Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 35
TOLVUR
Einar J. Skúlason hf. hefur vaxið ótrúlega hratt á síðustu árum og hefur nú
hreiðrað um sig í eigin stórhýsi við Grensásveg í Reykjavík.
Fyrirtækið skiptist í fjórar rnegin deildir og þar starfa um 70 manns. Myndin er
tekin í verslun á 1. hæð hússins við Grensásveg 10.
fengum verkefni í hendur af þeirri
stærð sem minni og meðalstór fyrir-
tæki í þessari grein geta ekki tekist á
við.
Einar J. Skúlason hf. býður sínum
viðskiptavinum upp á aMða þjónustu.
Þeir byrja á því að leita hingað um ráð-
gjöf. Við veitum hana, bjóðum þær vél-
ar og þann hugbúnað sem viðkomandi
þarfnast, setjum tækin upp, höldum
námskeið fyrir þá sem þau eiga að nota
og veitum alla þá viðgerðar- og við-
haldsþjónustu sem nauðsynleg er. Við
erum þess vegna vel í stakk búin að
taka að okkur uppsetningu stórra sem
smárra tölvukerfa.
Án frábærra starfsmanna hefði
okkur ekki tekist að ná þeim mark-
miðum sem nýir eigendur fyrirtækis-
ins settu sér í upphafi. Okkar starfs-
menn eru um 70 talsins og er þar
valinn maður í hverju rúmi. Við höfum
lagt áherslu á að fá til okkar háskóla-
menntað starfsfólk og eftir þjálfun við
krefjandi kringumstæður höfum við á
að skipa úrvalsliði, sem getur tekist á
við þau verkefni sem upp kunna að
koma“.
ÖFLUG HUGBÚNAÐARDEILD
Það kom í hlut Einars J. Skúlasonar
hf. að skrifa þann notendahugbúnað
sem stýrir afgreiðslukerfi bankanna.
Við spurðum Kristján nánar út í þá
sálma.
„Stór hluti af okkar verkefnum er
auðvitað að skrifa alls kyns forrit til
notkunar við þær aðstæður sem upp
koma í hverju tilviki. Hjá okkur eru 16
starfsmenn í sérstakri hugbúnaðar-
deild og hafa þeir nægan starfa. Má til
dæmis nefna að um þessar mundir
erum við að vinna að nýju kerfi fyrir
Lánasjóð íslenskra námsmanna, en í
því verða á 3ja tug útstöðva. Starfs-
menn sjóðsins munu framvegis
reikna út lán námsmanna og munu
með hjálp þessa nýja kerfis hafa beina
yfirsýn yfir stöðu hvers lántakanda
gagnvart sjóðnum“.
Kristján drap á vandamál sem hann
taldi hugbúnaðarfyrirtæki standa ber-
skjölduð fyrir, en það er fjölföldun
staðlaðra forrita án heimildar.
„Hér er um gamalt vandamál að
ræða sem við höfum lengi haft áhuga
á að reyna að leysa. Fólk virðist því
miður ekki gera sér næga grein fyrir
því að fjölföldun forrita í heimildar-
leysi er alvarlegt brot á lagabókstaf
og siðferðisreglum. Get ég nefnt sem
dæmi að um þessar mundir erum við
að setja á markaðinn íslenska útgáfu
að ritvinnsluforritinu Word Perfect
5.0. Þetta forrit, sem við höfum um-
boð fyrir, hefur fyrir löngu haslað sér
völl á íslenskum markaði undir nafn-
inu Orðsnilld og við höfum varið millj-
ónum króna til að þýða og breyta því
yfir á íslensku. Það er því alvarlegt
áfall fyrir okkur þegar það tíðkast í
stórum stíl að fólk komist yfir forritið
án endurgjalds.
í því skyni að berjast gegn þessum
35