Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 6

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 6
5 RITSTJÓRNARGREIN 8 FRÉTTIR 14 HAPPDRÆTTISÆÐI ÍSLENDINGA Áætlað er að íslendingar hafi varið 6 milljörðum króna í happdrætti á síðasta ári sem eru um það bil 25 þúsund krónur á hvert mannsbam í landinu og nærri 100 þús. kr. á fjölskyldu. Við bregðum að þessu sinni ljósi á þennan markað og birtum m.a. tölur sem sýna stærð og umfang hinna einstöku happdrætta. Þar kemur margt athyglisvert fram og sumt af því kemur verulega á óvart. í umfjölluninni er þess freistað að svara ýmsum áleitnum spumingum: Hve stór er happdrættismarkaður íslendinga? Hvaða leikreglur gilda á þeim vettvangi? Hve miklum flármunum verjum við til þessara lukkuhjóla hverdagsins? Hvernig er þessum málum háttað í samanburði við önnur vestræn lönd? Og síðast en ekki síst: Hefur lukkuhjólið ætt stjómlaust áfram og er það á góðri leið með að kremja í hjólfarinu þær vonir sem bundnar vom við það í upphafi? 24 LAUNAKJÖR Þegar skattskrár vegna tekna ársins 1988 lágu frammi kannaði Frjáls verslun launakjör 12 hópa í þjóðfélaginu sem flestir hverjir em taldir til hálaunahópa. Nokkrir einstaklingar vom valdir af handahófi í hverjum hópi og skattskyldar tekjur þeirra á árinu 1988 reiknaðar út á gmndvellu álagðs útsvars á þá sem fram kemur í skattskrám. Athugun þessi leiðir margar merkilegar staðreyndir í ljós og vekur e.t.v. fleiri spumingar en hún svarar. Fram koma laun 145 íslendinga á árinu 1988. Hópamir 12 em: Stjómendur nokkurra af stærstu fyrirtækjum landsins, stjórnmálamenn, sveitarstjórnarmenn, verkalýðsleiðtogar og forsvarsmenn vinnuveitenda, opinberir embættismenn, fógetar og sýslumenn, lögfræðingar, endurskoðendur, læknar, tannlæknar, lyfsalar, arkitektar og verkfræðingar. 30 VIÐTAL VIÐ STEIN LÁRUSSON Frjáls verslun heimsótti Stein Lámsson í London en hann er framkvæmdastjóri Flugleiða á Bretlandseyjum. Rætt er við Stein um ferðaþjónustuna á íslandi og störf þeirra manna sem fást við að selja útlendingum ferðir til íslands. Hann er ómyrkur í máli, talar tæpitungulaust og byggir á 30 ára reynslu í þessari atvinnugrein. Fram kemur hjá Steini að hann telur að íslendingar gætu náð miklu meiri árangri í innflutningi ferðamanna til íslands en til þess þurfi að koma skilningur stjómvalda á mikilvægi ferðaþjónustunnar. Þá er hann ekki að tala um skilning stjómvalda í orðum - heldur í verki. 33 EINAR J.SKÚLAS0N Rætt er við Kristján Auðunsson framkvæmdastjóra tölvufyrirtækisins Einars J. Skúlasonar hf. sem náð hefur glæsilegum söluárangri og stækkað gífurlega á nokkrum undanförnum ámm. Á skömmum tíma hefur fyrirtækið komist í hóp hinna stóm á íslenska tölvumarkaðnum. Við leitum eftir því hjá Kristjáni hver sé lykillinn að velgengni fyrirtækisins undir hans stjóm. 38 ERLENT 40 TÆKJAHÖNNUN Hvernig ætli sé að vera ábyrgur fyrir hönnunarstefnu eins stærsta tækjafyrirtækis heims? Við fáum svör við því í viðtali sem dr. Öm D. Jónsson átti fyrir Fijálsa verslun við Robert Blaich hönnunarstjóra Philips þar sem m.a. er fjallað um það hvemig útlit rafeindatækja tekur breytingum og hvað er frammundan á þeim vettvangi. 45 ÍSLENSK FYRIRTÆKI Viðskiptahandbókin íslensk fyrirtæki verður 20 ára á næsta ári. Hafinn er undirbúningur að útgáfu bókarinnar með söfnun alhliða upplýsinga um viðskiptalífið á íslandi. 6

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.