Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 32
FERÐAMAL
Steinn ásamt Þorvarði Guðlaugssyni sölustjóra hjá Flugleiðum í London.
mikið til að fá betri nýtingu. Við höf-
um verið með þetta á réttri leið á
Norðurlöndunum. Sem dæmi má
nefna að á síðustu fjórum árum hafa
44% ferðamanna frá Svíþjóð til Is-
lands komið í júmjúlí og ágúst. Við
Flugleiðamenn erum staðráðnir í að
gera átak til að jafna álagið og auka
flutningana utan háannatímans. Það
munum við m.a. gera með því að
beina meira auglýsingafé inn á vetrar-
mánuðina á kostnað sumarsins"
Þegar við biðjum Stein að bera
saman viðskiptavini Flugleiða í Eng-
landi og Noregi þar sem hann starfaði
áður, svarar hann því til að um veru-
lega ólíka hópa sé að ræða. „Bretam-
ir eru mun eldra fólk en viðskiptavinir
okkar á Norðurlöndum. Þeir eru því
rólegri og yfirvegaðri. Talsvert er um
eftirlaunafólk í hópi breskra við-
skiptavina okkar, fólk sem gjarnan
hefur góð fjárráð. Einnig hefur lengi
verið áberandi að yfir sumarmánuðina
kemur mikið af bresku fólki til íslands
sem er vel menntað og vel lesið. Það
veit mikið um landið og kaupir pakka-
ferðir til að ferðast um og sjá sem
mest af náttúra íslands. Oft er um að
ræða kennara og aðra láglaunamenn
sem eru mjög næmir fyrir verðlagn-
ingu okkar.
Fyrir nokkrum árum byijuðu Flug-
leiðir að auglýsa Reykjavík á Norður-
löndum sem skemmtilega, lifandi
borg sem hefði fram að færa flest það
sem ferðamenn sæktust eftir. Menn
gátu auðvitað skilið þetta á ýmsan
hátt. En fræg varð lopapeysuauglýs-
ing Flugleiða þar sem þrjár myndar-
legar konur íklæddust sömu peysunni
og buðu ferðamenn velkomna til ís-
lands. Þessi auglýsing varð að nokkru
leiti táknræn fyrir nýjar áherslur við
að selja styttri ferðir, einkum fyrir
yngra fólk um helgar. Árangurinn
varð góður enda kom margt annað til
en þessar vel heppnuðu auglýsingar.
Hér í Bretlandi er nú framundan hjá
okkur að klæðskerasauma fleiri stutt-
ar ferðir fyrir Englendinga til íslands
með þessu Skandinavíuívafi. En þar
sem markaðirnir eru ólíkir verða
áherslumar mismunandi þótt hægt sé
að tala um greinar á sama meiði. Það
verður spennandi að sjá hvernig tekst
til og hvort okkur tekst að láta góða
hugmynd af einum markaði heppnast
á öðrum sem um margt er gjörólík-
MALBIKUN
ÁRALÖNG STARFSREYNSLA
MALBIK OG VÖLTUN HF.
FLÓKAGÖTU 60
H.s. 23762 - 11450 - 623148 - 985-23549
ÖNNUMST ALLA MALBIKUN UNDIRBÚNINGSVINNU OG MALBIKSVIDGERDIR