Frjáls verslun - 01.06.1993, Page 49
ERLENT
BAN DARISKISIMARISINN
AT&T HAGNAST MJÖG VEL
- SAMHELDNI, JÁKVÆTT HUGARFAR OG ÁHERSLA Á VIÐSKIPTAVININA
SKAPA ÁRANGURINN
Bandaríski símarisinn AT&T
gerir það gott. Tekjurnar hafa
aukist, hagnaðurinn sömuleiðis
og þá fylgir hið þriðja yfirleitt í
kjölfarið, hlutaféð í fyrirtækinu
hefur stórhækkað í verði. Nú er
svo komið að fyrirtækið er það
fjórða verðmætasta í heimi, að
mati markaðarins, og raðar sér
á eftir Nippon Telegraph & Tele-
phone, Exxon og General El-
ectrics. Arangur fyrirtækisins
byggist á mikilli og góðri sam-
heldni innan þess, jákvæðu og
fordómalausu hugarfari stjórn-
enda og síðast en ekki síst,
áherslu á þarfir viðskiptavin-
anna.
ROBERT ALLEN INNLEIDDI
HUGARFAR LIÐSHEILDAR
Forstjóri AT&T er
Robert Allen, 58 ára, og
réðist hann til fyrirtækis-
ins árið 1988. Hann hefur
breytt „kúltúr“ þess og
innleiddi nýtt hugarfar
sem byggist á liðsheild
og samvinnu starfs-
manna við að ná árangri
— sem ekki hefur látið á
sér standa. Allen ætlar
sér mikla hluti með fyrir-
tækið á alþjóðlegum
vettvangi á næstu árum.
Það sér hann fyrir sér
vaxtarbrodd þess, ekki
síst vegna sífelldra
tækninýjunga í rafeinda-
iðnaði og fjarskipta-
tækni.
Allen ákvað í septem-
ber 1991 að gera Jerre nokkum Stead
að yfirmanni Global Business Gom-
munications Systems, undirfyrirtæk-
is AT&T sem framleiðir síma og tól
fyrir skrifstofur. Fyrirtækið hafði tap-
að milljörðum. En þegar eftir fyrsta
mánuðinn sneri Stead dæminu við og í
stað taps fór fyrirtækið að mala gull.
Þetta varð til þess að Allen gerði
Stead í mars síðastliðnum að yfir-
manni NCR, tölvufyrirtækis sem
AT&T keypti á 7,5 milljarða dollara á
hlutabréfamarkaði árið 1991.
KALLIÐ MIG FREKAR
ÞJÁLFARA EN STJÓRA
Jerre Stead er fimmtugur. Hann
þykir sína í verki hinn nýja „kúltúr“
innan AT&T sem liggur að baki ár-
angri þess. Jerre er lýst þannig: Hann
lokar aldrei dyrunum á skrifstofu
sinni. Hann hefur meira að segja látið
fjarlæga lásimi. Á fundum með starfs-
mönnum sínum segist hann ekki vera
stjórinn. Kallið mig frekar þjálfara, en
þannig lít ég á hlutverk mitt, og um-
gangist mig þannig.
Hann þykir mjög herskár og fylginn
sér. Hann heimtar árangur og vill að
þarfir viðskiptavinanna séu ævinlega
hafðar að leiðarljósi. Hann segir við
starfsmenn sína: „Hafi fundur í fyrir-
tækinu staðið í fimmtán mínútur,
hvaða fundur sem er, án þess að
minnst hafi verið á viðskiptavinina
eða keppinautana, skulið þið rétta
upp hönd og spyrja hvers
vegna það hafi ekki verið
gert. Verði engin breyt-
ing á næstu fimmtán mín-
úturnar skulið þið standa
upp og fara. Yfirgefið
fundinn. Þið hafið ekkert
að gera á honum.“
ALLT Á UPPLEIÐ EFTIRAÐ
SLEGIÐVARÁ
EINOKUNINA
Fyrir níu árum, 1. jan-
úar 1984, höfðu banda-
rísk stjórnvöld afskipti af
AT&T vegna mikillar
einokunar þess á símam-
arkaðnum vestanhafs.
Fyrirtækið var klofið upp
í sjö minni fyrirtæki sem
störfuðu svæðisbundið.
Þá var langlínudeildin,
Ma Bell fyrirtækið, að-
greind frá meginstar-
Eftir að bandarísk stjórnvöld kröfðust þess að fyrirtækið
yrði brotið upp árið 1984 vegna mikillar einokunar þess
hefur þetta gerst. AT&T hefur minni hlut á markaðnum en
markaðurinn hefur stækkað og tekjurnar aukist.
49