Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1995, Qupperneq 60

Frjáls verslun - 01.09.1995, Qupperneq 60
ERLEND VEITINGAHÚS Á vínsedlinum í La Capannina er mikið úrval af góðum vínum úr héraðinu. La Capannina í Torino á Ítalíu: VEITINGAHÚS SEM W SEGIR ENGUM FRÁ talskur matur er víðfrægur enda ítölsk matargerð afar íjölbreytt og svo er ítalskur matur hollur. ítalir snæða t.d. meira grænmeti en aðrir Evrópubúar. Flestir íslendingar þekkja ítalska matargerð en þá aðallega pasta og pítsur eða flatbökur. Það, sem gerir ítalska matargerð svo áhugaverða fyrir utan hollustuna, er hversu fjöl- breytt hún er. Hvert hérað hefur sín séreinkenni. EINN BESTIMATURINN FRÁ PIEMONTE Einn besti maturinn kemur þó að margra áliti frá Piemonte, sem er eitt nyrsta hérað Ítalíu. Piemonte hérað SigmarB. Hauks- son skrifar reglulega um þekkta erlenda bisnessveitingastaði í Frjálsa verslun. liggur að landamærum Frakklands og Sviss. Áður en Ítalía var sameinuð tilheyrði Piemonte hertogadæminu Savoe, en þá var töluð franska í hér- aðinu. Matargerð Piemontebúa er því náskyld þeirri frönsku. Höfuðborg héraðsins er Torino. Borgin er ákaf- lega falleg, enda var hún um tíma höf- uðborg Ítalíu, eða frá 1861-1864. Tor- ino er ein helsta iðnaðarborg ítahu. Þaðan koma 30% verðmæta alls iðn- vamings sem framleiddur er á ítah'u. í Torrino eru mörg þekkt stórfyrir- tæki. Nefna mætti Fiat, Martini og Olivetti. Kaupsýslumenn víða að eiga því oft erindi til borgarinnar. MEÐAL VINSÆLLA RÉTTA ER BAGNA CAUDA Matur Piemonte héraðs er á marg- an hátt ólíkur þeim ítalska mat sem við hér á íslandi eigum að venjast. Meðal vinsælla rétta er Bagna Cauda, sem er hrátt grænmeti skorið í strimla og dýft í heita og sterka hvít- lauksósu. Þá er ostafondu vinsæll réttur, enda framleiða Piemontebúar marga góða osta. Aðrir frægir réttir em Bollito Misto sem eiginlega er kjöt og kjötsúpa. Þessi réttur er þó töluvert fjölbreyttari en íslenska kjötsúpan. í Bollito Misto eru notaðar fímm eða sex tegundir af grænmeti, nauta-, grísa- ogkálfakjöt, kjúklingur, pylsur, nautatunga og ýmsar tegundir af kryddi. Margir réttir eru gerðir úr ýmsum tegundum af kjöti, t.d. villi- bráð sem soðin er í víni. Pasta er ekki eins vinsælt í Piemonte og sunnar á ítahu. Hrísgrjón em mun vinsælh og þá sérstök hrísgrjón sem ræktuð eru í Pódalnum. Þessir hrísgrjónaréttir kallast Risotto og em þeir mettandi en hollir. Stolt Piemontebúa er þó hvíti jarðsveppurinn sem héraðsbúar kalla „hvíta gimsteininn" og segir það nokkuð til um verðmæti hans. Bragð- ið af honum er mjög sérstætt, nánast ólýsanlegt og er hann mikið notaður í matargerð héraðsins. MIKIÐ ÚRVALAF GÓÐUM VÍNUM í Torino eru ótal margir frábærir veitingastaðir. Ég vil þó mæla með einum sem nefnist La Capannina. Þetta er ekki ferðamannastaður, heldur góður veitingastaður þar sem aðal áherslan er lögð á rétti úr hérað- inu. Þama er sem sagt hægt að kynn- ast matargerð Piemonte eins og hún gerist best. Á vínseðlinum er mikið úrval af góðum vínum úr héraðinu. í Piemonte er framleitt mikið af góðum vínum. Héraðsbúar vilja hafa vínin kraftmikil og öflug, enda segja þeir il vino che pane, eða vínið er sem brauð. Meðal þekktra Piemonte vína em Barolo og Barbaresco. La Capannina er hlýlegur veitingastaður, maturinn er sérlega góður og þjónustan frá- bær. Flestir starfsmanna tala ensku og virðast hafa ómælda ánægju af að segja gestunum frá því sem á mat- seðlinum er. Þessi veitingastaður er skammt frá miðborg Torino en þó em ekki margir sem vita af honum, nema þá helst sælkerar Torinoborgar. La Capannina, Via Donati 1, sími 545405. 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.