Frjáls verslun - 01.08.1989, Page 62
ERLENT
JAPANIR SKJÓTA BANDARÍKJAMÖNNUM REF FYRIR RASS:
ÞRÓUN UPPFINNINGA
SKIPTIR MESTU MÁLI
Rétt fyrir síðustu aldamót sagði
einn af félögum frönsku akademíunn-
ar að nú gætu uppfinningamenn farið
að taka lífmu með ró því nú væri í raun
búið að finna upp allt það sem hægt
væri að finna upp og gæti orðið mann-
kyninu að gagni. Úr þessu yrðu menn
að láta sér nægja að njóta hlutanna.
Þessi orð voru sögð eftir að Edison
hafði fundið upp ljósaperuna, sjálf-
virka ritsímann, rafknúnu eimreiðina
og bílinn, kvikmyndavélina og ótal
aðra smærri hluti. Hann setti einnig
fram grundvallarkenningar um aðra
hluti sem síðar urðu undirstaða nýrra
uppfmninga og framfara. Síðan þessi
frægu orð voru sögð hafa komið ffam
á sjónarsviðið flest þau tæki og þæg-
indi sem móta daglegt líf flestra
manna.
ÓÞRJÓTANDI EUAOGIÐNI
ER UNDIRSTAÐA FRAMFARA
Það er löngu viðurkennt að ein
sterkasta hlið Edisons hafi verið að
vinna að þróun uppfinninga sinna og
annarra, breyta þeim og bæta þangað
til þær fullnægðu þörfum notend-
anna. Edison var ekki maður kenn-
inganna heldur harðjaxlinn sem próf-
aði sig þrotlaust áfram og lærði af
hverjum þeim mistökum sem hann
gerði.
Nú á tímum er það ekki nóg, ekkert
frekar en á dögum Edisons, að finna
nýjar aðferðir eða nýja hluti sem geta
orðið mannkyninu að gagni. Nú sem
fyrr þarf að margreyna uppfinninguna
og „kreista" fram í henni alla mögu-
leika til að efla hana og bæta.
í þessu felst hin eiginlega rann-
sókna- og tilraunastarfsemi sem er
öllum þjóðum afar mikilvæg. En þessi
starfsemi er mjög dýr og þegar for-
ráðamenn þjóða eru að velta fyrir sér
spamaðarleiðum þá verður rann-
sóknastarfsemi oft fyrir valinu til nið-
urskurðar á útgjöldum.
Japanir meta rannsókna- og til-
raunastarfsemi allra þjóða mest. Þeir
geta ekki státað af því að hafa sett
fram margar uppfinningar, sem kom-
ið hafa mannkyninu vel, en þeir hafa
verið öllum öðrum þjóðum iðnari við
að þróa nýjar uppfinningar annarra og
varið til þess miklu fé enda líklega
auðugasta þjóð heimsins nú á tímum.
JAPANIR TAKA FORYSTUNA
Nýjasta dæmið um þetta er, að Jap-
anir hafa tekið forystu um þróun nýrr-
ar uppfinningar sem bandarískir vís-
indamenn kynntu fyrstir. Sagt er að
ástæðan sé fyrst og fremst sú að jap-
önsk stjórnvöld leggja hærri fjárupp-
hæðir í rannsóknastarfsemi en
Bandaríkjamenn.
Arið 1987 fengu tveir rannsókna-
menn IBM-fyrirtækisins Nóbels-
verðlaun fyrir að uppgötva nýja og
áður óþekkta ofurleiðandi postulíns-
tegund. Ofurleiðni þessa postulíns
þýddi að hægt var að flytja raforku til
án nokkurs orkutaps.
Það var vitað þá þegar að slíkt
postulín gæti leitt til þess að tölvur
yrðu hundrað sinnum hraðvirkari en
nú þekkist og að hægt væri að smíða
rafknúnar eimreiðir sem gætu náð allt
að 500 km hraða á klukkustund á
loftpúðum.
Eftir að bandarísku uppfmninga-
mennirnir kynntu undirstöðuatriði
þessarar uppgötvunar réðu þeir ekki
lengur einir framvindu málanna. Jap-
anir hófu sína tilraunastarfsemi á
þessu sviði og nýjar kannanir benda til
að Bandaríkjamenn séu að glopra nið-
ur frumkvæðinu á þessu sviði, alveg
eins og þeir gerðu varðandi eigin upp-
götvanir með myndbönd, litasjónvörp
og hálfleiðara.
GLATAÐ FORYSTUHLUTVERK
í skýrslu sem tækniskrifstofa
Bandaríkjaþings hefur sent frá sér
segir m.a.:
Á fjárhagsárinu 1988 verja Banda-
ríkjamenn 95 milljónum dollara til
rannsókna á ofurleiðurum. En nærri
helmingur upphæðarinnar er eyrna-
merktur landvörnum, aðallega til að
kosta tilraunir við „Stjömustríðs" —
áætlunina. Japanir verja 70 milljónum
dollara til sama verkefnis og hver ein-
asti dollari fer í tilraun til að hagnýta
kenninguna til hagsbóta fyrir almenn-
ing.
Japanir verja meira fé og hafa meiri
mannafla við framleiðslu ofurleiðara
en nokkur önnur þjóð. Bandarísk
fyrirtæki að undanskildum IBM, Du
Pont og AT&T leggja meiri áherslu á
rannsóknir án ákveðins takmarks,
„vilja bíða og sjá til hvað setur.“
Bandarísk stjórnvöld hafa á ýmsan
hátt örvað vöxt og viðgang í tölvu-,
hálfleiðara- og leisergeislaiðnaði í
Bandaríkjunum. En sú hvatning kom
helst til of seint því er það skoðun
Bandaríkjamanna sjálfra að mörg önn-
ur ríki, ekki síst Japan, séu orðin jafn-
víg þeim á þessum sviðum og að þeir
muni aldrei aftur ná því forskoti og því
frumkvæði sem þeir höfðu á þessum
tæknisviðum um langt skeið.
- A.St. Denver, Colorado
62