Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1989, Page 100

Frjáls verslun - 01.04.1989, Page 100
Þjónustukjarnar spretta upp í kjölfar þéttrar byggðar. einbýlishúsum. Eru það Kk hlutföll og í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Má búast við að á næstu árum rísi byggð á Hval- eyrarholti, einkum fjölbýlishús þar sem landkostir í Setbergslandi og upp að Asafjalii bjóða trauðla upp á slíka byggð. Að sumu leyti má segja að í Hafnar- firði sé eitt mesta svigrúmið til bygg- inga næstu áratugina. Reykjavíkur- borg mun eiga við landþrengsli að stríða eftir að núverandi skipulags- svæði verða fullbyggð og þótt Kópa- vogur eigi stórt og mikið land, liggur það víða hátt og teygir sig í rana aust- ur fyrir höfuðborgarsvæðið. Fyrir sunnan Hafnarfjörð er hins vegar ákj- ósanlegt byggingarland meðfram Krísuvíkurvegi, allt frá sjó upp að Óbrynnishólum. HVERFA BÆJARMÖRKIN? Það er ljóst þegar litið er á næstu byggingarsvæði kaupstaðanna á höf- uðborgarsvæðinu, að mörk á milli þeirra muni smám saman hverfa. Gildir þetta um svæðið allt frá Kjalar- nesi suður fyrir Straumsvík. Byggðin mun teygja sig með strandlengjunni allt norður fyrir Leiruvog og upp í landið ofan núverandi byggðar. Þann- ig geta menn séð fyrir sér að á næstu öld verði Úlfarsfell að hluta kringt byggð, hún teygi sig um Hólmsheiði, austur fyrir Elliðavatn, meðfram Heiðmörk að vestanverðu um Kap- elluhraun og að Straumi. Þungamiðja byggðarinnar mun því færast af Seltjamarnesinu gamla, þ.e. bæjarstæði Reykjavíkur vestan Elliðaáa, í ás er liggur frá suðvestri til norðausturs ofan núverandi byggðar. Þau mörk á milli sveitarfélaga sem verið hafa frá austri til vesturs munu því smám saman hverfa og í framhaldi af því hljóta sveitarfélögin að renna í stjórnskipulegu samhengi í eina heild. Því miður er það svo enn þann dag í dag að sveitarfélögin á suðvestur- homi landsins skipuleggja svæði sín ein og sér og samvinna þeirra í milli á því sviði er afar lítil. Þó hafa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu reynt að hvetja til aukinnar samvinnu og m.a. samþykkt sérstakt skipulag, sem áður var minnst á. Þrátt fyrir þá stefnumörkun sem þar kemur fram stendur það óbreytt að sveitarfélögin skipuleggja eigin svæði út af fyrir sig og afleiðingin vill oft verða sú að lítils eða einskis samræmis gætir illilega í skipulagsvinnunni. Það er aðeins á teikniborðum sveitarstjórnanna sem reynt er að halda uppi vömum fyrir gamaldags skiptingu í pólitískar einingar en úti á akrinum þróast mannlíf í byggð sem óðum er að verða ein heild. 100
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.