Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 33
TOLVUR
GETUM BOÐIÐ HEILDARLAUSN
INNLIT TIL EINARS J. SKÚLASONAR HF. EN FYRIRTÆKIÐ HEFUR Á
SÍÐUSTU ÁRUM GENGIÐ í ENDURNÝJUN LÍFDAGA OG ER NÚ
Ein ÖFLUGASTA RÁÐGJAFAR- OG TÖLVUFYRIRTÆKILANDSINS
Kristján Auðunsson framkvæmdastjóri Einars J. Skúlasonar hf.
Á síðustu árum hafa íslensk
fyrirtæki stigið stóra skrefið inn
í framtíðina með gífurlegum
fjárfestingum í tölvubúnaði
hvers konar. Einstaklingar hafa
ekki látið sinn hlut eftir liggja
og einmenningstölvur eru orðn-
ar eitt af heimilstækjum flestra
fjölskyldna í landinu. Milljörð-
um króna hefur verið varið í fjár-
festingar af þessu tagi og um-
svifamiklir þjónustuaðilar hasl-
að sér völl vegna sölu og
viðhalds þessara tækja.
Fyrirtækið EinarJ. Skúlasonhf. er
gamalt í hettunni en ótvírætt má þó
fullyrða að það hafi á allra síðustu ár-
um gengið í endurnýjun lífdaga sinna.
Þrátt fyrir að hálf öld sé nú liðin frá því
fyrirtækið hóf sölu á hvers konar
skrifstofubúnaði, er engin ellimerki á
því að finna því stjórnendum þess hef-
ur á þessum áratug tekist að auka
vöxt þess og viðgang svo athygli hef-
ur vakið. Má nefna að í lista Frjálsrar
verslunar yfir 100 stærstu fyrirtæki
landsins árið 1987 kemur fram að
veltuaukning Einars J. Skúlasonar hf.
frá árinu á undan varð 164% en aðeins
eitt fyrirtæki í landinu hafði sýnt meiri
aukningu á því ári.
Eigendur fyrirtækisins í dag eru
fjórir: Helgi Þór Guðmundsson, sem
jafnframt er stjórnarformaður, Bjami
B. Ásgeirsson fjármálastjóri, Olgeir
Kristjánsson deildarstjóri hugbúnað-
ardeildar og Kristján Auðunsson
framkvæmdastjóri, en hann er í spjalli
við Fijálsa verslun að þessu sinni. Við
spurðum Kristján fyrst hver væri
hans skýring á þeirri miklu velgengni
sem fyrirtækið hefði átt að fagna á
síðustu árum.
FRÁBÆRT STARFSFÓLK
„Það var í lok síðasta áratugar sem
við ákváðum að breyta þessu fyrir-
tæki úr hefðbundnu skrifstofuvélafyr-
irtæki í tölvufyrirtæki. Við gerðum
okkur ljósa grein fyrir þeirri byltingu
sem þá var framundan varðandi tölvu-
tækni og ætluðum okkur ákveðinn
hlut í þeirri þróun.
Fljótlega fengum við risavaxið
verkefni sem reyndist prófsteinn á
styrkleika nútíma tölvufyrirtækis af
því tagi sem við vildum vera. Þar var
um að ræða uppsetningu á beinlínuaf-
greiðslukerfi banka og sparisjóða, en
samningur við Reiknistofu bankanna
um uppsetningu þess kerfis var und-
irritaður 8. febrúar 1984. Fyrsta úti-
búið var tengt haustið 1985 og þá fór í
hönd mikill annatími hjá okkar starfs-
mönnum. í dag eru um 130 afgreiðsl-
ustaðir væddir Kienzle-kerfinu og
jaðartæki eru orðin 2300 talsins.
Þetta verkefni var að okkar viti vel
af hendi leyst og það hygg ég vera
samdóma álit þeirra sem til þekkja.
Bankaverkehúð leiddi til þess að við
TEXTI: VALPÖR HLÖÐVERSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSS0N
33