Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1996, Side 38

Frjáls verslun - 01.08.1996, Side 38
HREKJAST UPP Á MALBIKIÐ Vegagerðin dregur lappirnar. Á meðan hrekjast hópar hestamanna um land aiit upp á maibikið og hættan á stórslysum magnast stöðugt. ífellt fjölgar þeim vegum á landinu sem státað geta af bundnu slitlagi, bifreiðaeig- endum að sjálfsögðu til mikillar ánægju. Vegagerðin og fjárveitinga- valdið eiga hrós skilið fyrir vasklega framgöngu þótt auðvitað vildu margir enn meiri uppbyggingu á styttri tíma. Þetta er allt gott og blessað en galli er þó á gjöf Njarðar. í öllum þessum látum hefur stór hópur íbúa þessa lands gleymst, þ.e. hestamenn. Hvarvetna má sjá glæsilega upp- byggða vegi með háum moldarhlíðum beggja vegna þar sem áður fyrr voru reiðstígar, mótaðir af hófum þúsunda hesta í tugi ára. FÉLAGSMENN UM 7 ÞÚSUND Félagsmenn hestamannafélaga í með að minnka álagið á viðkvæman gróður hálendisins. Undir þetta sjónarmið tek ég heils- hugar og höfum við íshestamenn reyndar í 13 ár boðið upp á vinsæla 6 daga ferð um Hrunamannahrepp og Biskupstungur sem kallast „Gullni Hringurinn". Nú stefnir allt í það að við verðum að gefast upp á þessari ferð þar sem framkvæmdir Vegagerðarinnar í kringum Skálholt og reyndar áður á veginum Laugarás-Skeiðavegamót hafa gjörsamlega eyðilagt reiðgötur þær sem notast hefur verið við í ára- tugi. Rétt er að taka það fram að kafli þessi er sennilega á fjölfömustu reið- leið þeirra hestamanna úr þéttbýlinu hér syðra sem á ári hverju ríða hest- Skilaboð til stjórnvalda: undanförnum árum hefur því ávallt verið haldið fram að vegalögin tryggi hestamönnum reiðgötur meðfram þjóðvegum landsins og sé það hlut- verk Vegagerðarinnar að sjá um þær framkvæmdir. Landssamband hesta- mannafélaga staðfestir þessa túlkun laganna en Vegagerðin dregur lapp- irnar og telur að fjármagn þurfi til að koma. H/ETTAN Á STÓRSLYSUM MAGNAST STÖÐUGT Á meðan hrekjast hópar hesta- manna um land ailt upp á malbikið og hættan á stórslysum magnast stöðugt. Rétt er þó að geta hér einnig þess, sem vel er gert, en það er hin fjölfama leið milli Vífilsstaðavatns og Kaldár- selsvegar. Þar var á sl. ári lagt bundið GERD REIBVEGA Einar Bollason ferðafrömuður segir hestamenn eiga undir högg að sækja. landinu eru um 7000 talsins og óhætt mun að fullyrða að annað eins standi utan við. Ef við bætum við öllum þeim gífur- lega fjölda innlendra og erlendra ferðamanna sem á ári hverju fer í lengri eða styttri hestaferðir sér til skemmtunar og heilsubótar þá er ljóst að varlega áætlað erum við hér að tala um 25-30.000 manns. Hvar á þetta fólk að vera? Náttúruverndarsinnar, sem ég vona auðvitað að sem flestir hesta- menn séu einnig, benda réttilega á nauðsyn þess að fara varlega um há- lendið og hvetja hestamenn, og þá ekki síst fyrirtæki eins og íshesta, til þess að beina ferðum sínum meira í gegnum sveitir landsins og reyna þar um sínum í sumarhaga austur fyrir íjall. Þessi vegarkafli er ekkert eins- dæmi, heldur aðeins tekin hér sem dæmi. Hver ber ábyrgð á þeim slysum á mönnum og hestum sem óhjákvæmi- lega eiga eftir að henda verði ekkert gert? Það er nokkuð víst að Vega- gerðin segir: „Ekki við!“ Á fundum í hinum ýmsu hesta- mannafélögum víðsvegar um landið á SKILAB0Ð TIL STiÓRNVALDA Einar Bollason Mynd: Geir Ólafsson slitlag og Vegagerðin varð við óskum hestamannafélaga á höfuðborgar- svæðinu um að Ieggja ágæta reiðgötu meðfram veginum. Því miður er hér um undantekningartilfelli að ræða. Víða kreppir skórinn að hesta- mönnum í þéttbýli og nýjasta dæmið er vaxandi byggð í kringum hesthúsa- byggðina í Kópavogi á félagssvæði hestamannafélagsins Gusts. Þrátt fýrir fögur orð forráðamanna Kópavogskaupstaðar um reiðvega- net, sem tryggi hestamönnum greiða útleið úr hverfinu, hefur lítið orðið um efndir. Allan síðastliðinn vetur þurftu hestamenn að ríða yfir umferðargötu til þess að komast út úr sínu eigin hverfi og eitt er víst að umferðin á eftir að aukast þarna í vetur.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.