Frjáls verslun - 01.08.1989, Blaðsíða 44
HONNUN
s.s. mælieiningar og örgjörvar. End-
anleg útfærsla eða samsetning á aftur
á móti að taka mið af þeirri menning-
arlegu fjölbreytni sem er til staðar og
tæknin býður upp á það. Þetta á ekki
aðeins við stórar heildir eins og þjóðir
eða heimsálfur heldur líka við smærri
hópa eins og er vel þekkt úr heimi
tískunnar. Þar ægir sama aragrúa
stílafbrigða. Aldur, kyn, menningar-
arfur og félagsleg staða, leika þar lyk-
ilhlutverk. Tími svörtu kassanna er
liðinn og fjölhæf framleiðslutækni
býður upp á áður óþekkta möguleika í
útfærslum.
Þegar ég spurði hvaða þýðingu sú
stefnubreyting sem hefði átt sér stað
hefði fyrir land eins og ísland með öll
sín litlu fyrirtæki, sagði Blaich að þeir
væru að reyna að minnka einingamar
hjá sér og gera þær sjálfstæðari.
Hönnunardeildir einstakra landa eiga
að taka mið af þeim þörfum sem þær
þekkja best til. „Ég held að það eigi að
vera mun auðveldara fyrir stjórnend-
ur lítilla fyrirtækja, sem þekkja vel til
afmarks markaðshoms, að nýta sér
möguleika táknmáls hlutanna. Neyt-
endur vilja hluti sem hafa táknrænt
gildi, höfða til hugmyndaflugs, hefða
eða jafnvel húmors, þeirra eiginleika
sem gera hlutina lifandi og þá á ég
ekki við yfirborðskenndar auglýs-
ingabrellur heldur gegnheilar hug-
myndir“.
Táknmálið er oft sótt í samlíkingar
við áður þekkta hluti. Þannig hefur
Lisa Krohn hannað síma sem lítur út
eins og bók fyrir finnska fyrirtækið
Neste. Sé síðum símans flett breytist
hlutverk hans, ein síðan hefur hlut-
verk símaskrár, önnur er fyrir beinval
og sé henni lokað breytist símabókin í
sjálfvirkan símsvara. Kaldhæðnin á
sína fulltrúa á meðal hlutanna. Hönn-
uðir Philips smíðuðu frumgerð að ör-
bylgjuofni sem lítur út eins og kjam-
orkuver, en þegar verið var að meta
hvort framleiða ætti gripinn þá átti
Chemobyl-slysið sér stað og eins og
Blaich sagði þá þótti honum of langt
gengið í kaldhæðninni að markaðs-
setja minnisvarða um óhamingjuna.
Við lifum á tímum ótrúlegra breyt-
inga og vissulega boða þær ekki ein-
tóma hamingju eins og samdrátturinn
hérlendis minnir okkur illilega á. Sú
sköpunarbylting sem er að eiga sér
stað á sviði hönnunar er þó einn af
ljósu punktum tilverunnar og vel þess
virði að fylgjast með. Hlutirnir segja
sína sögu!
PÖKKUN PLASTUMBÚÐAGERÐ
Almenn pökkunar- og vörumerkingarþjónusta
á smávörum t.d. vélpökkun á pappaspjöld
(blister og skin). Við framleiðum einnig ýmsar
plastvörur, t.d. plastumbúðir fyrir matvælaiðnað,
lyfjaframleiðslu, konfektgerð o.fl., einnota
svuntur og smakkskálar til matvælakynninga.
ÖEYI
Pökkunarþjónusta/prjónastofa
Kársnesbraut 110
Póstnúmer: 200 Kópavogi
Sími: 91-13277
44