Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1995, Síða 47

Frjáls verslun - 01.09.1995, Síða 47
hittast í Þjóðleikhúskjallaranum um áramót var þessi hópur á fyrstu sam- komunni af því tagi í slagtogi með Guðmundi Einarssyni. Því var komið á framfæri við Guðmund að þetta væri of hægrisinnaður og borgaraleg- ur hópur til þess að hann sómdi sér á þessari samkomu og síðan hippamir höfnuðu þeim hefur hópurinn hist í heimahúsum í staðinn. „Traust og trygglyndi," sagði Kristín Geirsdóttir, systir hans, að væru þeir eiginleikar sem einkenndu hann öðru fremur. Hallgrímur er lestrarhestur mikill og gönguferðir á yngri árum en Hall- grímur mun hafa lagt það af að mestu. „Hann er bestur fyrir framan arin- eldinn að kvöldi dags,“ sagði einn úr hópnum. Þessir kunningjar eru með mismikla íþróttadellu og munu hafa gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá Hallgrím með á skíðin, skautana eða blakið en án árangurs. Eina útivistin sem Hallgrímur stundar sem getur kallast því nafni er í fjölmörgum ferðum þeirra hjóna með vinum og frændum í sumarbústað sem þau hafa aðgang að og er í eigu fjölskyldu Aðalbjargar. Þetta er svo- Annarsvegar naut hann persónulegra vinsælda, sem komu stjórnmálum ekkert við, og í annan stað var hann snemma vel að sér í pólitískri um- ræðu og rökfastur og einbeittur eins og faðir hans. Hallgrímur og faðir hans áttu afar vel skap saman og ræddu oft mikið saman um stjómmál og þau vandamál sem upp komu í dagsins önn. Margir segja að þeir feðgar séu líkir persónuleikar þótt þess gæti ef til vill ekki í útliti en Hallgrímur hefur ekki fetað í fótspor föður síns á opinberum vettvangi og margir telja að það sé vegna þess að VINAHÓPURINN Umræddur vinahópur hittist ávaílt á nýársdag þegar efnt er til fagnaðar heima hjá einhverjum úr hópnum. Rifjaðar eru upp sögur og skemmtiatriði sem fylgt hafa hópnum lengi. Eitt hið klassískasta er þegar þeir frændur og vinir, Hallgrímur Geirsson og Kristinn Björnsson, syngja saman lagið um Málarameistarafélag Reykjavíkur úr gamalli sjónvarpsauglýsingu félagsins. Hópurinn, sem telur átta hjón, samanstendur af Hallgrími, Kristni, Jóni Ásbergssyni, Jóni Braga Bjarnasyni, Friðriki Pálssyni, Stefáni Friðfinnssyni, Oddi Eiríkssyni, Guðmundi Einarssyni og eiginkonum þeirra. og eyðir mörgum stundum á kafi í bókum. Hann er alæta á bækur en mun þó helst velja sér reyfara frekar en fagurfræðilegar bókmenntir. Það má halda því fram að hann sé heima- kær því þetta er hans helsta og eina tómstundagaman. Hann stundar ekki íþróttir, veiðir ekki lax og spilar ekki bridge. Með þessu má reyndar halda því fram að Hallgrímur skeri sig nokk- uð úr hópi þeirra, sem eru virkir í viðskiptalífinu, en meðal þeirra tíðk- ast mjög laxveiðiferðir, fótboltafélög, blakklúbbar og slíkir afkimar þar sem viðskiptatengslin eru treyst og slakað á í öðru umhverfi. Hallgrímur á sér samt ákveðna for- tíð í íþróttum því hann æfði körfubolta með ÍR um árabil og þótti býsna góð- ur körfuboltamaður, nóg til þess að hann var valinn í unglingalandslið. Þegar þar var komið sögu voru önnur áhugamál farin að sækja á hugann og aætti hann fljótlega að æfa körfubolta eftir þetta. Þéttasti kjami gömlu menntaskóla- díkunnar, Hallgrímur, Jón Bragi, stefán Friðfinns, Kristinn og Jón Ás- ærgs, fór stundum saman í útilegur lítill kofi í landi Brettingsstaða, efst í Laxárdal í Þingeyjarsýslu. Þarna er friðsælt og fagurt en búskapur mun á sínum tíma hafa lagst af á Brettings- stöðum vegna mýbits. „Hallgrímur er einstakt prúð- menni, dagfarsprúður og kurteis. Hann er lokaður og fremur fáskiptinn en menn skyldu þó varast að halda að hann sé einhver dula því hann er af- skaplega fastur fyrir og ákveðinn,“ sagði Jón Bragi Bjarnason, prófessor í efnafræði og góðkunningi Hallgríms í samtali við blaðið. Hallgrímur er yfirlýstur sjálfstæð- ismaður eins og hann á kyn til og hefur um árabil verið virkur félagi í flokknum og gegnt ýmsum trúnaðar- störfum fyrir hann og átt sæti á lands- fundi flokksins. Hann mun einnig hafa verið í stjóm Heimdallar um hríð á sínum yngri árum. Hallgrímur ólst upp við að vera elsti sonur manns sem var í fremstu víglínu stjórnmálanna fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. Kunnugir segja að Hall- grímur hafi aldrei verið látinn gjalda þessa á skólaárum sínum eins og oft vill þó verða. Ástæðan var tvíþætt. hann sé feiminn og hlédrægur. „Hann er hvorki feiminn né hlé- drægur heldur hefur tamið sér að vinna störf sín í kyrrþey og ferst það vel úr hendi. Hann er mannasættir og þótt hann sé fastur fyrir þá leysir hann jafnan mál þannig að allir geti vel við unað,“ sagði Kristinn Bjömsson, vin- ur Hallgríms og frændi. „Greindur, varkár og einlægur," sagði Jón Ás- bergsson að væru fyrst þrjú orðin sem honum kæmu í hug um Hallgrím. Hallgrímur er vanur stjómandi því hann hefur setið í stjóm Árvakurs um árabil og býr að þeirri reynslu. Hann er sagður dagfarsprúður og fáskiptinn stjómandi sem vill láta verkin tala og ætlast til hins sama af undirmönnum sínum. Þannig sýnir nærmyndin af Hall- grími B. Geirssyni hæglátan og heimakæran júrista sem leitar á náðir bókmennta frá erli hversdagsins. Hún sýnir mann sem er fæddur til þess að stýra málum fyrir sína hönd og sinnar fjölskyldu og axlar þá ábyrgð þegar hún er að honum rétt. Mann sem leitar ekki eftir sviðsljós- inu en þolir það vel þegar það á við. 47

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.