsnæðisstofnun
kemur. Ef það þá kemur ein-
hvem tímann.
18.000 UMSÓKNIR
Núverandi lög um húsnæðislán
tóku gildi 1. september 1986. For-
sendur laganna voru þær að eftir-
spum eftir lánum yrði mest 3.800
umsóknir tvö fyrstu árin en færi síðan
lækkandi. Var þá gert ráð fyrir að
umsóknir um lán til bygginga nýrra
íbúða yrðu 1600 á ári en til kaupa á
eldri íbúðum litlu fleiri eða 2200 á ári.
Reyndin hefur orðið önnur, sem
bendir ótvírætt til þess að þessi þjóð-
aríþrótt íslendinga, að byggja hús
nánast frá vöggu til grafar, er engan
veginn að deyja út með þjóðinni. Frá
1. september 1986 til febrúar á þessu
ári hefur Húsnæðisstofnun móttekið
17000 umsóknir um lán til byggingar
eða kaupa á íbúðum og 1000 umsóknir
þar að auki til annarra hluta! Af þess-
um fjölda hefur rúmlega helmingur
ekki enn fengið afgreiðslu og þar af
um 7000 umsækjendur ekki einu sinni
fengið bindandi loforð um lán. Er
áætlað að kostnaður við afgreiddar og
óafgreiddar umsóknir á þessu tveim-
ur og hálfa ári sé kominn í ríflega 40
miljarða króna, án affalla.
20 MILUÓNIR Á DAG
Húsnæðisstofnun reiknar með að
geta afgreitt um 250 umsóknir á mán-
uði allt þetta ár og fram á mitt ár 1990.
Þetta þýðir fjárútstreymi upp á 5-600
milljónir króna á hverjum mánuði eða
20 milljónir króna á dag.
Til að ná jafnvægi í afgreiðslu lána
og umsóknum mættu nýjar umsóknir
aldrei fara yfir 250 á mánuði. Undan-
fama mánuði hafa umsóknir verið um
100 fleiri en þetta og því lengist bið-
listinn stöðugt. Jafnvel þótt jafnvægi
kæmist á umsóknir og afgreiðslur á
eftir að afgreiða um 10.000 manns,
það tæki um 3 ár og myndi kosta yfir
20 miljarða króna án affalla.
RÍKISFRAMLAG í VEXTI
Eins og allir vita eru vextir af nú-
verandi húsnæðislánum verulega nið-
urgreiddir. Þetta kemur að sjálfsögðu
lántakendum til góða en einhver
verður að borga brúsann. Stærstur
hluti ráðstöfunarfjár Byggingarsjóðs
ríkisins er fenginn að láni hjá lífeyris-
sjóðunum í landinu. Til að verðmæti
þeirra rými ekki við þessi viðskipti
krefjast þeir um helmingi hærri vaxta
en Húsnæðisstofnun lánar út til hús-
næðiskaupenda. Þessi vaxtamunur
nam á síðasta ári 148 miljónum króna,
sem þýðir að óbreyttu um 3 miljarða á
næstu 5 árum. Allt ríkisframlag til
byggingasjóðanna fer því í vaxtanið-
urgreiðsluna að nokkrum árum liðn-
um nema það verði aukið sem nemur
þessum fjárhæðum þegar fram líða
stundir.
HVERJIR ERU í BIÐRÖÐ?
Félagsvísindastofnun Háskóla ís-
lands gerði könnun á því á síðasta ári
hverjir væru nú að bíða eftir lánum frá
Húsnæðisstofnun, en eins og áður
sagði er meðalbiðtími nú 34 mánuðir.
Af fyrirliggjandi umsóknum mátti
TEXTI: VALÞÓR HLÖÐVERSSON MYNDIR: GUNNAR GUNNARSS0N
81