Frjáls verslun - 01.08.1996, Blaðsíða 30
Hillur
rekkar
Bjóðum allskonar
fager og ðilluM fyrir
stærri sem minni lagera.
Aðeins vönduð vara úr spænsku
gæðastáli. Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
SMIÐJUVEGI 70, KÚP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725
„Fólk í góðri þjálfun á auðveldara með að slaka á, dagleg streita minnkar og
auðveldara verður að ná góðum nætursvefni.“
LÍKAMSRÆKT
SEM LÍFSMÁTI
nhraustum hkama býr heilbrigð
sál. Þetta eru forn sannindi en
um leið ný. í hvert skipti sem
einstaklingur ákveður að breyta lífs-
háttum sínum og taka upp hollara líf-
erni með aukinni hreyfingu og líkams-
rækt kemst hann sér til mikillar undr-
unar að því að jákvæðar aukaverkanir
nýja lífsmátans eru fleiri en viðkom-
andi hafði grunað.
Reykingamaður, sem fer að stunda
líkamsrækt, verður iðulega afhuga
tóbaksfíkninni. Tóbakið á einfaldlega
ekki við þann nýja lífsstíl sem viðkom-
andi hefur valið sér, auk þess sem
regluleg líkamsþjálfun dregur úr tób-
akslöngun. Sá, sem stundar reglulega
einhverskonar líkamsrækt, verður
kraftmeiri. Það er ekki einvörðungu
þolið sem eykst og vöðvar sem
styrkjast heldur verða öll dagleg störf
manna auðveldari. Viðkomandi léttist
og stælist, jafnvel þótt viðkomandi
borði heldur meira eftir en áður.
Brennslan í líkamanum eykst einfald-
lega til mikilla muna. Framgangan
breytist og sjálfsmyndin styrkist.
Fólk í góðri þjálfun á einnig auðveld-
ara með að slaka á, dagleg streita t
minnkar og auðveldara verður að ná
góðum nætursvefni. Líkamsrækt
minnkar hættuna á hjarta- og æða-
sjúkdómum, háum blóðþrýstingi,
sykursýki og fjölmörgum fylgikvillum
streitunnar. Og síðast en ekki síst,
fólk sem þjálfar líkama sinn lifir betra
og virkara kynlífi!
Já, ástæður þess að lifa þokkalega
heilbrigðu lífi og stunda líkamsrækt
reglulega ættu að vera öllum ljósar.
Og miðað við allar jákvæðu aukaverk-
anirnar ætti það að vera keppikefli
hvers vinnuveitenda að sem flestir
starfsmannanna stundi reglulega lík-
amsrækt. Það tryggir ánægðara
starfsfólk með aukna starfsgetu og
færri veikindadaga. Með öðrum orð-
um; starfskrafturinn verður arðbær-
ari ef hann stundar líkamsrækt sér til
heilsubótar.
Líkamsrækt minnkar hættuna á hjarta- og
æðasjúkdómum, háum blóðþrýstingi, sykursýki og
fjölmörgum fylgikvillum streitunnar.
30