Frjáls verslun - 01.08.1996, Blaðsíða 35
f. 1973, Pálmi f. 1974, ísólfur f.
1979 og Haraldur f. 1989.
GOÐSÖGNIN UM ÞRIÐJU
KYNSLÓÐINA
Það er stundum sagt um ís-
lenskan atvinnurekstur að fyrsta
kynslóðin hafi byggt hann upp,
önnur kynslóðin eyði afrakstrin-
um og þriðja kynslóðin gangi svo
af öllu saman dauðu. Þessi goð-
sögn á ekki við rekstur HB á
Skipaskaga þar sem Haraldur og
bræður hans halda um stjómar-
taumana. Undir þeirra stjórn
hefur fyrirtækinu heldur vaxið
fískur um hrygg og hefur því
verið stýrt til nútímalegri rekstr-
arhátta en tíðkast víða annars
staðar. Þannig var HB meðal
fyrstu sjávarútvegsfyrirtækja til
þess að opna rekstur sinn og bjóða
hlutabréf í fyrirtækinu föl á Verð-
bréfaþingi íslands árið 1991. Skipa-
kostur fyrirtækisins er góður og em
þar á meðal nýleg aflaskip í fremstu
röð, bæði í hefðbundnum botnfisks-
veiðum og loðnuveiðum. Fullvinnsla
sjávarafurða hefur gert HB að módel-
frystihúsi sem margir koma um lang-
an veg til að skoða. Á þessu ári verð-
ur fiskmjölsverksmiðjan endurbætt
fyrir 750 milljónir og þá verður hún
ámóta fullkomin á sínu sviði eins og
frystihúsið. í níutíu ár hefur HB alltaf
greitt skuldir sínar.
Haraldur stýrir stærsta fyrirtæk-
inu á Akranesi sem veitir 400 manns
vinnu og því næststærsta á Vestur-
landi því aðeins Járnblendiverksmiðj-
an á Grundartanga veltir meira fé en
HB en hjá HB vinna flestir. Haraldur
er mjög meðvitaður um þá ábyrgð
sem fyrirtækið hefur gagnvart bæjar-
félaginu og fólkinu sem þar vinnur.
Hann ber mikla virðingu fyrir þeim
arfi sem hann hefur fengið í hendur og
það sést t.d. á því að á 70 ára afmæl-
inu annaðist hann útgáfu bókar um
sögu fyrirtækisins, Sjötíu ár á sjó og
landi, sem byggir á viðtölum við 40
starfsmenn HB, og 1986, á 80 ára
afmælinu, gekkst hann fyrir gerð
heimildarmyndar um starfsemi þess.
Reyndar má geta þess að þótt Har-
aldur sé fulltrúi þriðju kynslóðarinnar
þá getur hann sagst vera sjötti ættlið-
ur útgerðarmanna því ættir hans
Þeir, sem gagnrýna Harald, segja að hann sé
óþarflega varkár og tregur til að taka áhættu.
Ennfremur er gagnrýnt að hann eigi til að vaka
yfir smæstu atriðum í daglegum rekstri og
finnst fólki hann þá smámunasamur.
liggja beint aftur til Sturlaugs, út-
vegsbónda og sjósóknara í Rauð-
seyjum á Breiðafirði.
PERSÓNULEGUR
STJÓRNUNARSTÍLL
Sé spurt hvemig stjómandi
Haraldur sé eru svörin á ýmsa
lund.
Haraldur er dagfarsprúður
maður, hlédrægur og stilltur í
fjölmenni en kemur fram við
starfsfólk sitt á látlausan og
óþvingaðan hátt. Sumir segja að í
HB sé notaður samskonar
stjórnunarstíll og á stóm heimili
og það gefíst vel. Það er rökstutt
með þeim hætti að þrír bræður,
Sveinn, Sturlaugur og Haraldur,
eru í forustusveit þess. Haraldi
mottukerfi frá
Rekstrarvörum
Rekstarvörur bjóða nú stofnunum og fyrirtækjum
nýja og byltingarkennda lausn til að loka óhreinindin
úti. Leitið upplýsinga hjá hreinlætisráðgjöfum og
sölumönnum okkar.
Rekstrarvörur, Réttarhálsi 2,
110 Reykjavík. Sfmi: 587 5554 Fax: 587 7116
35