Frjáls verslun - 01.06.1993, Qupperneq 12
FRETTIR
ALFASTEINN HLÝTUR ALÞJÓBAVIBURKENNINGU
Álfasteinn hf. á Borgar-
firði eystra hlaut nýlega
viðurkenningu Alþjóða-
samtaka umbúðafram-
leiðenda (World Packag-
ing Organisation). Viður-
kenningin var veitt á
alþjóðlegri ráðstefnu,
Interpack 93 í Dússeldorf
í maí.
Þetta er raunar ekki í
fyrsta skipti sem Álfa-
steinn hlýtur viðurkenn-
ingu á erlendum vett-
vangi. Það fékk viður-
kenningu í norrænu
umbúðasamkeppninni
Scanstar fyrir ári og öðl-
Helgi Arngrímsson, framkvæmdastjóri Álfasteins hampar hér
viðurkenningu Alþjóðasamtaka umbúðaframleiðenda. Til
hægri við hann er Jón Þórisson hönnuður umbúðanna.
aðist þannig þátttökurétt
í Worldstar.
Umbúðir Álfasteins eru
gjafaöskjur úr tré og
hálmi með glerloki.
Fyrirtækið keppti í flokki
gjafavöruumbúða en alls
tóku umbúðir frá 26 lönd-
um þátt í samkeppninni.
Hönnuður umbúðanna
er Jón Þórisson, leik-
myndateiknari hjá Borg-
arleikhúsinu. Hönnunin
er hluti af verkefninu
F rumkvæði-F ramkvæmd
sem er samstarfsverkefni
Iðnlánasjóðs og Iðn-
tæknistofnunar íslands.
SAMSKIP SEMUR VIÐ EIMSKIP UM BANDARÍKJASIGLINGAR:
MIKILL KOSTNAÐUR AF ÞESSARI LEIÐ
- VERULEG UMSKIPTI í REKSTRI
Árni Geir Pálsson,
markaðsstjóri Samskipa,
segir að samningur fyrir-
tækisins við Eimskip um
flutninga milli íslands og
Bandaríkjanna, sem
verið hafi um 6 prósent af
tekjum þess, styrki stöðu
Samskips en veiki ekki
eins og sumir hafi rætt
um eftir að samningurinn
var kynntur. Jafnframt
hafa Samskip gert samn-
inga við erlend skipafélög
um flutninga til og frá
Bandaríkjunum í gegnum
Evrópu.
Árni segir að eftir
stefnumótun og endur-
skipulagningu skilgreini
félagið hlutverk sitt nú
sem „alhliða flutninga-
þjónustufyrirtæki“.
Kjarni þeirrar stefnu
sé að nýta hagstæðustu
möguleika sem gefast
hverju sinni hvort sem er
með eigin skipum eða
flutningatækjum ann-
arra.
„Við erum einfaldlega
að hámarka hagnað af
siglingum á milli íslands
og Bandaríkjanna. Með
samningum við aðra bjóð-
um við nú tíðari flutninga
og nýtum okkur mikla
umframflutningagetu
annarra á þessari leið.
Bandaríkjasiglingarnar
hafa skilað okkur litlum
tekjum en miklum kostn-
aði. Á síðasta ári voru
fjögur félög að sigla á
milli íslands og Banda-
ríkjanna með fimm skip-
um. Félagið getur ekki
réttlætt langvarandi tap á
neinum hluta starfsem-
innar.“
Hann segir veruleg um-
skipti hafa orðið í heildar-
rekstri Samskipa frá í
fyrra er félagið tapaði um
490 milljónum króna, þar
af um 200 milljónum
vegna hærri fjármagns-
kostnaðar frá árinu á
undan. „Þrátt fyrir heild-
artap upp á nokkra tugi
milljóna á fyrstu mánuð-
um þessa árs hefur upp-
stokkunin á fyrirtækinu
gengið það vel að gert er
ráð fyrir að reksturinn
verði hallalaus þegar upp
verður staðið í lok árs-
ins.“
Að sögn Árna gera
Árni Geir Pálsson, markaðs-
stjóri Samskipa, segir að fé-
lagið skilgreini sig nú sem al-
hliða flutningaþjónustufyrir-
tæki sem nýti sér
hagstæðustu möguleika sem
gefast hverju sinni hvort sem
er með eigin skipum eða
flutningatækjum annarra.
Samskip ráð fyrir lægri
rekstrartekjum á þessu
ári vegna minni neyslu í
kjölfar minnkandi ráð-
stöfunartekna. Rekstrar-
kostnaður lækki hins
vegar miklu meira.
Stærri og öflugri skip hafi
verið tekin í notkun jafn-
framt því sem skipum í
áætlunarsiglingum hafi
verið fækkað úr átta í
fjögur. Stefnt sé að sölu
þriggja skipa á árinu.
Fjárhagsstaða Sam-
skips í lok síðasta árs var
þannig að eigið fé félags-
ins, eignir umfram skuld-
ir, var um 493 milljónir
króna. Landsbankinn, í
gegnum eignarhaldsfélag
sitt Hömlur hf., er lang-
stærsti eigandi þess eftir
að hann keypti 84% hlut
Sambandsins í því. Bank-
inn hefur lagt mikla
áherslu á að endurskipu-
leggja félagið og rétta
reksturinn við. Sam-
þykkt hefur verið að auka
hlutaféð um 180 milljónir
og hefur bankinn lýst yfir
vilja til að auka hlutafé
sitt í samræmi við sinn
hlut eða um 150 milljón-
ir.
12