Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1995, Page 41

Frjáls verslun - 01.09.1995, Page 41
BOÐORÐIN 10 í TÍMASTJÓRNUN 1. Settuþér skýr, skrifleg markmið. 2. Búðu til skriflega áætlun um hvernig markmiðum skuli náð. 3. Hafðu verkefnalista fyrir daginn, vikuna og mánuð- inn. 4. Forgagnsraðaðu öllum verkefnum, mundu 80/20 ogABC reglurnar. 5. Snúðu þér alltaf að mikilvægasta verkefninu og Ijúktu því strax. tf ÍHOMAS MOLUEfi fciníaitíar fift áhritarikar aöierðif sem sJfcspí gaite , sköpam ura árangar pinr. í starti og einkaiiíi > 30 ÁHRIFARÍK RÁÐ TSMASTJÓRNUN 0G MARGFALBA ÁRANGUR HAGNÝT RÁÐ SEW SPÁBA ÞÉB J ALLT AD 6L WÍNÚTUR Á DAG l Meðþt'aí spara'eiiiaklidtteönfttf é hmjure óez'; leagir þú »>t arr ailt at einr. og feáifar njáwtí * H*érjvgartir tré ekk: afrckaC siikt fctskct? Tímabær bók. 6. Hættu að fresta verkefnum. Segðu: „Gerðu það núna!“ 7. Búðu til „vinnublokkir", 1x60 mín. nýtast betur en 6x10 mín. 8. Settu lokatíma á öll markmið, verkefni, fundi og áætlanir. 9. Framseldu verkefni til samstarfsmanna eða aðila „utanhúss 10. Hafðu jafnvægi milli einkalífs og vinnutíma. hún gagnast vel sem bók til að grípa til og lesa nokkur ráð í einu þá kemur það ekki niður á gagnsemi bókarinn- ar. Þá má byrja að lesa hana hvar sem er og grípa í hana hvar og hvenær sem er. Hún hefur engan söguþráð þannig að lesa má hana aftur á bak og áfram. Þessar endurtekningar eiga rætur sínar að rekja til þeirra nútíma vinnubragða, sem höfundur tileinkar sér, en það er að nota dauða tímann og skrifa á ferðatölvuna og lesa hug- leiðingar inn á spólu. Er ég alls ekki að lasta þessi vinnubrögð, öðru nær, því án þeirra hefði höfundur eflaust aldrei fundið tímann til að skrifa hana. Hún er þannig besta sönnun hvemig hægt er að nýta vel tímann! Bókin er einföld upptalning á 30 ráðum um tímastjórnun og þótt þau eigi kannski ekki öll við um alla þá er eitthvað við allra hæfi og flest eiga við um alla, óháð störfum. Það má eflaust finna að því að ráðin hafi verið of mörg eða þá að það hefði mátt fjalla um aðrar hliðar málsins en það er alltaf smekksatriði og í þessu tilfelli kýs Thomas að nefna þessi 30 til sögunn- ar en ég er viss um að hann hefur átt í vandræðum með að velja úr til þess að bókin uppfyllti skilyrði útgefandans um stærð. UMFJÖLLUN Bókin er í handhægu broti, vasa- bók, og gott uppflettirit sem grípa má til aftur og aftur. Hún er því tilvalinn ferðafélagi þar sem hún tekur ekkert pláss og er góð í dauða tímanum, enda kennir hún m.a. hvernig eigi að nýta hann betur! Bókin er vel skrifuð á góðu og eðli- legu máli og var mjög gaman að lesa lipran texta höfundar. Hann er stutt- orður en gagnorður, enda á hún ekki að taka of mikinn tíma frá lesandum! Fyrir þá, sem vilja fræðast meira um þessi mál, er gefið gott sýnishorn af þeim aragrúa af bókum sem til eru um þetta sívinsæla og þarfa viðfangsefni; tímastjómun. Þótt bókin sé skrifuð með stjórn- endur í fyrirtækjum og stofnunum í huga þá tel ég að allir ættu að hafa af henni gagn, bæði í einkalífi sínu og starfi. Það er óhætt að segja að bóka- klúbburinn (eða þekkingarklúbburinn eins og hann kýs að kalla sig) fari vel af stað með þessari bók og vona ég að það, sem eftir á að koma frá Vegs- auka, verði í svipuðum dúr, þá stend- ur útgáfan sannarlega undir nafni. Bókarhöfundur, Thomas Möller, er framkvæmdastjóri hjá Olís. 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.