Frjáls verslun - 01.02.1997, Qupperneq 20
SJÓNVARP
Arni Samúelsson hefur tvisvar gert allögu að Stöð 2.1 fyrra skipt-
ið sem hluthafi í Sýn en í það síðara í gegnum Stöð 3 þar sem hann
var stærsti hluthafinn, með um 30% hlut Bæði fyrirtækin haía verið
gleypt af Stöð 2. Árni er nú hluthafi í íslenska útvarpsfélaginu í ann-
að sinn. Arni tilheyrði Aramótahópnum sem ætlaði að kaupa Stöð 2
af Verslunarbankanum um áramótin '89 og '90.
ÚTVARP
Fyrirtæki Árna, Samfilm, var stofnað árið 1975. Það hefúr um
nokkurra ára skeið rekið útvarpsstöðina FM 95.7. Helstu hlustend-
ur stöðvarinnar er fólk á aldrinum 17 til 35 ára. En það er einnig dug-
legt við að sækja kvikmyndahús.
TÓNUST
Skífan hefúr í gegnum tíðina verið án samkeppni frá Árna Samú-
elssyni í sölu tónlistar á geisladiskum, kassettum og myndböndum.
Á síðasta ári stofnaði Árni, ásamt fleirum, hlutafélagið Jómfrúna,
sem opnaði í byrjun nóvember verslunina Virgin Megastore í
Kringlunni, stærstu verslun landsins á sviði geisladiska, sölu mynd-
banda og tölvuleikja. Fyrirtækið er með sérleyfi - franchise - frá
stærstu plötusölukeðju í heimi sem er í eigu Richard Branson. Virg-
in Megastore í Kringlunni flytur allt efni sitt beint inn. í april nk.
stendur tíl að opna aðra verslun Virgin Megastore hér á landi, við
Laugaveg 13.
KVIKMYNDIR
Árni er bíókóngurinn. Hann er með umboð frá bandarisku risun-
um Warner Bros og Disney. Sömuleiðis er hann í samstarfi við Há-
skólabíó um Paramount og Universal. Hann misstí 20th Century
Fox tíl Jóns Olafssonar á síðasta ári. Á markaði kvikmyndahúsa er
fyrirtæki Árna með um helming allrar kökunnar. Háskólabíó er í
öðru sæti.
MYNDBÖND
Árni er með tæplega 35% hlut í leigumarkaði myndbanda á móti
ríflega 30% hlut Skifunnar. Helstu myndbandaumboð Árna eru
Warner Bros og Buena Vista, sem m.a. gefur út allar Disneymynd-
ir, ásamt hluta af UPI en það er samsteypa Paramount, MGM, Uni-
versal og United Artists. Á sölumarkaði myndbanda er Árni með um
80% hlutdeild.
TÖLVULEIKIR
Á sviði tölvuleikja gerir Árni atlögu að Jóni í gegnum verslunina
Virgin Megastore. Jón er á þessu sviði með þekktari merki. Þess má
geta að nýja Virgin Megastore verslunin, sem opnuð verður við
Laugaveg 13, verður skammt frá Megabúð Jóns við Laugaveg 28.
Árni Samúelsson er 54 ára og alinn upp í Hlíðunum í
Reykjavík. Hann er ótvírætt bíókóngur landsins.
FV-mynd: Kristján E. Einarsson.
Veldi Árna Samúelssonar í hnotskurn. Hann stýrir því í
gegnum fyrirtæki sitt Samfilm, sem hann stofnaöi árið
1975.
Arni Samúelsson í Sambíóunum og Jón Olajsson í Skífunni eru kóngarnir
miskunn þegar þeirgera atlögu aö ríki hvors annars. Arni
20