Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 36
TOLVUR
Opinberar stofnanir hafa
gert samning við Einar J.
Skúlason hf. um sölu á
Orðsnilld. A myndinni
eru Jón Þór Jóhansnson
frá Skýrr, Jóhann Gunn-
arsson frá Fjárlaga- og
hagsýslustofnun og Kri-
stján Auðunsson frá Ein-
ari J. Skúlasyni hf.
ósið höfum við m.a. gert samning við
SKYRR og Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun um sölu á Orðsnilldarhugbún-
aði, en með samningnum fær SKÝRR
rétt til að endurselja stofnunum ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar þetta
ágæta forrit á hagstæðu verði. Gilda
sömu kjör fyrir starfsmenn þessara
stofnana".
Eins og áður sagði eru starfsmenn
Einars J. Skúlasonar hf. um 70 tals-
ins. Fyrirtækinu er skipt í fjórar meg-
indeildir: Hugbúnaðardeild, sem sér
um alla forritavinnu, tæknideild þar
sem sýslað er við uppsetningu og við-
hald þeirra tækja sem í boði eru, sölu-
deild þar sem öll sala fer fram og loks
fjármáladeild.
Fyrirtækið er í rúmgóðu eigin hús-
næði að Grensásvegi 10. Þangað var
flutt í ársbyrjun 1985 af Hverfisgötu
89, þar sem fyrirtækið hafði áður
verið um langt árabil.
HEIMSÞEKKT TÆKI
Fjöldi skrifstofutækja er í boði hjá
Einari J. Skúlasyni hf. Áður hefur
verið minnst á þýska Kienzle-tölvu-
kerfið en á tölvusviði má einnig nefna
sænsku Victor-einmenningstölvum-
ar. Það var í ársbyrjun 1987 sem
verulegt söluátak hófst og í dag hefur
EJS hf. tekist að selja 5000 tölvur af
þessari gerð! Segir í fréttabréfi fyrir-
tækisins, Einarði, að engin tölva hafi
selst jafnvel á eins skömmum tíma
hér á landi.
Fleira má nefna. Hugin/Sweda-af-
greiðslukerfi fyrir verslanir eru víða
hér á landi og um árabil hefur Einar J.
Skúlason hf. haft umboð fyrir þær
vörur. Hugin/Sweda er einn helsti
framleiðandi heims á þessu sviði og
hér á landi eru afgreiðslukassar af
þessari gerð í hundraða vís um land
allt.
AST-tölvur og tengibúnaður af
ýmsu tagi er mörgum tölvunotendum
að góðu kunnar, en fyrirtækið býður
tvenns konar tölvur með þessu
heimsþekkta og viðurkennda merki.
NCR-miðlungstölvumar eru víðfræg-
ar og talsvert notaðar hér á landi, en
það er einmitt tölva af þessari gerð
sem á að vinna verkin hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna innan tíðar.
Stýrikerfið UNIX hefur að sögn
Kristjáns mjög verið að ryðja sér til
rúms á síðustu árum og allir helstu
tölvusalar heims bjóða þetta kerfi.
Það hefur sér einkum til ágætis að
forrit sem skrifað er fyrir UNIX getur
gengið í fjölmargar vélar. Að megin-
hluta til er allur nútíma hugbúnaður
skrifaður fyrir UNIX og má geta þess
að NCR-vélarnar hafa náð miklum
vinsældum á Norðurlöndunum sem
og annars staðar.
Loks má nefna Triumph-ljósritun-
ar-, reikni- og ritvélar og Precisa-
reiknivélar, en sala á þessum tækjum
hefur um langt skeið farið fram hér á
landi á vegum Einars J. Skúlasonar hf.
BJART FRAMUNDAN
Vöxtur Einars J. Skúlasonar hf. á
árunum eftir 1985 er með ólíkindum.
Fyrirtækið hefur undir stjórn Krist-
jáns Auðunssonar og félaga risið úr
öskustó og er tvímælalaust í hópi allra
traustustu tölvufyrirtækja landsins í
dag. En hvað ber framtíðin í skauti
sér að mati framkvæmdastjórans?
„Okkur dettur ekki í hug að sami
vöxtur verði næstu árin og verið hef-
ur síðasta hálfa áratuginn. Aðalatriðið
er að stjórnendur fyrirtækis af þessu
tagi telji sig vita hvað þeir eru að gera.
Við gerðum okkar áætlanir um þróun
fyrirtækisins í upphafi á þeirri for-
sendu að uppsveifla væri þá framund-
an í tölvuvæðingu. Það ætluðu sér
margir hlut í þeirri aukningu og því
var hart barist. Okkar mótleikur í
samkeppninni var að koma að hlutun-
um með ýmsu öðru sniði en áður hafði
tíðkast. Um leið settum við okkur það
markmið að vera fyrirtæki er gæti
boðið viðskiptavininum heildarlausn.
Það féll í góðan jarðveg.
Framundan er auðvitað hægari
vöxtur en verið hefur en engu að síð-
ur er ég bjartsýnn á framtíðina og er
þess fullviss að okkar starfsmanna
bíði fjölmörg ný og spennandi verk-
efni. Viðskiptavinir okkar eru í þús-
undavís um land allt og þeim þarf
áfram að þjóna. Það er nú einu sinni
staðreynd að tölvur úreldast fljótt og
þess vegna þurfum við stöðugt að
geta boðið upp á nýjar og hagkvæmar
lausnir,“ sagði Kristján Auðunsson
framkvæmdastjóri Einars J. Skúla-
sonar hf. að lokum.
36