Frjáls verslun - 01.08.1996, Blaðsíða 93
Haraldur Leifsson og Sveinn Jónsson á tveggja skjáa fundi. Annar skjárinn er í Sldpholti en hinn í Skaftahh'ð,
fjarfundaþjónustu
mynd og mynd af sjálfum sér eða frá fundinum í Reykjavík
svo tvær myndir eru á skjánum samtímis. Einnig er hægt
að fella smækkaða mynd af því, sem sést á öðrum skján-
um, inn í myndina á hinum. Hægt er að teikna eða skrifa
skýringar og senda inn í kerfið, sem þá birtast á skjánum,
breyta myndhorni myndavélar og beita aðdráttarlinsu.
Fyrirlesarinn stýrir aðgerðum frá stjórnborði. A sama hátt
fylgjast fundarmenn á Akureyri með því, sem fram fer í
Reykjavík, og geta lagt sitt til málanna. Hægt er að hafa
einn skjá á hvorum stað en það takmarkar að sjálfsögðu
möguleika á tjáskiptum. Vel mætti hugsa sér búnað sem
þennan á mörgum stöðum og að haldinn væri samtengd-
ur fundur allra staðanna.
Þessi nýja fundatækni á að geta lækkað ferðakostnað
fyrirtækja og stofnana umtalsvert þurfi menn ekki lengur
að fara í kostnaðarsamar ferðir innanlands eða milli landa.
Nýherji selur nauðsynlegan búnað frá virtum framleið-
endum: Tandberg, finnska fyrirtækinu Videra og breska
fyrirtækinu GPT. Auk þess mun Nýherji opna fjarfundaver
hjá Nýherja Radíóstofu í Skipholti 37. Þar verður vandað-
ur GPT búnaður með tveim skjám fyrir þá viðskiptavini
sem vilja nýta sér þjónustuna. Verð á búnaði eins og þeim,
sem hér hefur verið lýst,
er á bilinu 200 þúsund til 4
milljónir króna. Til viðbót-
ar greiða menn fyrir síma-
línu - eitt venjulegt gjald
fyrir notkun tveggja ISDN
lína. Hægt er að hafa þrjár
línur fyrir sömu sendingu til að auka myndgæði en því
fylgir aukinn símakostnaður.
Klukkustundar fundur í ijarfundaveri Nýherja með aðila
á gjaldsvæði 2 kostar 16.700 krónur. Eftir það fer kostnað-
ur hlutfallslega lækkandi. Nýti menn sér vistlegt fjarfunda-
ver Nýherja losna þeir við að ljárfesta sjálfir í búnaði en
geta kynnt sér, á ódýran og hagkvæman hátt, kosti þessar-
ar nýju tækni og metið hvort fyrirkomulagið hentar ein-
staklingum, stofnunum eða fyrirtækjum þannig að rétt sé
að ijárfesta í búnaðinum til að spara og hagræða í rekstr-
inum.
MÝHERJI
Skaftahlíð 24 • Sími 569 7700
http://www.nyhErji.is
93