Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 24

Frjáls verslun - 01.02.1997, Page 24
Entertainment. Stjömu- bíó er með umboð fyrir Columbia Pictures. Laugarásbíó er með um- boð fyrir New Line sem hefur gengið vel að und- anfömu. Háskólabíó er með umboð fyrir Lakes- hore og Polygram. Auk þessa er síðan aragrúi sjálfstæðra framleiðenda sem semja við þann dreifmgaraðila sem best býður hveiju sinni. Hver íslendingur fer um það bil fimm sinnum á ári í bíó - og skákar engin önnur þjóð í Evrópu okkur í þeim efnum. FV-mynd: Geir Ólafsson. SKIPTING KVIKMYNDAKÖKUNNAR Skipting kökunnar á kvikmyndahúsamarkaðnum er þessi: Sambíóin hafa 45-50% hlut, Háskólabíó um 25%, Skífan um 15% og Stjömubíó og Laugarásbíó skipta með sér afgangnum. Af þessu er Ijóst að Ámi hefur ótvíræða forystu á markaði kvikmyndahúsanna. Fyrirtæki hans er með flest bíóhúsin, flesta sali og bestu bandarísku umboð- in. Að vísu missti hann umboð fyrir 20th Century Fox til Jóns Ólafssonar á síðasta ári sem var stór biti að kyngja. 20th Century Fox er einn af risunum í bandarískum kvik- myndaiðnaði. Þetta sýnir að Jón er að sækja í sig veðrið á markaði kvikmyndahúsa. Þetta er markaður sem gengur í bylgjum og það, sem fyrir fáum ámm var í föstum skorðum einkaumboða, getur nú verið í lausu lofti. Þegar Jón náði til sín 20th Century Fox umboðinu svaraði Ámi með því að gera samning við Morgan Krieg sem m.a.. framleiddi m^mdir eins og Ace Ventura og Robin Hood. Laugarásbíó hefur nýverið gert fimm ára samning við Svenskfilm sem er öflugt í kvikmyndadreifingu á Norður- löndum og var áður með samning við Sam- bíóin. Á móti kemur að Wamer samsteyp- an hefur keypt bæði Castle Rock Enter- tainment og New Line Cinema. Ámi er umboðsmaður Warner svo búast má við að sýningar á myndum þessara fyrirtækja fari í auknum mæli í Sambíóin í náinni fram- tíð og við það gætu Regnboginn og Laug- arásbíó misst spón úr aski sínum. Þannig heldur stríðið áfram þótt ein orusta tapist eða vinnist. 1200-1300 þúsund bíómiðar eru seldir ár hvert og hefur svo verið í mörg ár. Sætanýting íslenskra bíóhúsa er milli 12% og 13% árlega svo augljóst er að berjast þarf um hvern einasta viðskipta- sem starfaði á Suður- nesjum árin 1974 til 1976, var mjög vinsæl undir forystu Magnúsar Kjart- anssonar. Jón Ólafsson var framkvæmdastjóri sveitarinnar og sá um plötuútgáfu fyrir hana. JÓNTÓK REGNBOGANN Á LEIGU Jón hóf síðan að reka kvikmyndahús 1989 þegar dótturfyrirtæki Skífunnar, Bíó hf., tók Regnbog- ann, fjölsala bíó við Hverfisgötuna, á leigu. Síðan hefur Bíó hf. eignast Regnbogann. Þótt Regnboginn gangi ágætlega er hann illa í sveit settur við Hverfisgötuna og líður fyrir skort á bílastæðum og ekki svigrúm til neinna breytinga eða viðbygginga. Jón Ólafsson hefur um hríð sýnt mikinn áhuga á því að fá lóð undir nýtt fjölsala kvikmyndahús. Hann lýsti því yfir seinni hluta síðasta árs að slík bygging myndi líta dagsins ljós á þessu ári. Fyrir Iiggja teikningar að fjögurra hæða verslunarkjama sem rísa á á lóðinni við Laugaveg 86. Þar ætlar Jón Ólafs- son að byggja sér sína eigin „megastore“ þar sem verslað verður með myndbönd, geisladiska, tölvur og tölvuleiki á öllum hæðum. Hvenær þessi bygging lítur dagsins ljós er óvíst. Bíóbyggingin mun hins vegar vera ofar á forgangs- listanum hjá Jóni. vin. SKIFAN ST0FNUÐ ARIÐ1976 Jón Ólafsson kom undir sig fótunum fyrir rúmlega 20 árum með rekstri Skíf- unnar sem selur og gefur út tónlist. Skífan er stofnuð 1976 en áður hafði Jón fengist við að vera umboðsmaður hljómsveita og gefið út hljómplötur. Hljómsveitin Júdas, 20th Century Fox, sem Árni Samúelsson missti umboðið fyrir í fyrra til Skífunnar, er öflugur risi. Af nýlegum myndum þess má nefna Independence Day, Nine Months og Braveheart. Það var með metmyndina Jurassic Park fyrir nokkrum árum. ELDA SAMAN GRÁTT SILFUR Á MARKAÐIMYNDBANDA í útgáfu myndbanda er mjórra á mununum milli þeirra Áma og Jóns en á kvikmyndahúsamarkaðnum. SamMynd- bönd og Wamer myndbönd eru tvö fyrir- tæki í eigu Árna og gefa út á myndbandi flestallar kvikmyndir sem sýndar eru í Sambíóunum. Stærstir þeirra aðila, sem þessi fyrirtæki gefa út fyrir, eru Warner Bros og Buena Vista sem m.a. gefur út allar Disneymyndir REIÐARSLAG FYRIR ÁRNA AÐ MISSA 20TH CENTURY F0X TIL JÓNS Skífan, fyrirtækijóns, ermjög umsvifa- mikið á þessum markaði og sækir á. Fyrir- tækið gerði á síðasta ári samning við 20th Century Fox um útgáfu myndbanda og sýningu kvikmynda. Þetta umboð var áður hjá Samfilm og var þessi samningur Jóns því reiðarslag fyrir Árna. 20th Century Fox er meðal stærstu bandarísku fyrir- tækjanna sem em í viðskiptum við Skífuna vegna útgáfu og dreifingar á myndbönd- um. Fyrir fáum árum þegar Ámi Samúels- son var að hasla sér aukinn völl á mynd- bandamarkaðnum náði hann umboðinu fyrir Warner myndbönd af Steinum hf. Þá 24

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.