Frjáls verslun - 01.09.1995, Qupperneq 22
SIGRI FAGNAÐ MEÐ BIG MAC
Samherjamenn þorðu ekki að trúa því að sigur væri í höfn fyrr en tilkynning
var gefin út mánudaginn 13. nóvember. Sagt er að þeir hafi ekki fagnað sigrinum með
kampavíni og látum heldur með því að storma út á McDonalds hamborgarastað og þar
var splæst í tvöfaldan BigMac fyrir snörpustu sennu sem íslenskur sjávarútvegur
hefur staðið í um langa hríð.
hernaður sem geisaði við stíf-
bónuð fundarborðin í Cuxhaven
og um símalínur milli landa þær
taugaspenntu vikur sem nú
fóru í hönd. Oft var lítið sofið í
herbúðum Samheijamanna
næstu vikumar og ekki ríkti
alltaf bjartsýni hjá okkar mönn-
um. Á stundum voru þeir ekki
vissir um að sigur myndi hafast
og óttuðust reyndar stundum
að Norðmaðurinn myndi hafa
beturálokasprettinum. Þessar
síðustu vikur samninganna
voru því gífurlegt taugastríð
eða algjör þriller eins og sagt er
á nútímamáli.
an pakkann
mannsins.
í hendur Norð-
Samherjamenn voru útnefndir menn ársins í ís-
lensku viðskiptalífi árið 1989 £if Frjálsri verslun
og Stöð 2. Síðan hefur veldi þeirra margfaldast
og teygt sig út fyrir landsteinana.
LOKASPRETTURINN
Síðustu vikumar runnu saman í
einn samfelldan fund, sérstaklega
tíminn eftir 20 október. Á lokasprett-
inum, þegar taugatitringurinn var
sem mestur, fóm þeir bræður Þor-
steinn og Kristján út til Þýskalands til
fTRIRTfEKI
STOfNANIR
r VELJIÐ
ÍSLENSKAR
VÖRUR
<2>
íslenskt Qjátakk
SAMTOK
m IÐNAÐARINS
að ákvarðanataka gæti gengið hraðar
fyrir sig. Það dugði ekki lengur að
leggja á ráðin í gegnum síma. Sam-
herjamenn þurftu enn að bretta upp
skyrtuermamar og fínstilla tilboð sín í
DFFU því þótt það væri sannarlega
ekki ætlun þeirra að hækka boðið í
eiginlegum skilningi þess orðs þá
þurfti auðvitað að mæta því með
sveigjanleika að svo hörð samkeppni
sýndi sig á lokasprettinum. Það, sem
einkum og sér í lagi var tekist á um,
var framtíð stálsmiðju og dráttar-
brautar sem er í Cuxhaven og í eigu
DFFU. Þennan hluta af starfseminni
höfðu Samherjamenn ekki ætlað að
láta fylgja með í kaupunum því þeir
töldu sér ekki hag í því auk þess sem
sérþekking þeirra liggur á sviði út-
gerðar en ekki stálsmiðjureksturs og
skipasmíði. Um þetta var orðin sátt
og þýskir mótaðilar orðnir rólegir
með þá hugmynd að stálsmiðjan fylgdi
ekki með í kaupunum. Kjell Inge var
hinsvegar tilbúinn til þess að láta
þennan rekstur fylgja og gaf í skyn að
hans biðu arðbær verkefni við skipa-
smíðar og viðgerðir fyrir önnur skip
stórveldis RGI. Svo fór að lokum að
þetta innhlaup hans í viðræðurnar á
lokasprettinum varð til þess að Sam-
herjamenn keyptu líka smiðjuna og
dráttarbrautina frekar en að missa all-
SVARTUR EÐA BJARTUR
MÁNUDAGUR
Mörgum finnst mánudagur
vera óhappadagur, ekki síst
þegar hann ber upp á þrettánda
dag mánaðarins að auki. Mánu-
daginn 13 október var gefin út
formleg fréttatilkynning um
það frá aðilum málsins að eig-
endur DFFU hefðu ákveðið að
ganga til samninga við Sam-
herjamenn. Um helgina þóttust
Samheijamenn nokkuð vissir
um að sigurinn væri loksins í
höfn en þorðu ekki að trúa því fyrr en
tilkynningin var gefin út á mánudegin-
um. Sagt er að þeir hafi ekki fagnað
sigrinum með kampavíni og látum
heldur með því að storma út á
McDonalds hamborgarastað í ná-
grenninu, sem þeim var orðinn vel
kunnugur eftir undanfama mánuði, og
þar var splæst í tvöfaldan BigMac
handa sigurvegurunum í snörpustu
sennu sem íslenskur sjávarútvegur
hefur staðið í um langa hríð.
Þennan sama bjarta mánudag, mun
Kjell Inge Rpkke hafa farið frá Cux-
haven í einkaþotu sinni.
13. nóvember er annars sögufræg-
ur dagur fyrir íslenskan sjávarútveg.
13. nóvember 1973 má segja að
íslendingar hafi sigrað í þorskastríð-
inu um 50 mílurnar því þá veitti Al-
þingi ríkisstjórninni heimild til að ljúka
samningum við Breta.
13. nóvember 1985 var Bæjarút-
gerð Reykjavíkur sameinuð ísbimin-
um hf. og þá varð Grandi hf. til sem er
stærstur íslenskra fyrirtækja í útgerð
og fiskfinnslu.
Þegar sigurvíman rann af mönnum
varð þeim ljóst að sigurinn var í raun
stærri en hann sýndist vera. Þama
hafði íslenskur sjávarútvegur gengist
undir stöðupróf í hörðum heimi alþjóð-
legra viðskipta og staðist með láði.
22