Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 7

Frjáls verslun - 01.08.1989, Side 7
46 TÖLVUR-VIÐSKIPTI Leó M. Jónsson tæknifræðingur ritar athyglisverða grein sem einkum fjallar um varhugaverða sölumennsku á tölvukerfum og tölvubúnaði. Hann segir að kaupmennska sé ekki öllum gefin og að grundvallarmunur sé á kaupmennsku og sölumennsku. Kaupmaður sinni þörfum viðskiptavinanna með þeim hætti að þeir verði ánægðir og sækist eftir áframhaldandi viðskiptum en óprúttinn sölumaður skilji eftir sig sviðna jörð með því að véla viðskiptavininn til viðskipta sem hann sé ósáttur við og komi því aldrei aftur til frekari viðskipta. 50 FISKELDI Ian MacFarlane er skoskur sérfræðingur í fiskeldi sem starfað hefur á þeim vettvangi víða um heim, þar á meðal á íslandi. Hann er vel kunnugur starfsemi og uppbyggingu fiskeldisstöðva hér á landi og ritar grein um framtíð fiskeldisins á íslandi. Hann tekur djúpt í árinni og gagnrýnir menn fyrir störf og stefnu í fiskeldismálum okkar. Gagnrýnin er það hörð að okkur þótti rétt að gefa talsmanni fiskeldisfyrirtækja hér á landi tækifæri til að tjá sig um skoðanir MacFarlanes. Það er formaður Landssambands fiskeldis-og hafbeitarstöðva, Guðmundur G.Þórarinsson alþingismaður, sem skýrir frá skoðunum sínum á greininni og spyr hvort gestsaugað sé glöggt. 56 AÐ UTAN 58 LÖGFRÆÐI Ólafur Garðarsson iögfræðingur fjallar að þessu sinni um málsmeðferð skuldamála sem mörgum þykir býsna seinvirk og beinlínis til þess fallin að vemda skuldara á kostnað kröfueigenda sem æði oft sitja uppi með sárt ennið og tapaðar kröfur. Fram kemur að unnið sé að breyttum reglum sem hklegar em til að flýta innheimtumeðferð skulda og koma í veg fyrir að unnt sé að beita úreltum Iagakrókum til að verjast innheimtuaðgerðum. 62 ERLENT 66 BRÉF FRÁ ÚTGEFANDA MERCEDES BENZ100 D - NÝR VALKOSTUR FYRIRTÆKI - VERKTAKAR - SENDIBlLSTJÓRAR MB 100 D er 72 hestafla diselbifreið. Framhjóladrifin. 5 gíra og með aflstýri. Burðargeta ca. 900 kg. MB 100 D pallbifreið MB 100 D sendibifreið Verð kr. 1.480.000 (gengi dem 3i,ookr.) Verð kr. 1.670.000 (gengi DEM 31,00 kr.) MB 100 D Nýr valkostur frá MERCEDES BENZ RÆSIR H.F. Skúlagötu 59 Sími 91-619550

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.