Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 41
Robert Blaich hefur gjörbreytt hönnunarstefnu Philips á nokkrum árum.
Vang Hong Tsai og þeir skildu ekkert
í því hvað hann var að gera og hlógu
bara að þessu og þá rak ég þá“. En
Tsai hefur m.a. fengist við að yfirfæra
mýkt og fegurð tónlistarinnar sjálfrar
yfir á hljómflutningstækin.
Robert segir að hann hafi ekki
verið búinn að ákveða hvað hann ætl-
aði að gera þegar hann var ráðinn til
fyrirtækisins 1980. Hann hafi haft al-
mennar hugmyndir um að draga úr
miðstýringu og leggja aukna áherslu á
hópstarf. Að fá menn til að vinna sam-
eiginlega að einstökum hugmyndum á
eins opinn hátt og mögulegt var.
Hann segir að vendipunkturinn hafi
verið þegar hann las grein eftir
Michele De Lucchi eins af forsprökk-
um Memphis-hópsins (sem var í
heimsókn hér ekki alls fyrir löngu).
„Ferðasegulbönd, útvörp, heymar-
tæki og sjónvörp ættu að miðla góðri
tónlist eða mynd og eiga sér útlit sem
hæfir þeirri ánægju — við eigum að
skapa okkur umhverfi sem veitir okk-
ur ánægju í önn dagsins".
Blaich kynnti þessar hugmyndir
fyrir samstarfsmönnum sínum sem í
fyrstu héldu að hann væri að hæðast
að þeim og það var skiljanlegt að hans
mati. Hugmyndir Memphis-hópsins
voru vissulega nýstárlegar. Stefnu-
breytingin komst á framkvæmdastig
þegar hann kynntist hóp hönnuða og
fræðimanna sem voru að fást við
táknmál hlutanna (product semant-
ics). Hópurinn var mjög samsettur og
starfaði víðs vegar um heiminn, þó
aðallega í Bandaríkjunum. Kjarni
hópsins hafði upphaflega stundað nám
og starfað við tækniskólann í Ulm í
Þýskalandi, en síðan flutt sig til
Bandaríkjanna og þar höfðu hug-
myndirnar þróast.
Blaich efndi til ráðstefnu fyrir
hönnuði Philips þar sem hann fékk
táknmálshópinn til að halda fyrirlestra
og vinna með hönnuðum fyrirtækis-
ins í vinnuhópum. Síðan fylgdi hann
ráðstefnunni eftir með stöðugu sam-
bandi við hópinn og endurmat hug-
myndir þeirra með samstarfsmönn-
um sínum. Þannig hefur Philips tekist
að breyta hönnunarstefnu sinni frá því
að vera ein sú litlausasta og íhaldsam-
asta í það að eiga í fullu tré við Japani
og stundum vel það. Það sem þeir
gerðu var að tileinka sér hugmyndir
hámenntaðra framúrstefnumanna og
Roller Radio, útvarpið sem sjá má hér að ofan, varð upphaflega til á nám-
skeiði um táknmál hlutanna. Þar var tölvuútvarp sett á milli tveggja bong-
ótromma.
41