Frjáls verslun - 01.06.1993, Blaðsíða 46
TOLVUR
„NuTUBÓK" FRÁ AST
Það er orðið langt þróunarskeið
færanlegra tölva. Eina af fyrstu flytj-
anlegu PC-tölvunum, sem nú er orðin
safngripur, mátti rogast með á milli
vinnuborða. Hún nefndist þó „IBM
PC Portaþle". Algeng ferða-
tölva, nú 12 árum síðar, er minni
um sig en hnappaborð IBM PC
Portable, samt sem áður mörg
hundruð sinnum öflugri og fljótv-
irkari og með grafíska eiginleika
sem hefðu þótt óhugsandi fyrir
nokkrum árum síðan.
Nýjustu fartölvurnar, sem
nefnast „Notebook" og hafa
verið nefndar „fistölvur", eru á
stærð við skrifblokk. Þær eiga
það sameiginlegt að byggjast á
örgjörvanum 80486 frá Intel.
Þótt verð þeirra sé vel á 2.
hundrað þús. kr. má fullyrða að
sú tölvunargeta, sem fyrir það fé
fæst, er ekki dýr, a.m.k. ekki
fyrir þá sem geta nýtt eiginleika þess-
ara tækja að einhverju marki. Orðið
„fistölva" sýnir ákveðin galla nýyrða
sem setja einskonar punkt aftan við
sjálf sig, gera ekki ráð fyrir að þróunin
haldi áfram. Hvað á að t.d. að kalla
næstu kynslóð fartölva sem verða
enn léttari en fis?
486-fartölvurnar eru ótrúlega lík-
ar, ekki einungis í útliti heldur einnig
hvað varðar tæknilega eiginleika og
getu. Ein þeirra fáu, sem skera sig úr
í tæknilegu tilliti á fleiri en einn hátt,
er „Power Exec“ (PE) frá bandaríska
fyrirtækinu AST Research (EJS). Ef
hægt væri að segja að AST PE sé
klæðskerasaumuð fyrir einhvern
ákveðinn hóp PC-notenda þá eru það
án efa stjórnendur fyrirtækja, stofn-
ana og deilda.
AST PE er, í grunnútfærslu, með
486-gjörva (SL) með 25 megariða
tiftíðni, 4ra megabæta vinnsluminni,
svart/hvítum skjá og 60 megabæta
föstum diski sem þolir mikið hnjask.
Hægt er að velja tölvuna með a.m.k.
tvenns konar litskjá, föstum diski frá
60-200 Mb og með vinnsluminni frá
4-32 megabæta. Hraðminni er 64 Kb.
Með AST PE fartölvunni má fá sér-
stakan ramma sem henni er
smellt í á skrifborði og er hún þar
með orðin eins og hver önnur
PC-borðtölva. Sérstakt töl-
uhnappaborð, þ.e. aukaborð, er
fáanlegt sé þörf fyrir reiknivélar-
hnappa. Faxkort á stærð við krít-
arkort, sem jafnframt inniheldur
símamótald, er fáanlegt, einnig
straumleiðsla til tengingar við
12v rafkerfi bfls. Og af löngum
lista yfir annan aukabúnað, sem
ekki verður tíundaður hér frek-
ar, skal geta festiólar en með
henni er hægt að tjóðra fartölv-
una og læsa fastri, t.d. við rúm
eða miðstöðvarofn, og eftir því
sem sagt er mun ekki vera van-
þörf á eigi að vera óhætt að skilja hana
eftir t.d. í hótelherbergi.
Þegar nýja farsímakerfið tekur við
af því gamla innan skamms ætti eftir-
spurnin eftir fartölvum til nota í bflum
að aukast. Astæðurnar eru margar en
þær helstar að nýja kerfið mun virka
alls staðar á landinu, truflanir verða úr
sögunni, hlerun á FM-tíðnisviði verð-
ur úr sögunni og með því verður hægt
Glæsilegur gististaður
í frábæru umhverfi
Bifröst í Borgarfirði er sumarhótel sem
búið er öllum þeim þægindum sem
ferðamaður vill njóta á góðum gististað
# í hótelinu eru 26 herbergi
# 2 manna herbergi með baði á kr. 4.990-
# 2 manna herbergi án baðs á kr. 3.600-
# Svefnpokapláss á kr. 700-
0 Gufubað • Ijósabekkur • íþróttahús
# Sérréttaseðill • réttir dagsins
# Fjölbreitt hlaðborð á sunnud. frá 4. júlí til 8. ágúst
# Tilboðsverð á öli á fimmtudagskvöldum
# Hugguleg setustofa með ami
Leitið upplýsinga og gerið pantanir á Hótel Bifröst
Hótel Bifröst, Borgarfirði, sfmi 93-50000
fax 93-5020
46