Frjáls verslun - 01.08.1996, Blaðsíða 34
Haraldur mætir aldrei í jakkafötum í vinnuna og hann er ekki stíft skipu-
lagður forstjóri með einkaritara sem vaktar hann hverja mínútu. Hann er
sjötti ættliður útgerðarmanna því ættir hans liggja beint til Sturlaugs,
útvegsbónda og sjósóknara í Rauðseyjum á Breiðafirði.
dóttur Jóhanns Jósefssonar alþingis-
manns.
Haraldur óx úr grasi á Akranesi á
sjötta og sjöunda áratugnum sem
stundum eru kaliaðir gullöld Skaga-
manna í fótbolta en fór hann ekki var-
hluta af því og fékk snemma mikinn
áhuga á þeirri kröfuhörðu íþrótt.
Vafasamt hlýtur að vera að telja Har-
ald til rokkkynslóðarinnar en hann
hefur losað tólf árin þegar fyrst
heyrðist í bresku Bítlunum á íslandi
og væri því nær að telja hann til Bítla-
geggjara. Akranes hefur alltaf verið
mikill tónlistarbær og Dúmbó og
Steini komu Skaganum óafmáanlega á
spjöld íslenskrar rokksögu en þeirrra
blómatími stóð einmitt á unglingsár-
um Haraldar.
TÓK UNGUR VIÐ TAUMUNUM
Skólaganga Haraldar var að því
leyti óvenjuleg að hann fór til Eng-
lands á skóla eftir gagnfræðapróf og
lagði stund á nám í ensku og verslun-
arfræðum við Dane End House Col-
lege í Englandi og lauk þaðan prófi
1968. Eftir að heim kom settist Har-
aldur á skólabekk í Samvinnuskólan-
um á Bifröst í Borgarfirði og lauk það-
an prófi 1970. Þegar því námi lauk hóf
hann störf hjá HB, sem þá var fjöl-
skyldufyrirtæki, og starfaði náið við
hlið föður síns allt til 1976 þegar Stur-
laugur, faðir hans, féll frá og Haraldur
tók við stjórnartaumunum aðeins 26
ára gamall. Þess má geta að Haraldur
Böðvarsson hóf eigin rekstur 17 ára
og Sturlaugur hóf störf með föður sín-
um rúmlega tvítugur.
Haraldur hefur, auk þess að stýra
fyrirtækinu, gegnt fjölmörgum trún-
aðarstörfum á sviði sjávarútvegs.
Hann hefur setið í stjórn Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og stjórn
Félags síldarsaltenda á Suður- og
Vesturlandi. Hann hefur átt sæti í
Síldarútvegsnefnd, stjórn Trygginga-
miðstöðvarinnar, stjórn Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna, stjórn
Coldwater Seafood, stjóm Rann-
sóknaráðs ríkisins og í stjóm Skelj-
ungs. Haraldur sat einnig í stjórn
fyrirtækja á Akranesi eins og Nóta-
stöðvarinnar, Sfldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunnar og Heimaskaga en
tvö síðarnefndu fyrirtækin sameinuð-
ust HB árið 1991.
AF SPJÖLDUM
KNATT8PYRNUSÖGUNNAR
Einnig hefur Haraldur látið veru-
lega til sín taka á sviði íþróttamála í
sinni heimabyggð og komið þar við
stjóm allt frá 1973. Þetta á sínar skýr-
ingar og kannski þær helstar að Har-
aldur var hörku fótboltamaður á sín-
um yngri ámm og þótti oft sýna snilld-
artakta á vellinum. Að sjálfsögðu lék
hann með ÍA og varð íslandsmeistari
með þeim fyrst í 2. deild 1968 en síðan
í 1. deild árin 1970, 1974 og 1975.
Haraldur var valinn í landslið íslands
hvað eftir annað og lék alls sjö lands-
leiki þegar ferill hans reis hvað hæst
sem fótboltamanns. Hann hefur fyrir
ötul störf að íþróttamálum verið
sæmdur gullmerki ÍSÍ og silfurmerki
KSÍ. Haraldur var á köflum sóknharð-
ur í fótboltanum og varð fyrstur ís-
lenskra knattspyrnumanna til þess að
vera dæmdur í leikbann í Evrópu-
keppni félagsliða árið 1975 og fór fyrir
vikið ekki með félögum sínum í ÍA til
Rússlands að leika við Dynamo Kiev.
Haraldur er kvæntur Ingibjörgu
Pálmadóttur, þingmanni Framsókn-
arflokksins og núverandi heilbrigðis-
ráðherra, en hún er fædd á Hvolsvelli
18. febrúar 1949, dóttir Pálma Eyj-
ólfssonar sýslufulltrúa þar og konu
hans, Margrétar ísleifsdóttur. Ingi-
björg ólst upp fyrir austan og gekk í
gagnfræðaskólann á Skógum en lauk
hjúkrunarfræðinámi 1970 og réðst til
starfa á sjúkrahúsinu á Akranesi og
þar lágu leiðir þeirra saman.
Þau Haraldur og Ingibjörg eiga
Qóra syni saman. Þeir eru Sturlaugur
MEÐ OFNÆMI FYRIR FUNDUM
Haraldur er feiminn að eðlisfari og virðist vera hógvær því oft hefur hann
sig ekki mikið í frammi heldur lætur öðrum eftir sviðsljósið. Hann hefur sagt að
hann hafi ofnæmi fyrir þrennu: Fundum, dansleikjum og fjölmiðlum.
34